Vísir - 15.12.1975, Síða 13
21
VISIR Mánudagur 15. desember 1975.
c
Töpuðu þrisvor
fyrir Danmörku
íslenska landsliðið í handknattleik hofnaði í öðru sœti
á mótinu í Árósum eftir að hafa tapað úrslitaleiknum
gegn Danmörku 20-17
tslenska landsliðið i handknatt-
leik hafnaði i öðru sæti — á eftir
Danmörku —i fjögra liða keppn-
inni i Árósum sem lauk i gær. tJr-
slitaleikur keppninnar var á milli
tslands og Danmerkur og lauk
honum með sigri dana 20:17.
Auk islands og Danmerkur
tóku þátt i þessu móti danska liðið
Arhus KFUM, sem Bjarni Jóns-
son lék með á sinum tima, og ung-
verska liðið Tatabanya.
í fyrsta leiknum áttust við
landslið tslands og Danmerkur.
Lauk honum með sigri danska
liðsins 17:16 — eins og i lands-
leiknum tveim dögum áður — og
var það hreinn klaufaskapur hjá
islenska liðinu að tapa þeim leik.
Þegar 10 sekúndur voru eftir af
leiknum var jafnt — 16:16 — og is-
lenska liðið með boltann. Þá
Preston
tapaði!
önnur umferö ensku deildar-
keppninnar var-leikin á laugar-
daginn og urðu þá aðeins ein
óvænt úrslit, Preston tapaði fyrir
Scarborough sem leikur utan
deilda 3:2.
Þriðja umferðin verður leikin 3.
janúar og þá koma liðin i 1. og 2.
deild inn i keppnina og bætast við
þau 20 lið sem eftir eru. Búið er að
draga um hvaöa lið leika saman
og veröa þá fimm leikir þar sem
lið úr 1. deild eigast við, "West
Ham — Liverpool, Derby — Ever-
ton, Tottenham — Stoke, Wolves
— Arsenal, Leicester — Sheffield
United og QPR — Newcastle—BB
skaut einn islensku leikmann-
anna — við fengum ekki að vita
hver það var — á markið úr von-
lausu færi, en hitti ekki. Danirnir
náðu boltanum og skoruðu sigur-
markið þegar 1 sekúnda var eftir
af leiknum.
Islenska liðið lék vel i þeim leik,
og átti skilið að sigra. 1 næsta
leik, sem var við Árhus KFUM,
gekk liðinu einnig vel, og hafði
mikla yfirburði allan timann.
Lokatölurnar urðu 25:14 fyrir Is-
land, óg var það sist of stór sigur.
Axel Axelsson náði sér upp i
þeim leik — skoraði 8 mörk. Jón
Karlsson skoraði 6, Ólafur H.
Jónsson 5, Páll Björgvinsson 4, og
þeir Viggó Sigurðsson og Sigur-
bergur Sigsteinsson 1 mark hvor.
Eftir að öil liðin höfðu leikið tvo
leiki var ákveðið að Island og
Danmörk, sem voru með flest stig
og betri markatölu en hin tvö,
kepptu um 1. og 2. sætið i mótinu
og Árhus KFUM og Tatabanya
um 3. og 4. sætið. 1 leiknum um 3.
og 4. sætið varð jafntefli 18:18,
svo að þau deildu þeim á milli sin,
en danska landsliðið tók 1. sætið
með þvi að sigra Island 20:17.
Var það þriðja viðureign þess-
ara liða á fimm dögum, og höfðu
danir vinninginn i öll skiptir . 1
úrslitaleiknum lék islenska liðið
mjög vel i fyrri hálfleik. Hafði
lengst af forustu, en danir jöfnuðu
úr aukakasti á siðustu sekúndu
hálfleiksins — 9:9.
1 siðari hálfleiknum komust
þeir fljótlega i 11:9 og náði is-
lenska liðið aldrei að jafna eftir
það. Mestur var munurinn 4 mörk
— 17:13 — en minnstur rétt fyrir
lokin — 19:17. Siðasta markið
skoruðu danirnir út vitakasti og
sigruðu þvi i leiknum 20:17.
Mörk Islands i þessum leik
Áhorf endurnir settu
Þrótt út af laginu
Möguleikar Þróttar til að
sigra i 1. deildinni i blaki minnk-
uöu aliverulega er Ilöiö tapaði
fyrir UMFL á Laugarvatni I
gær. Hefúr liöið nú tapað þrem
leikjum, og er allt útlit fyrir aö
slagurinn um meistaratitilinn
verði á milli ÍS, UMFL og Vik-
ings.
IS átti að leika við IMA á
Akureyri á laugardaginn, en aö-
eíns hluti líðsins komst norður,
svo að fresta varð leiknum. Var
ekki hægt að ienda á Akureyri á
laugardaginn með þá sem eftir
voru, en nokkrir úr liöinu voru
farnir noröur á föstudaginn.
1 leiknum á Laugarvatni var
mikið fjör, sérstaklega á áhorf-
endapallinum — þeim eina I
húsinu — þar sem á annaö
hundrað manns var þjappað
saman og öskraði án afláts með
heimamönnum.
Þoldu Þróttararnir illa þessi
öskur — eins og t.d. i annarri
hrinunni, þar sem þeir voru
komnir I 12:5 en töpuðu 16:14
eftir aö „heimamenn” fóru að
hrópa. Fyrstu hrinunni töpubu
þeir einnig, en henni lauk 15:5
fyrir UMFL.
t þriðju hrinunni náði Þróttar-
arnir aö „loka eyrunum” og
sigruðu 15:12, en þeirri fjórðu
töpuðu þeir 15:10 og þar með
leiknum samtals 3:1.
—klp—
gerðu: Jón Karlsson 5 (2 viti),
Ólafur H. Jónsson 4, Gunnar
Einarsson 3, Axel Axefsson 2,
Viggó Sigurðsson 2 og Björgvin
Björgvinsson 1 mark.
Þeir sem hvildu sig i þessum
leik voru þeir Ingimar Haralds-
son og Friðrik Friðriksson, og
voru þeir hvildinni fegnir, enda
búnir að fá meira en nóg af hand-
bolta þessa daga i Danmörku.
,,En strákarnir hafa haft gott af
þessu og ég hef mikla trú á þeim i
viðureigninni við Júgóslaviu,”
sagði Hákon Bjarnason, farar-
stjóri liðsins, er við töluðum við
hann i gærkvöldi. „Þeir eru að
vfsu orðnir þreyttir, enda hafa
þeir æft og leikið allt upp i þrisvar
á dag siðan á mánudaginn var, en
þeir hafa mikið á þessu lært og
ná orðið vel saman eins og i ljós
kom I siðustu leikjunum.”—klp—
Jón Sigurðsson, Armanni, á fullri ferö i átt að körfunni hjá UMFN i
leiknum á laugardaginn. Annað kvöld fær Jón aftur að taka á honum
stóra sinum en þá leikur Ármann við KR I Laugardalshöllinni.
Ljósmynd Einar.
IR ATTI I VAND-
RÆDUM MEÐ VAL!
Ármann braut „100 stiga múrinn" í leiknum gegn UMFN
og œtlar að gera það aftur annað kvöld er liðið leikur
við KR í Laugardalshöllinni
tslandsmeistarar ÍR í körfu-
knattleik áttu i miklum vandræð-
um með Val I leik liðanna i 1.
deild á laugardaginn. Mörðu þeir
sigur, 94:90, og var það minni
munur en nokkrum hafði dottið i
hug eftir að hafa séð bæði liðin
leika nú I haust.
Það var Þórir Magnússon, sem
nú er aftur farinn að leika með
Val, Sem hélt þeim á floti i þess-
um leik. Ef hann hefði haft aðeins
meira úthald, eða Valur haft einn
góðan leikmann i viðbót, er ekki
að efa aö Islandsmeistararnir
hefðu legið i þetta sinn — munur-
inn var dtki meiri en það.
1R var yfirleitt með forustu i
leiknum, en náði aldrei að hrista
Valsmennina af sér. Þeir Þórir
Magnússon og Torfi Magnússon
voru iðnir við að skora á móti,
enda vörnin hjá 1R oft eins og
gömul vængjahurð — hálf af hjör-
um og opin upp á gátt.
Munaði IR sýnilega um Þor-
stein Hallgrimsson, sem ekki hef-
ur leikið með liðinu i tveim sið-
ustu leikjum, en hann bindur
vörnina saman. Kolbeinn Krist-
insson var stigahæstur IR-inga i
leiknum — skoraöi 24 stig. Næstir
komu þeir bræðurnir Kristinn og
Jón Jörundssynir með 21 og 18
stig.
Hjá Val var Torfi Magnússon
stigahæstur með 29 stig. Þórir
Magnússon var með 23 og Lárus
Hólm með 17 stig.
Ármenningar brutu „100 stiga
múrinn” *»r þeir léku við Njarðvik
á laug&rdaginn. Skoruðu þeir 101
stig en hjarðvikingarnir 80 stig.
Til að byrja meö voru injarð-
'vikingarnir yfir — komust mest i
8 stiga mun — en er á leið þeystu
ármenningarnir fram úr og
kepptust aðeins við „100 stiga
múrinn” i lokin.
Jimmy Rogers var i miklum
ham i þessum leik — skoraði 42
stig, og er allt útlit fyrir að hann
og „Trukkurinn” hjá KR ætli að
berjast um að verða stigahæstu
menn mótsins. Jón Sigurðsson
kom næstur á eftir Rogers með 26
stig. Hjá UMFN var Stefán
Bjarkason stigahæstur með 21
stig en siöan kom Gunnar Þor-
varðarson með 18 stig.
Armenningar verða aftur i eld-
linunni annað kvöld, en þá leika
þeir við KR i Laugardalshöllinni.
Verður það i fyrsta sinn sem
félagarnir Rogers og Carter mæt-
ast i leik hér á landi, og verður
örugglega gaman að sjá þá viður-
eign, og að sjálfsögðu leikinn.
sem verður siðasti 1. deildarleik-
urinn i körfuboltanum fyrir jól.
Nú var það Sviss
Svisslendingurinn, Engelhard
Pargaetzi kom öllum á óvart I
stórsviginu i heimsbikarkeppn-
inni á skiöum I Madonna di
Campilio á ttaliu i gær með þvi að
koma fyrstur i mark.
Þessi 26 ára gamli skiðamaður,
sem aldrei fyrr hefur sigrað á
móti innan heimsbikarkeppninn-
ar, hafbi rásnúmer 30 þegar
keppnin hófst, en það aftraði hon-
um samt ekki frá þvi að komast i
fyrsta sætið.
Landi hans Ernest Good varð
annar, en þriðja varð Pierino
Gros, ttaliu. Hann var i 6. sæti
eftir fyrri umferðina en keyrði vel
I þeirri siðari og nábi þá þriðja
sætinu — og um leið forustu I
heimsbikarkeppninni.
Er hann nú með 30 stig, en á
eftir honum kemur landi hans
Gustavo Thoeni með 29 stig og
þriðji er Ernst Good meb 28 stig.
t dag verba kapparnir aftur á
fullri ferð — I þetta sinn Sterzing/
Vipiteno á itallu, og eru heima-
menn ákveðnir i að hefna sin á
svisslendingunum fyrir sigurinn i
Madonna.
t brunkeppninni i Madonna
sigraði Frahz Klammer, Austur-
rlki. Annar varð Philippe Roux
frá Sviss og þriðji Erik Haker frá
Noregi. —klp—