Lesbók Morgunblaðsins - 03.01.1926, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 03.01.1926, Blaðsíða 3
3. jan. *26. LESBÓK M0RGUNBLAÐSIN8 3 {A TEASPOOKj; ^HlNC watef* BOVRIL VEITIR ÞJER DUG OGl # ÞREK OG EYÐIR ALLRI ÞREYTU. DREKTU BOVRIL VIÐ VINNUi ÞÍNA, ÞVl BOYRIL HELDURl ÞJER STARI'SHÆFUM. Fyrir gamalt fólk, sem þjáist af svefnleysi, er þessi hjartastyrkjandi og heilsusamlegi drykkur mjög ákjósanlegur. Notaðu aðeins % teskeið í eínn bolla af heitu vatni og þá fœrðu samstundis óviðjafnanlegan, nærandi drykk. BOVRIL Heildverslun Ásgeirs Sigurðssonar, sími 300. daga Brúnós í þessi 325 ár, sem lið- in eru frá dauða hans, og af fáum mundi vera meiri saga. Er þess nú ekki langt að bíða, að vjer verðum fróðari miklu um slík efni en verið hefír. Það er ekki vafi á því, að sögur af ævi framliðinna eftir dauð- ann, verða þýðingarmikill þáttur í bókinentum náinnar framtíðar. V. Fróðleg lýsing er í ágætum fyr- irlestri eftir próf. Harald Níelsson í Morgni síðasta (VI,1, s. (i—7). Einnig þar segir frá maður, sem fjell í ófriðnum mikla: „Jeg fann, 'að jeg var í rúmi. en jeg viftsi ekki hvar. Jeg opnaði augun og sá, að rúmið, sem jeg hvíldi í, var drif- hvítt. Kyrt var í herberginu og liátt undir loft. Jeg sá hjúkrunarkonur, sem gengu um milli rúmanna....... Iljúkrunarkonurnar voru góðlegar í framan, og sumar þeirra virtust vera ineð silfurlitan geislabaug kring um höfuðið, en jeg var þess ekki fullvís. Jeg hjelt, að mjer kynni að missýnast. Nú hreyfði jeg höndina, og kleip mig í fótlegginn og sagði: „Er mig að dreyma“\“ Þarna er auðsjáanlega ekki verið að segja frá önduin og andaheimi, heldur frá efnisheimi og líkamlegu lífi, í fullu samræmi við lýsingu Steads þá sem áður er getið. VI. Enn má geta um hina stórfróð- legu bók eftir A. Farnese, sem jeg liefi sagt nokkuð af í Nýal; því mið- ur hefi jeg ekki sjeð bók þessa á frummálinu og veit eklti hvort hún heitir A Wanderer in Spirit Land, eða The Spirit Lands. Bókin segir frá lífinu á hnetti, sem hefir bund- inn snúning um mÖndul sinn, og þar sem því er öðru megin ríki ljóss- ins, en hinumegin ríki myrkranna eða myrkheimur. Sjer þar aldrei sól, en þó eru þar menn, og lifa hinu herfilegasta lífi sem kvalarar og kvaldir. Hugmyndir trúarbragð- anna um helvíti byggjast á slíkum stöðum. Hinn framliðni Franchezzo segir nú frá för sinni og nokkurra annara „anda“ til myrkheims. Voru þeir sendir þangað til að reyna að hjálpa þeim sem þar eiga heima. Þegar leiðangursmennirnir koma heim aftur — en þeir eiga heima h*r sera hejtir Aitureldiugarlapxhð, af því að þar er altaf eins og um aftureldingu — þá er þeim vel tek- ið og veisla haldin. Veitingarnar voru aldin, nærri gagnsæ, er bráðna á tungunni, vín sem ekki er áfengt, injög ljúffengar kökur og ljósleitt brauð. Því næst er þeim sýnd kvik- mynd af fÖrinni sem þeir höfðu far- ið til myrkheims. Myndin er sýnd á afarstórum fægðuin vegg úr marmara. Mvndirnar tala, og söngur er þar með, sem nakvæmlega lagar sig eftir efni mvndariiinar. Saga þessi er orðin meira en 30 ára gömul, og lýsingin á kvikmyndasýningunni þess vegna sjerstaklega fróðleg. V. Farnese sem söguna hefir ritað fyr- ir áhrif framliðins, heldur að hann sje að lýsa andaheimi, en það er al- veg bersýnilegt, að um aðra jat'ð- stjörnu er að ræða, og líkamlegar verur, sem hana byggja. Það er best að jeg leiðrjetti um leið misskiln- ing pokkurn hjá mjer í Nýal. •— Franehezzo kemur eftir dauðann fyrst fram þar sem skuggsýnt er, ekki, eins-og sagt er í Nýal, þannig að önd hans fari í líkama einhvers sem þar var fyrir, heldur skapar önd hans sjer nýjan líkama á Rökk- urlandinu, ljótan og vesalan. Eftir að liafa dvalið þar um tíma, deyr hann aftur, og kemur þá fram á Dagrenningarlandinu í nýjum og betri líkama. Aðferðin til að átta sig á þessu, er að tala við fram- liðna, á þann liátt sem má með til- styrk miðla, og lesa sem flestar lýs- ingar og bera saman. Þetta hvort tveggjk hefi jeg gert og lesið svo tugum þúsunda skiftir af blaðsíðum, í þessu skyni. Þykist jeg ekki vita neitt með meiri vissu en það, að lifað er áfram eftir dauða líkamans, og að vísu á öðrum stjörnum, og í nýjum líkama. VII. Þegar nú þess er gætt, að í hverri lýkingu á lífinu eftir dauð- ann kemur ljóslega fram, að það líf er líks eðlis og lífið hjer á jörðu, þá mætti ætla, að ekki væri erfitt að fá þá sem á annað borð taka nokkuð mark á slíkum lýsingum, til að átta sig á því, að eftir dauö- ann er lifað áfram á öðrum stjörn- um. En alt öðruvísi hefir þó mjer þetta reynst. Jeg hefi skrifast á um þetta mál við margt gott fólk í mörgum löndum, og niðurstaðan helst orðið sú, að ekki mundi sig-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.