Lesbók Morgunblaðsins - 03.10.1926, Side 7
Maður uokkur var ákærður
fyrir það að hafa látið sjer það
um munn f;va, að helmingur borg
arfulltrúanna væri afglapar. Hann
var dæmdur til þess að afturkallu
þau ummæli. Það gerði hann svo:
— Uudirritaður lýsir hjer með
vfi,r því, að helmingurinn af borg-
arfulltrúunum er ekki afglapar.
AUÐMUNAÐ.
Stúlkan: — Parðu nú með
þetta drengur minn, og segðu,
að það kosti 15.50. Mundu það.
Drengurinn: — Heldurðu að
jeg niuni l>að ekki — sama árið
og Jón biskup Arason var háls-
höggvinn.
STUNGIÐ UPP í IIANN.
Stúdentinn fullur, var að niðra
íslenskri leiklist. Stúlka, sem var
viðstödd, sagði — Þetta er nú
góður Kritiker.
Stúdentinn. — Vitið þj&r livað
Kriterium er ?
Stúlkan: — Nei, en jeg veit
livað Delerium er.
Stúdentinn þagnaði.
FULLKOMIN SPAKSEMI.
Sigurgeir keypti- sjer aldrei ný
föt, meðan nokkiw þráður var
óslitinn í þeim göinlu. Til þess
var hann alt of fastheldinn á fje
sitt.
— Það er hreinasta furða, livað
þú getur brúkað fötin þín! sagði
lcunningi hans við hann. Hattinu
]>ann arna liefir þú borið í mi mí
fjögur ár, og yfirfrakkann í mir.st
sjii ár.
— Já, sagði Sigivgeir upp með
sjer. Og viltu sjá regnhlífina þú
arnaj Jeg keypti hana fyrir átta
árum. 1020 var sett ný yfirhúð á
hana, 1922 þrjár hýjar álmur í
hana og 1923 Ijet jeg setja nýtt
handfang á hana.
— Nei, hvað segirðu!, sagði
kunninginn. Hún lítur út eins og
hún hefði alck’ei verið brúkuð.
— Já, sagði Sigurgeir. Því í
fyrradag hafði jeg á veitingastað
skifti á henni og annari regnhlíf
splunkurnýrri.
ísafíííðarprí?IIt»nil8Ja b.f.
.1 okt. 'k____ LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
lárnbrautarslysin i Pýskafandl,
Að undanförnu liafa verið gerð'
a,v margar árásir á járnbrautar'
lestir í Þýskalandi. Hræðilegust
var árásin sem gerð var á hraðlest-
ina til Köln. Biðu þar bana 21
maður en fjöldi særðist. Þeir, sem
vc»ru valdir að þessvt heita Willv
Weber og Otto Schlesinger. Þeir
ætluðu sjer að ræna lestina og
skrúfuðu lausa brautarteinana svo
að lestin lxljúp af sporinu. — En
þegar þeir sáu hvílíkt skaðræðis-
verk þeir höfðu unnið, fjell þeim
allur ketill í eld og flýðu á burt.
Nokkru síðar náðust þeir og er
myndin af rjettairhaldi sem fram
fór á staðnum þar sem slysið varð.
Nurmi dregst aftur úr.
Fyrir skemstu keptu þeir hlaupa
gikkknir Nurmi og Wide í Berlín
og tveir hlauparar þýskir, dr.
Peltzer og Böcher. Skeiðið var
1500 metrar. Bar Peltzer sigu»r af
hólmi og setti nýtt heimsmet. —:
Daginn eftir keptu þeir Nurrni og
Wide í hlaupi sem var 2 enskar
mílur og bar Wide sigur af hólmi
og setti jafniiramt nýtt heimsmet.
Myndin hjer að ofau er af hlaup"
urunum áður en þeir leggja á stað
í 1500 metra hlaupið. Talið frá
vinstri til hægri er röðin þéssi:
Peltzer, Niwmi, Böclier og Wide.
Það er *talið að Nurnii hafi eigi
verið vel fyrir kallaður.