Lesbók Morgunblaðsins - 11.03.1928, Síða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 11.03.1928, Síða 7
Islaudsviunriuu Kitty Cheaiiiatu. Amerísk blöð og tímarit liafa minst ítarlega söngkonunnar og rithöfundarins Kitty ('heatliain, sem undanfarið hefir skrifað milt- ið í ainerísk blöð í sambandi við ísland, sögu íslands og íslendinga. Kona þessi er fædd í Uashville, í ríkinu Tennessee af góðum ætt- um, er allmjög hafa koinið við sögu Bandaríkjanna. Miss Cheat- ham er vel mentuð kona og m. a. vel að sjer í sögu Norðurlanda, enda er norrænt blóð í æðum lienn ar og fekk hún snemma ást á menningu Norðurlanda. — I júní 1925 var haldin 100 ára minning- arhátíð um landnám Norðmanna i Bandaríkjumiin. Hátíð þessi var haldin í Minnesot.a og eins og kunnugt er var Coolidge Banda- ríkjaforseti , þar á meðal ræðu- manna og Thomas Johnson. ís- lendingurinn, fyrv. ráðherra í Manitoba. Þar flutti Miss Cheat- ham einnig ræðu um íslendinginn Leif Eiríksson og fuiid Vínlands. Þessa ræðit flutti hún að tilhlutuu Gislé Bothné, sem er prófessor í skandinaviskum málum við há- skólann í MilmesotU. Miss Cheat- ham hefir í ræð-u-og riti stutt þá menn vestra, sem eru að vinna að því, að það verði alment viður- kent, að Leifur Eiríksson hafi fundið Ameríku. Pyrir henni vak- ir, að sú viðurkenning leiði til aukinnar, almennrar þekkingar á norrænni, menningu vestra. Segir hún, að leikur einn væri að rita heila bók unr það, hve amerískt námsfólk og mentamenn eigi Nor- egi og íslandi, dóttur Noregs, mik- ið að þakka. í grein, sem hún skrif ar í „New York Herald Tribune“ (sem er samsteypa úr New Tri- bune og hinu fræga, gamla blaði The New York Herald), að það hafi verið að tillilutan Whitelaw Reid, sem var ritstjóri New York Herald 1873, að Bayard Tavlor fór til íslands á þúsund ára há- tíðina 1874. Og þegar íslands- strendur hafi komið í augsýn, þá hafi Taylor o’rt hið fagra kvæði sitt „America to Iceland“, en það kvæði télúr Miss Cheatham gim- stein í amerískum bókmentum. — LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 79 Taylor var f. 1825, d. 1878. Hann ferðaðist víða um heim og skrif- aði ágætar ferðasögur. Síðustu æfiár sín var liann sendilierra Bandaríkjanna í Berlín. Taylor þýddi m. a. Gotlies Faust á ensku. I einni blaðagi’ein sinni skrifar Miss Cheatham um málhreyfing- una í Wales og fer mörgum orð- um um íslenskt mál og menningu í sambandi við hana. Miss Cheatham skrifaði nýlega forsrh. íslands um starf sitt í sam- bandi við íslarnl, einkanlega þann þátt þess, að það verði viðurkent, að Islendinguriun Leifur Eiríks- son hafi fundið Ameríku. Getur hún þess rjettilega í skrifum sín- iH.ii, að þegar svo verði komið, að l>að verði viðurkent í Ameríku, ao honum beri sá heiður og þjóð vorri, muni greið leiðin til þess að gera almenning vestra móttæki legan fyrir blessunarrík áhrif nor- rænnar menningar. Þessi merkiskona hefir tjáð for- sætisráðherra íslands, að hún hafi Jslandsferð í huga. Nafngiftir. Ritskýrendur og bókmentafræð- arar láta sjer mjög ant um að hafa sniðug nöfn á takteinum yfir all- ar þær stefnur, sem gera vart við sig í heimsbókmeiitunum. Vandinn á að finna slík nöfn hefir eðlilega farið sí-vaxandi eftir því sem bóka framleiðslan hefir orðið meiri og fjölbreyttari. Svo kvað ramt að því þegar á fyrri hluta 19. aldar, að einn sagnfræðingurinn varð að sætta sig við að kalla árin 1830— 35 „nafnlausa tlmabilið.“ Mönn- um hefir samt nú tekist að flokka allai' bókmentir seinustu aldar nið- ur í stefnur, „hyggjur“ og„isma“. En nú kastar fyrst tólfunum, því að aldrei hafa bókmentir ve,rið jafn fjölskrúðugar og það sem af er 20. öldinni, og aldrei fyr slíkt. óhóf í útgáfu bóka, tímarita og blaða. En fræðimennirnir halda áfram að flokka og flokka. Þeir stranda bara á því að finna ný og ný nöfn, stutt, lientug og hljóm- fögur fyrir alla þessa flokka sína. Þeir vilja nú fá eitt heiti yfir all* ar bókmentir þcssarar aldar, og tákna með því Jiau einkenni, sem öllum rithöfundum hennar eru sameiginleg! En hver er svo orð- hagur að geta smíðað slíkt nýyrði? Og það er eklfi nóg að vera orðhag- ur. Maður verður að þekkja hlut- ina, sem orðið á að tákna. Þá vand- ast málið. Hver getur sett sig á svo háan hest að þykjast þekkja bókmentir 20. aldarinnar út og inn, þótt ekki væri nema eins lands, segjum t. d. FrakklandsT Nei, þótt einhver myndi geta það tímans vc-gna, mundi þolinmæði bresta til að lesa það alt niður í kjölinn. — Hvað um það, hefir ]ió fjöldi manna spreytt sig á ]>essari ]>raut. Franska tímaritið „Revue mondi- alc“ hefir lagt liana fyrir lesendur sína og þegar fengið margar úr- lausnir, nokkuð misjafnar að gæð- um og harla ólíkar. Skulu lijcr nefndar nolvkrar: dilettantisme inflation inachevé („hálfklúrað“) inondialisme globalisme cinematisme machinisme babelisme jazzisme inodernisme dada, & surrealisme belphegorisme confusionnisme cocktail-tímabilið (!) o. s. frv., o. s. frv. Hvert þessara orða nær ekki yf* ir nema lítinn hluta af því, sem það á að tákna; jafnvel öll samanlögð gæfu ]>au harla villandi lýsingu á bókmentum vorra tíma. En nafnið }>arf ekki að vcra lýsing á hlutn- um, og ef væri hægt að finna eitt oið, sem innibindi hin öll, mætti vel við una. Hvað ætti það að vera á íslenska tunguT Þ. S m æ 1 k i. Er það tilbúningur? Þessa dag- ana verður frumsýning haldin í Englandi á leikriti einu, sem mik- ið umtal hefir vakið. Þannig er mál með vexti, að sagt er að skrif- miðill einn hafi ritað leikritið, en Oscar Wilde hafi samið það.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.