Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 03.11.1929, Qupperneq 7

Lesbók Morgunblaðsins - 03.11.1929, Qupperneq 7
hefir verið nefnd hernaðarstefna nýja tímans. Þétta er rangt að því leyti, sem hre'yfingin hefir að vísu kosti heræfinga, e.n engan af göllum nernaðar. Tjekkneska, þjóð- in á þessari hreyfingu hvað mest að þakka efnalegt, og pólitískt sjálfstæði sitf. Reykjavík, í ágústmán. 1929. Jan Masek. fielgisýningcir. Helgisýningar á pínU og dauða Krists eru orðnar sjaldgæfar nú. Má svo lieita, að'þær fari hvergi fram, nema í-'ámábænum Oberam- mergau í Bayern. A miðöldum voru slíkar sýningar algengar, enda voru þær í samrauni við iielgisiði þá, sem farið var með í kirkjunum. í Oberammergau hófust þessir leikar árið 1634, og segir sagan, að þeir sjeu sprottnir af áheiti, er drepsótt gekk þar run slóðir. Voru þeir þaðan af sýndir reglulega 10. hvert ár, fram að stríði. A styrjaldarárunum fjellu leikarnir niður, en voru teknir upp aftur 1922. Var þá ákveðið að sýna þá sem fyr á tíu ára fresti, en vegna mikillar aðsóknar og ágóða af að- sðkn ferðamanna, var þessu brevtt. LMMBÖK MORGUNBLAÐSIN9 Voru leikarnir haldnir síðast í fyrra, en á næsta ári á að halda |)á aftur. Öunur myndin er af Alois Lang, sem leikur frelsarann. Hin myndin er áf Annie Kutz, sem á að leika Maríu mey. Sjúklingur strjúka frá geðveikrahæli. Það bar til í borgiuni Sevilkn (Seljupollum) á Spáni, eigi alls fyrir löngu, að frá geðveikrahæli, sem ér skamt þaðan, struku 32 sjúklingar. Dreifðust þeir út um ailan Spán og mörgum þeirra tókst að fá sjer lífvænlega atvinnu. — Tveir þeirra þóttust vera nauta- banar og voru ráðnir á nauta-ats- sviði,- þegar í þá ráðist. Einn fór inn í kirkju og tókst að stela þar prestsskrúða. Klæddi hann sig í skrúðann og var að messa yfir andagtugum söfnuði, þegar hann var tekinn. Sá fjórði var hættu- legri. Lögreglan náði honum þar sem hann var að rífa upp járn- brautarteina til þess að næsta lest skyldi velta um koll. Nokkrir hjeldu hópinn og sett- ust að í gömlum og hrundum kast- ala og þóttust vera þar landvarn- armenn. Þegar komið var að sækja þá, veittu þeir vasklega vörn, — leystu upp grjót úr kastálarústun- 351 ■ um og börðust með því. Var það alllengi áður en tókst að handsama þá. Nokkrir af sjúklingunum ljeku enn lausum hala þegar seinast frjettist. Saga af 30 dansmeyium. Fyrir riokkru fóru 30 dansmeyj- ar frá Londonderrv i írlandi og ætluðu til Leenon-vígis og dansa þar fyrir ensku setuliðsmennina. Voru þær allar í einum stórum bíl. En skamt frá Londonderry stöðvuðu grímultlæddir og vopnað- ir menn bíliun, settust upp í liann og skipuðu bílstjóranum að aka til ákveðins staðar niðri á strönd- inni, þar sem engin mannabygð er í nánd. Eru þar eintómir sandhólar og hrjóstrugt mjög. Þar skipuðu grímumenn stúlkunum að fara út úr bílnum, og síðan urðu þær að fara úr skóm og sokkum. Grímu- mennirnir fleygðu skónum og sokk unum upp í bílinn, stigu síðau sjálfir á hann og skipuðu bilstjór- anum að aka í burtu og skildu stúlkurnar berfættar eftir þarna. Var nú ekið langa leið, en i ein- hverjum stað, langt frá manna- bjTgðum, ljetu grímumenn stöðva bílinn, tóku öll sokkaplögg stúlkn- anna og báru þau í Hrúgu skamt frá ve'ginum, jusu olíu yfir og kveiktu svo í öllu saman. Síðan leyfðu þeir bílstjóranum að fara ferða sinna. Hann ók þegar til næsta bæjar og tilkynti lögregl- unni atburð þenna. Var þá þegar brugðið við. Flokktir löglreglu* manna var sendur til að reyna að ná í grímumenn, en þeir vóru þá borfnir, enda var komið fram á nótt. Annar flokkur var sendur til að vitja um stúlkurnar. Voru þær illa staddar — höfðu orðið að nopra fáklæddar og berfættar úti á köldum sandinum í nátt- myrkri og vissu ekkert, hvað þær áttu af sjer að gdra. Sumar voru aðframkomnar af kulda og hræðslu.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.