Lesbók Morgunblaðsins - 24.11.1929, Page 7
LBSBÓK MOMTOífBLABfllNS
316
Flugslys í Englcindi.
Rústir flugvjelarinnar.
Þess var nýlega getið í erlendum
símfregnum, að stórkostlegT flug-
slys he'fði orðið í Bnglandi þar
sem sex mann hefðu farist. Plug-
vjelin, sem fyrir slysinu varð, var
frá Lufthansa. Hún annaðist far-
þegaflug milli Berlínar og London.
Plugvjelin lagði af stað frá Croy-
don-flugvellinum við London kl.
3% að morgni. Voru 8 manns í
vjelinni, þar af fjórir farþegar.
Tíu mínútum eftir að flugvjelin
hafði lyft sjer var hún dottin
niður í Surry-hjeraði, skamt fyrir
sunnan London.
Mikil þoka hafði verið yfir
Suður-Englandi þenna dag, ogj
varð því enginn sjónarvottur að
slysinu. Menn heyrðu í hreyfli
flugvjelarinnar í þokunni, en sáu
ekkert.
Einn farþeganna, Kidstone sjó-
liðsforingi, stökk út úr flugvjel-
inni nokkru áður en hún kom nið-
ur og bjargaði þannig lífi sínu en
meiddist nokkuð. Eldur kviknaði
í flugvjelinni um leið og hún
kom til jarðar. — 'i Einn
flugmannanna, Eugen . prins a£
Sehaumburg-Lippe- kom skríðandi
út úr bálinu; var hann stórkost-
lega brendur og særður. Er dáðst
af þreki prinsins, því hann hafði
þannig til reika skriðið til næsta
bæjar og símað þaðan til þess
að láta vita af slysinu. Það leið
yfir hann, méðan hann var að
síma.
Kidstone sjóliðslforiiigi náði sjer
fljótt éftir slýsið. Plaug hann þeg-
ar á næsta degi til Berlínar.
Stjörnuspckingar.
Það er ekki sama hvernig menn
koma fyrir sig orði.
Stórmógúlinn Shah Je'han
dreymdi einu sinni að hann misti
úr sjer allar tennurnar. Morgun-
inn eftir ljet hann kalla fyrir sig
helsta stjörnuspeking sinn, og
spurði hann livað þessi draumur
mundi þýða. Spekingurinn leitaði
ráða hjá stjÖrnunum og vísdóms-
bókum sínum, kom síðan til mó-
gúlsins og mælti: „Herra hinna
rjetttrúuðu, draumur þinn þýðir
það, að allir synir þínir og öll
ætt þín á að deyja á undan þjer!“
Stórmógúllinn varð fokreiður er
hann heyrði þetta svar, og ljet
þegar varpa stjörnuspekingnum í
dýflissu. Síðan ljet hann kalla
fyrir sig annan stjörnufræðing og
bað hann að ráða draum sixm.
Stjörnuspekingurinn sneri sjer þá
að hirðmönnum stórinógúlsina og
mælti: „Gleðjist þjer og öll ríki
veraldar! Gleðjist út af, þeirri
liamingju, sem yður er búin! Því
að draumur herra vors, honungs
konunganna, þýðir þetta: Svo
lengi og hamingjusamle'ga skal