Lesbók Morgunblaðsins - 31.05.1931, Síða 8
168
LESBOK MORGUNBLAÐSLNS
„Tokio Odori“. Hjer birtist mynd, sem tekin er bak við tjöldin
á leikhúsi í Tokio. Frá vinstri til hægri sjást þeir sendiherrar Dana,
Sviss og Portúgals. Eru þeir þangað komnir til þess að láta dans-
meyjarnar kenna sjer „Tokio Odori“, þjóðdans Japana.
— Hvað er að heyra þetta —
hefir fóturinn verið tekinn af
manninum þínum? Hvað getið þið
nú gert við stígvjelið af þeim
fati?
Móðir: Það hefir verið skratt-
inn. sem hvíslaði því að þjer að
berja hana litlu systur þína í
augað.
Strákur (ákafur): Já, en jeg
fann sjálfur upp á því að sparka
í liana.
— Hefirðu heyrt það að Smitb
hefir samið operettu?
— Það kemur mjer ekki á óvart
—- 1 hann hefir verið þjófgefinn
síðan hann var smástrákur.
f Chicago.
Leikkona kemur til lögmanns
og segist þurfa að fá skilnað.
— Jeg skal sjá um það fyrir
venjulegt gjald, svarar hann.
— Hvað er venjulegt gjald?
— 500 doílarar.
— Það er of mikið; jeg get
fengið hann skotinn fyrir 10 doll-
ara.
Horræna söngmótið í Kaupmannahöfn
SöngTnennirnir, sem fóru til Kaupmannahafnar.
Frægur karlakór, „Bel Canto“ í
Kaupmannahöfn stefndi saman
bestu karlakórum Norðurlanda til
söngmóts í Kaupmannahöfn núna
um mánaðamótin. Átti þar að
koma fram lirval karlakóra á Norð
urlöndum, og urðu fyrir valinu
Karlakór K. F. U. M. frá íslandi,
„Orpheus Drángar“ frá Svíþjóð,
„Muntra Musikanterna“ frá Finn-
landi, „Gulbergs akademiske kor“
frá Noregi og svo „Bel Canto“
frá Danmörku. — Karlakór K. F.
,U. M. lagði á stað hjeðan með
Gullfossi 19. maí. Var hann kvadd
ur hjer með virktum og fylgdu
honum hugheilar kveðjur og óskir
allra um það, að honum mætti
sem best takast, að hann yrði bæði
sjer og íslandi til sóma á söng-
mótinu, að honum auðnaðist að
sýna það, að hjer norður á hjara
veraldar búa engir eftirbátar ann-
ara þjóða, ef kapp skal reyna um
list og menning, og það vonum
vjer allir að Karlakór K. F. U. M.
takist að sýna. — Myndina hjer að
ofan Ijet Morgunblaðið taka^ af
söngmannaflokknum daginn sem
liann fór hjeðan.