Lesbók Morgunblaðsins - 21.05.1933, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 21.05.1933, Blaðsíða 5
149 TjESBÓK morgunblaðsins Á Hvannadalshnúki. Eftir Geir Gígja. Breiður af vikri os>' dökkrauðu Á laugardagsmorguninn þ. 13. ágíist vöknuðum við fjelagarnir klukkan að ganga sex, í tjaldi okkar á Fagurhólsmýri í Oræfum. Við skriðum fljótt úr ldýju og mjúku svefnpokunum, klæddum okkur og litum til veðurs. Sólskin var og heiður himinn. Fáeinir meinleysislegir þokuhnoðrar lágu lijer og livar á fjöllunum. Þegar við sáum hvað veðrið var gott fórum við að búa oltkur til ferðar upp á Öræfajökul. Tókum við með okkur ýms áhöld, . sjerstak- lega til skordýrarannsókna, sem jeg ætlaði að nota þegar við .kæmum ofan af jöltlinum aftur. Auk þess höfðum við meðal annars broddstaf og kaðal, er við feng- um að láni á Fagurhólsmýri. Klukkan sjö vorum við ferð- búnir og lögðum af stað. Gengum við upp hjá Fagurhól og Sigurð- arhól*). Stefndum við heint í norður eða skamt austan við Stór- höfða- Hann er nærri upp við snælínu og í beinni stefnu á há- jökulinn frá Fagurhólsmýri. Leið okkar lá fyrst lengi um melöldur með líðandi lialla. Voru þær vaxnar strjálum gróðri, sem eftir þAÚ, er ofar dró fjekk á sig meiri og meiri háfjallablæ. Við gengum ])ögulir og litum eftir plöntum og dýrum. Veðrið var yndislegt. En þoku- linoðrarnir voru komnir á flakk- í fjallaskörðunum. Jeg fór að liugsa um það, hvort þeir mvndn ná yfirhöndinni yfir sólskininu ])egar á daginn liði. Við gátum ekki stilt okkur um ]>að, að líta aftur við og við til þess að sjá hvernig sjóndeildar- hringurinn varð stærri og stærri og útsýnið fegurra og fegurra- Eftir því sem við nálguðumst jökulinn, var landið hrjóstrugra og gersneyddara öllum æðri gróðri; en mosar og skófir teygðu sig upp í aurana, sem lágu meðfrain jöklinum. *) Sjá kort herforingjaráðsins yfir Öræfajökul. gjalli lágu víða í gilskorum milli stórgrýttra melhryggja. (Vikur- breiður sjást líka á stöku stað niðri í bygð). Þegar við náðum jökulröndinni höfðum við gengið liálfa aðra klukkustund. Er við gengum á jökulinn bund- um við sínum endanum á kaðlin- um utan um hvorn okkar, til þess ef annar okkar f.jelli í jökul- sprungu, að liinn gæti dregið hann upp úr. Neðst er jökullinn víða mjiig sprunginn, og teygja skriðjök- ulstungur sig niður lægðii1 og daladrög. Urðum við að fara marga krókg til þess að komast leiðar okkar, og lá oft við að við lentum í sjálfheldu- Þegar upp á miðjan jökulinn kom lá nýfall- inn snjór ofan á harðfenninu. — Máttum við gæta okkar vel vegna sprungna, er leyndust undir nýja snjónum. Þegar við komum upp á brún Öræfajökuls, milli Rótarfjalls- hnúkins og Knappsins svðri, hiifð- um við gengið í hiálfan fjórða tíma. Blasti nú við okkur lægð alt að þriggja kílómetra hreið frá austri til vesturs, en um fjögra kílómetra löng frá norðri til suð- urs. Lægðin er um 1850 metra yfir sjó. Þessi lægð ofan í jök- ulinn takmarkast af jökulbrún- unum á alla vegu- Er hjer um að ræða ákaflega inikinn eldgíg full- an af snjó. Eru brúnir jökulsins barmar gígsins. Á brúnum jökulsins umbverfis gíginn standa tindar upp úr hjarn- inu, sumstaðar þverhqýptir svo snjó festir ekki utan í þeim. Sjest þar { bert bergið. Á kollinum bera, })eir hvítar snjóhettur. Mestur og merkastur af tindum þessum er Hvannadalshnúkur, sem er norð- vestan-við lægðina. Hann er 2119 metra vfir sjó og er talinn liæsti tindur landsins. Við gengum frá Rótarfjallshnúk norður yfir lægðina í áttina til Hvannadalshnjúks. Fvrst hallaði undan fæti um þriðja hluta leið- arinnar, svo var lt.jarnið mar- flatt. En síðast var nokkuð 'á fótinn upp að hnúknum. Veðrið var enn ])á ágætt. En þokuhnoðrarnir sem við sáum um morguninn, voru nú orðnir að þokukúfum fyrir neðan okk- ur, og við sáum að })eir ætluðu að elta okkur upp á jökulinn. Ekki urðum við sprungu varir i jöklinum, en lausamjöll lá yfir öllu. Meðan við gengum yfir lægðina byrgðu gigbarmarnir fyrir liið fagra útsýni. Eftir klukk'ustund- ar gang af suðurbrún Öræfajök- uls, komum við að Hvannadals- hnúki. Ætluðum við upp á hnúk- inn að sunnan, en sáum strax Hvannadalshnúkur á Öræfajökli. Myndin tekin sunnan við hnúkinn.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.