Lesbók Morgunblaðsins - 21.05.1933, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 21.05.1933, Blaðsíða 8
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 152 vetrungar. Þegar hann látti eftir svo sem mílu, sá hann að nokkrir vetrungarnir tóku til fótanna og skilcli ekki í hvaða stygð hafði að þeim komið. En er hann gætti bet- ur að sá hann að þeir voru að elta ref. Eltu þeir hann um 200 metra og hlupu svo aftur i liópinn. Rehbi beið dálitla stund, hljóp svo til baka og inn á milli dýr- anna, og aftur hófst sami eitinga- leikurinn. Stundum þeg'ar refurinn hafði fengið þá tii að elta sig, hijóp liann hringinn í kring um gömlu hreinana, en þeir litu ekki upp og heldu áfram að bíta, eins og ekkert væri um að vera. Vorið kemur. Á sumardaginn fyrsta (barna- daginn) var sýndur í K. R.-húsinu smáleikur eftir Margrjetu Jóns- dóttur kennara. Leikurinn heitir „Vorið kemur“ og er í einum þætti. Persónur eru þessar: Vetur konungur, Gormán- uður, Ylir, Mörsugur, Þorri, Góa, Einmánuður, Síðasti vetrardagur, Sumardagurinn fyrsti, Fyrsta vor- nóttin, Harpa eða Vordísin, Lóur, Spóar, Þrestir o. fl. Vetur konungur situr í hásæti. Hann hefir kórónu úr ískrystöllum á höfði og hvítt sítt skegg hrynj- andi ofan á bringu- Hann er klædd ur hvítum kufli og ber veldis- sprota í liendi. Mikið er ríki hans um stund, en svo fer þó um síðir, að honum er vikið frá völdum. — Vordísin tekur hásætið, grænklædd og glitrandi. Hún er blómum skrejdt, fögur og tignarleg. — í kringum hana er alt fult af ijósi og lífi, ást og unaði, söng og dansi. Fuglamir, blómin og alt lifandi lýtur henni í lotning. Síðari hluti leiksins er að mestu söngur, dans og skrautsýning. — Kvæðin eru yndislegur lofsöngur um Guð og vorið. Jeg hætti ekki fyr en jeg náði í síðasta kvæðið, endi leiksins, og set það nii hjer. Jeg veit, að fleir- um en mjer muni þykja það fallegt og liafa gaman af að raula það. Jeg trúi elcki öðru en að það kvæði eigi eftir að verða oft sungið á íslandi, bæði sumar og vetur. Víðcivangshlauparar K. R. Á sumardaginn fyrsta var þreytt víðavangshlaup og fóru svo leik- 'ar að flokkur K. R. sigraði og vann hlaupabikarinn til fuilrar eign- ar, eða í 5. sinn í röð. Þykir það frækilega gert. — Hj r birtist mynd af víðavangshlaupurunum og formanni K. R. Erlendi Pjet- urssyni. Hlaupararnir era þessir: Standandi Ólafur Guðmundsson, Halldór Ólafsson, Sigurður Einarsson, Haraldur Matthíasson. Sitj- andi: Sverrir Jóhannesson, Oddgeir Sveinsson og Magnús Guð- björnsson. Sólbjarta dís. Velkomín, velkomin vertu, velkomin hvarvetna sjertu. Vorblámans dís. Blómin í dal, lágvært við lækina hjala, litklædd og grænklædd á bala. Blómin í dal. Dagur og vor. Sólskin á bláfjalla brúnum, brosandi fíflar í túnum. Sólskin og ATor. Vornætur sól. Dýrasta djásn vorrar m.óður. Drottinn var fáum svo góður. Miðnætur sól. Gleði og líf birtist í sjerhverju blómi bragar í fóssanna hljómi. Dýrlega líf. Sólbjarta vor! Velkomið, velkomið vertu! Velkomið hvarvetna sjertu; blessaða vor! Gestur. Dr. Achim Gercke heitir þýskur vísindamaður, sem innanríkisráðherrann hefir falið að athuga hverjir borgarar í Þýskalandi sje af þýskum ættum og hverjir ekki. Er þetta embætti aðallega sett á stofn til þess að gá að því hve margir Gyðingar sje í Þýskalandi og hvar þeir hafast við.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.