Lesbók Morgunblaðsins - 16.07.1933, Page 4
212
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Ýmislegt um Balbo —
Tekiö á móti Balbo hershöfðingja í Vatnagöröum viö Reykjavík þ. 6. júlí.
Það var engu líkara en bylur
færi af húsi hjer í Reykjavík, er
ítalirnir flugu lijeðan. Frá því
á miðvikudagskvöld þ. 5. júlí og
þangað til þeir fóru var ekki
meira um annað hugsað og talað
hjer í bænum en ítalina, hvernig
þeir væru, livað þeir gerðu, og
hvað þeir ætluðu fyrir sjer. Eftir-
tekt manna óx svo að segja með
bverjum degi, uns hún náði há-
marki á mánudagskvöld og að-
faranótt þriðjudags í fyrri viku.
|>egar við því var búist fastlega að
þeir mvndu leggja upp í vestur-
flugið. Alt kvöldið stóð múgur og
margmenni framan við Hótel Borg,
M1 þess að fá að sjá í svip flug-
kappann mikla, Balbo hershöfð-
ing.ja, er liann legði af stað í
næsta áfanga í sinni frækilegu.
ferð. Timunum saman stóð fólk
og beið, ungir og gamlir, og þar
á meðal margt manna, sein ekki
að jafnaði er á strætum úti að
kvöldi dags. Og inni á hæðunum
umhverfis Vatnagarða voru liundr-
uð manna alla nóttina, en ótalið
alt það fólk, sem vakti fram á
nótt og alla nóttina í húsum inni,
tiJ þess að bíða og sjá flngið.
En svo vel vildi til, að veðrið
þessa nótt var svo fagurt, að eng-
inn iðraðist að hafa vakað, og
sjeð dýrð liinnar kyrru sumarnæt-
ur, er sól reis upp yfir Esju.
Eins og geta má nærri var það
foringi flugsveitarinnar, Balbo
Jiershöfðingi og ráðherra, sem
mesta eftirtekt manna vakti, og
umtal. Hann mun vera með valda-
mestu og' frægustu mönnum sem
Jitið liafa land vort. Hvar sem
liann fer, hlýtur maður sá að
vek.ja á sjer geysimikla eftirtekt,
með framkomu sinni og' gjörvileik.
TTann er allra manna hvatlegastur
á velli. Af honuin ljómar fjör og
þróttur. Framúrskarandi höfðing-
legur er hann í sjón. En hver sem
A hann yrðir, eða við liann hefir
Jiin minstu viðskifti. finnur þegar,
að maðurinn er frábærlega ljúf-
ur í viðmóti, látlaus og laus við
allan valdamenskuhroka.
Balbo hershöfðingi og flugmála-
ráðherra í stjórn Italíu er sá nú-
lifandi Itali sem næstmesta lýð-
hylli hefir. Hann var í þeim fá-
menna hóp manna, er stofnaði til
fascistahrevfingarinnar á ítalíu. I
hergöngunni frægu til Róm gekk
liann við hlið Mussolini. Alt frá
þeim tíma hefir liann verið vild-
arvinur og fremsti stuðningsmaður
forystumanns ítala, Mussolini.
En hvernig er þessi maðiir, og
hvernig er starfsferill hans? Flug-
leiðangrar hans heimsálfanna á
milli tala sínu máli um það.
En nú er margir af lesendum
Lesbókarinnar nýlega hafa sjeð
manninn og aðrir heyrt mikið um
liann talað. þykir rjett að Játa
Lesbókina flytja af honum nokkr-
ar frásagnir.
Um það leyti sem fascistahreyf-
ir'gin á Italíu var rjett í byrjun.
og hún hafði fáa'fylgismenn feng-
ið. en kommúnistar óðu hvar
vetna uppi í landinu, vildi það til
eitt sinn, að kommúnistar höfðu
fengið eitt af leikhúsum Róma-
borgar til fundarhalds. Aheyr-
endur fyltu húsið. Þeir voru um
3000. Hávaði þeirra var í svipinn
liommúnistamegin. Þá komst Balbo
við 12. mann inn um bakdyr leik-
hússins. Hann og liinn fámenni