Lesbók Morgunblaðsins - 01.10.1933, Page 6

Lesbók Morgunblaðsins - 01.10.1933, Page 6
302 LESBÖK MORGUNBLAÐSIN8 við almenning, var sá þáttur uppistaðan í föllu sjálfstfórnar- starfi hennar í opinberu lífi. Eins og áður er sagt, hafði hún gerst lærisveinn frú Blavatsky, en við lát hennar tók hún við fræðslu- starfi af henni. Þúsundir manna í öllum löndum hafa í mörg ár haft samband við dr. Besant og skoðað hana sem fræðara sinn í andlegum efnum. Þeir sem þektu hana best vissu, hve langt hún hafði komist í Yogavísindum og að hún notaði dularkrafta Yog- ans í ýmsum rannsóknum sínum, sjerstaklega við athuganir á æðri tilverustigum. Skygnirann- sóknir hennar á ýmsum element- um efnafræðinnar eru mjög svo merkilegar, — en það rannsókn- arstarf heldur enn áfram undir forustu þeirra, sem störfuðu með henni. Um dulfræðileg efni hef- ir hún ritað margar bækur, enda var hún mikilvirkur rithöfundur á ýmsum sviðum. Það, sem fyrst og fremst ein- kendi skaplyndi dr. A. Besant, var það, að hún var bardaga- maður. Hún var örgeðja, fljót að átta sig og að ákveða, djörf, fram kvæm'dasöm — hafði stórar hug- sýnir, var framsýn og víðsýn. — Persónan var áhrifamikil og að- iaðandi — þó ekki of áberandi nje ráðrík. Hún skildi manna best málsbætur andstæðinga sinna. Hún var í senn logheit í skapi og þó skapstillt. Hún átti ekki til andúð til þeirra, sem veittu henni mótstöðu, — hún trúði því, að allir leituðust við að gera skyldu sína samkvæmt sínu viti. Hún hafði stórt viðhorf, eða yfirlit yfir aðalatriðin — aðra lét hún um það, að fást við auka- atriðin. Hún var listamaður í vinnubrögðum sínum. — Altaf hefir hún verið æskunnar megin, aldrei slegið köldu vatni á eld áhugans með lítilsvirðandi um- mælum í garð hennar. Á Indlandi var hún nefnd ,,Móðir“ af tignum jafnt og smælingjum. Hún hefir reynst „móðir“ margra um allan heim. Bræðraást. Óli W. Nielsen Kolberg heitir Norðmaður, sem hefir átt heima í Bandaríkjunum í 33 ár, og er nú búsettur í New York. Hinn 31. mars í vetur símaði bróðir hans til lians og bað liann að finna sig. Bróðirinn er skipstjóri á steinolíu- flutningaskipi og var þá staddur í Pall River. Þeir bræðurnir höfðu ekki sjest í 35 á.r, því að skip- stjórinn hafði farið i siglingat- tveimur árum áður en Óli fór til Ameríku. Óli tók nú bíl sinn og ók til Fall River og varð þar auðvitað fagnaðarfundur með þeim bræðr- ununi. Yar nú sest að drykkju og drukkið við sleitur i tvo sólar- hringa. Skipstjórinn vildi að Óli sigldi með sjer til næstu liafnar, en það kvaðst Oli ekki mega, því að hann ætti konu og börn heima. En nú kom að því að skipið átti að leggja á stað. Óii var þá orðinn þreyttur og sofnaði. Skipstjóri ljet þá flytja bíl hans um borð og sigldi á stað. Hugsaði liann seni svo, að bróður sínum mundi þykja' gaman að því að skreppa með sjer svona viku ferð. Skipið átti að fara til Curaco á hollensku Vestindíum. Þegar það lcom til Newport vaknaði Óli. — Hann afrjeð af fara i land með hafnsögumannsbátnum, en þá var það bíllinn; hann komst ekki á bátinn. Óli varð því kyr um borð. í Curaco ætlaði hann að fara í land og sigla þaðan til New York. En engin skipsferð var þangað þá, nje fyrst um sinn. Og bróðir haiis fekk þá skipun um að sigla til London. Óli afrjeð að fara með lionum þangað. I London dvöldust þeir bræðurnir fáeina daga, og Óli var að hugsa um að bregða s,]er yfir Norðursjóinn heim til Noregs, en hitti ekki á. neitt skip, ,em vildi taka bilinn hans. Og bróðir hans fullvissaði liann um að hann mundi bráðum fá skipun um að sigla til New York. En í þess stað fekk hann skipun um að sigla, til Curaco. Og næst fekk hann skipun um að sigla til Hamborgar. En áður en skipið færi þangað hepnaðist Óla að ná í skip, sem ætlaði að sigla til Bandaríkjanna og tók hann og bílinn með sjer- Ur hinni stuttu heimsókn Óla á olíuflutningaskipinu, varð tveggja mánaða sjóferð. Grindadráp í Atlantshafi. Skipverjar á færeysku skútunni „Mathildu“ sendu „Tingakrossur“ eftirfarandi brjef frá Grænlandi í sumar: — Vjer lögðum á stað frá Vági hinn 19. júní. TTpphaflega var ætlast til þess að vjer færum ekki fyr en eftir Jónsmessu (Joansvöku) — en svo kom kallið óvænt, að vjer ættum allir að vera komnir um borð liinn 19. júní. — Ungu mennirnir voru ekki í góðu skapi, því að þeir höfðu Idakkað mikið til þess að vera á Jónsmessuhá- tíðinni: Lítt grunaði oss þá að forsjónin hafði geymt oss að minsta kosti þrisvar sinnum betri skemtun. Vjer fengum ágætan byr vestur haf. Svo var það Jónsmessumorg- un, og var þá ekki laust við að margir öfunduðu þá, sem lieima voru og‘ gátu verið á hátíðinni. En þá heyrðist alt í einu kallað: „Grind!“ Allir þutu upp á þiljur og sumir gáfu sjer ekki tíma til þess að klæða sig. Þegar upp kom, sáum vjer að skipið var umkringt af stærri grindartorfu en vjer höfðum nokkuru sinni áður sjeð. Og hvalirnir voru eins spakir og heimalnings lömb. Vjer settum þegar bátana á flot, og vel út búnir að skutlum lögðum vjer til bardaga við hópinn. Þá var nú ekki verið að súta það! Á augabragði höfðu allir bát- arnir fest í hval, og þá „b.vrjaði nú ballið“. Hvalirnir tóku sprett- inn og drógu bátana á eftir sjer svo að freyddi yfir stefni. Hval- irnir rjeðu ferðinni og vjer urð- um bara að reyna að stýra og láta svo skeika að sköpuðu. Einn báturinn hafði fest í gríðar stór- um hval og hann var ekki lambið að leika við. Þetta minti á hval- veiðar forðum, þegar menn skutl- uðu stórhveli af bátum og ljetu

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.