Lesbók Morgunblaðsins - 26.11.1933, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 26.11.1933, Blaðsíða 1
Bála li i»f nin Eflir Jón við Ægisgarð. Þorlák$§on. ,,Höfnin er auðvitað undirstaða atvinnulífsins í bænum“. Þannig ljet merkur ítalskur blaðamaður um mælt við mig í sumar. Hann haí'ði ferðast land úr landi, og alls staðar reynt að kynna sjer sem best atvinnumálin og þjóðfjelagsmálin. Hið glögga gestsauga hans var auðvitað elcki lengi að átta sig á því, að í versl- unar- og fiskiveiðabæ eins og Reykjavík, er höfnin svo að segja frumskilyrði atvinnulífsins. En höfnin okkar er enn á ung- lingsaldri og ekki fullvaxin- í miðju umróti heimsstyrjaldarinn- ar auðnaðist bænnm að fullgera fyrsta hluta þessa mikla verks, skjólgarðana og hafnarbakka fyr- ir 2—3 millilandaskip. Rjett á eftir skullu yfir þetta fyrirtæki, eins og önnur, fjárhagsvandræðin ár kjölfari styrjaldarinnar. Samt tókst að halda hafnargerðinni á- fram, með aukningu á hafnar- bökkum og bryggjum, bráðnauð- synlegum götugerðum á hafnar- svæðunum og nú síðast með mynd- arlegri byrjun á traustum og vönd uðum vöruskáJum í stað hráða- birgðaskúra þeirra, sem menn hafa hingað til orðið að bjargast v:ð. En fram til siðustu áramotó hi'fðu mannvirki hafnarinnar ver- ið sniðin svo að segja eingöngu við þarfir verslunar- og vöru- flutninga annars vegar, og fiski- gufuskipa, aðallega botnvörpu- skipn, hinsvcgr.r. Fiskibátar liafn ávalt verið til hjer í bæ, róðrar- bátar fyr á tímum, vjelbátar síð- ari árin, sumir opnir en sumir þiljubátar. En þessi útvegur varð æ meir heimilislaus og á hrakn- ingi. eftir því sem hafnarvirkin fyrir stærri skipin færðust vit. •— iHinsvegar hafði verðfallið á fiski leikið togaraútgerðina svo hart síðustu árin, að vöxtur hennar virtist stöðvaður í bili. Þá var það að hafnarstjórnin um síðustu áramót hófst handa um |>að, að húa út innan hafnarinnar þá hentugti aðstöðu fyrir báta- útveg, sem hingað til hafði vantað hjer. Bátahöfnin við Ægisgarð er fyrsta sporið í þá átt, og verður vonandi ekki hið síðasta. Verkinu hefir miðað svo vel áfram, undir ötulli stjórn Þór- Kristjánssonar hafnarstjóra, að ‘það verður til- búið til notkunar í byrjun næstu vetrarvertíðar, þótt talsvert. A’anti á að <>11 hin fyrirhuguðu mann- virki verði þá fullgerð. Eins og uppdrátturinn sýnir, hefir verið gerð þarna uppfylling fram á grynslin næst landinu um 5500 ferm. að stærð. Fram af þess- ari uppfyllingu á svo að gera lang- an skjólgarð iir grjóti vestast — Ægisgarðinn — og er aðalverk- efni hans það, að skifta hinum víða vatnsfleti hafnarinnar svo að vindbáran og aldan frá hafn- armynninu verði stórum minni en nú. Fyrir austan Ægisgarðinn hafa verið gerðar tvær myndar- Þgar bátabryggjnr fram af upp- fyllingunni, og eru þær ætlaðar fyrir afgreiðslu fiskibáta þeirra, sem þarna hafast við- Til þess að tryggja þeim fullkomið skjól á legunni fyrir framan bátabryggj- urnar, er svo ætlast til að haf- skipabryggja verðj gerð austur frá Ægisgarðinum, og hún höfð lok* uð eftir því sem þarf til þess að sjórót berist ekki gegnum hana. Hugsað er til að breikka umferð- arveginn eftir garðinum út að þessari þverbryggju á sínum tíma ineð því að gera bryggju yfir grjótfláa garðsins að vestan eða austan, eða hvorttveggja. A uppfyllingunni er svo veríð að byggja verbúðir, þar sem út- gerð bátanna á að hafast við. —- Hver verbúð 9x12 m- að grunn- fleti, tvígólfa- A neðra gólfi er ætlað rúm fyrir salt, fyrir salt- aðan fisk sem svarar um V& mán- aðar afla og til þess að gera að. TTppi er ætlað rúm fyrir beitingu, veiðarfærageymslu og legurúm fyrir þá menn, sem þarna hafast við og þurfa að vera til taks að næturlagi. Gert er ráð fyrir að bátunum verðj leyft að hafa þarna geymslu fyrir veiðarfæri sín alt árið, þótt neðra gólfið verði að einhverju leyti tekið til annarar notkunar síðari hluta ársins, ef bátarnir þurfa þess ekki þann tíma. Aforinað er að koma upp ýms- um þægindum til þess að bæta aðstöðu hátanna þarna sameigin- iega, þótt ekki komist í frnin-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.