Lesbók Morgunblaðsins - 26.11.1933, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 26.11.1933, Blaðsíða 2
 /jESBÓK morgunblaðsins feSÍ 3m l» o 200*] ■ BATAHÓFNIN. Ægisgarður heitir hinn nýi skjólgarður, sem bygð- ur er vestur við bátahöfnina, sem myndast í krikanum milli hans og nýju liafskipabryggjunnar, sem í daglegu máli er nefnd „Sprengisandur“. A uppfyllingu í krikanum standa sjóbúðirnar og tvær bryggjur þar fram af, en svonefnd „Loftsbryggja" er austan við uppfyllinguna. Faxagarður er í daglegu máli nefndur „Langalína“. kvæmd fyrir næstu vertíð, og skal jeg geta um liið lielsta, sem komið hefir til tals. Akveðið má telja að flytja aðal- fisksölutorg bæjarins á þessa upp- fyllingu austanverða, og verður l>á að byggja þar afgreiðsluskýli í stað þeirra, sem nú eru við Tryggvagötu austan Pósthússtræt- is. Þar geta þau hvort sem er narimast verið til frambúðar. Með þessu er bátunum líka veitt sjer- staklega hagkvæm aðstaða til þess að nota sjer bæjarmarkaðinn fyrir nýjan fisk. Talað hefir verið um — og er talið nauðsynlegt — að sjá þarna fyrir kælihúsi, þar sem geyma megi bjóðin með beittum lóðum, þegar bíða þarf b.vrjar. Eðlilegt þætti mjer einnig að sjeð yrði fyrir frystihúsi til beitugeymslu handa þeim bátum, sem þarna haf ast við svo að þeir geti aflað sjer beitunnar á sem ódýrastan hátt, annað hvort með því að stunda sjálfir síldveiði til þess, eða með því að kaupa beitusíld á bentug- asta tíma. Eins og högum útgerðarinnar er nú háttað, má telja sjálfsagt að bátarnir selji nokkvrð af afl- anum jafnóðum, nýjan fisk til neyslu, og fullstaðinn fisk upp úr salti frá verbúðinni- En mjer er ljóst að mjög væri æskilegt að veita þessum útvegi aðstöðu til þess að þeir, sem hann stunda, gætu sjálfir annast verkun þess hluta aflans til útflutnings, sem þeir eru ekki neyddir til að selja þegar á vertíð. Enda ætti þetta- að vera vel kleift með samvinnu milli hlutaðeiandi útgerðar, hafn- arstjórnar og bæjarstjórnar. Bær- inn er eigandi að öllu því landi hjer í nánd, sem notað verður til fiskreitagerðar, og er einmitt nú að láta gera fiskreiti í stórum stíl. Geymsluhús og þvottahús þarf í sambandi við fiskreitina, til þess að smáútgerðin geti notfært sjer þá, og efast jeg ekki um að úrlausn finnist á því máli. Loks er þess að geta, að til Stuðnings bátaútveginum þarf að .sjá fyrir nægilegu og hentugu plássi innan hafnarinnar til báta- smíða og viðgerðar á bátum Er nú alveg nýlega byrjað á upp- fyllingu í vesturhöfninni, undan Bakkastíg, sem ætluð er til notk- unar í því skyni. Ef bátaútvegur skyldi aukast hjer fram úr því, sem rúmast, þarna við Ægisgarðinn, þá er til-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.