Lesbók Morgunblaðsins - 26.11.1933, Page 8
IiESBÓK M0RGUNBLAÐSIN8
:i68
Páll Erlingsson
sundkennari.
Fyrir 40 árum fluttist hingaS
til Reykjavíkur bóndi frá Ár-
lirauni á Skeiðum, Páll Erlings-
son, bróðir þjóðskáldsins Þor-
steins Erlingssonar. Þessi maður
bóf þá að kenna hjer sund, þessa
„íþrótt íþróttanna“, sem þjóðin
liafði gleymt að mestu leyti, Má
með rjettu kalla Pál brautryðj-
anda þeirrar íþróttar hjer á landi-
Páll hefir alla ævi verið fá-
tækur maður og átt við búsáhyggj-
ur að stríða, en þó voru þær
ljettar á metunum hjá því and-
streymi sem hann varð að berjast
við fyrstu árin hjer, þar sem voru
hleypidómar almennings og skiln-
ingsleysi á sundíþróttinni. Fanst
flestum þá að unglingar og æsku-
menn gæti gert eitthvað annað
þarfara heldur en að busla í vatni.
Og að konur lærði sund — það
var sú fjarstæða, sem ekki náði
neinni átt-
En sigursæll er góður vilji og
sannast það á Páli. Hann hugsaði
líkt og Múhamed, að úr því fjall-
ið vildi ekki koma til sín, þá yrði
hann að fara til fjallsins- Fór
hann því oft snemma á morgnana
niður að bryggjum, talaði við
verkamenn og hvatti þá til þess
að koma inn í sundlaugar og
baða sig, þótt ekki væri meira.
Og þetta hafði þau áhrif, að ýmsir
fóru að láta sjá sig í sundlaug-
unum og síðan hefir aðsóknin að
þeim aukist ár frá ári.
TTm 30 ára skeið kendi Páll sund
hjer og engum manni er það eins
mikið að þakka hvað sundíþróttin
hefir rutt sjer til riims hjer á landi.
Áhrifa hans gætir um land alt- —
Sigri hrósandi gekk hann af hólm-
inum með alþjóðarþökk fyrir vel
unnið starf. En þakkirnar einar
\erða ekki í askana látnar og
mætti Alþing vel muna eftir því
livað þjóðin á slíkum mönnum
að gjalda.
Vel skildi Páll við starf sitt þar
sem tveir af sonum hans, Jón og
Ölafur tóku við af honum og eru
mi fastir sundkennarar við Sund-
laugarnar í Reykjavík. Ern þeir
að allra dómi þeir bestu súnd-
kennarar sem völ er á hjer á
landi. Þriðji sonur Páls er Er-
lingur lögreglufulltrúi, fræknasti
sundmaður ]>essa lands, sá, sem
ljek það eftir Gretti að synda úr
Drangey til lands, og er það sund
fi-ægast hjer á landi-
5mœlki.
lengur. Nú höfum við gengið hjer
í þrjár klukkustundir og hvergi
eygist trje eða ljósker!
— Lítið nú á tvíburar, það var
svona fugl sem kom með ykkur.
Konungur Afghanistan.
Þegai- Nadir Khan kongur var
myrtur tók sonur hans Mohamed
^ahir Shah við konungsstjórn. —
Hann er aðeins 19 ára gamall.
Hjer á myndinni sjest hann í bún-
ingi óbreytts hermanns-
— Frænka, sagðirðu ekki að jeg
mætti eiga krónuna, sem þú mist-
n, ef jeg gæti fundið hana?
— Jú, barnið mitt.
— Þá á jeg hjá þjer 50 aura, því
að þetta var ekki nema 50-eyr-
ingur.
— Yiðbjóðslegí hundur!
— Andstyggilegi seppi!
— Jeg ætla að kaupa sápu,
segir strákhnokki, en það verður
að vera sterk lykt af henni.
— Vill mamma þín það?
— Nei, en jeg vil það, svo að
mamma geti fundið það á lykt-
inni að jeg hefi þvegið mjer, og
láti mig ekki vera að þvo mjer
aftur og aftur.