Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 12.08.1934, Qupperneq 6

Lesbók Morgunblaðsins - 12.08.1934, Qupperneq 6
262 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS land að landsýn sje, fyrir sunnan I’æreyjar, svo að sjór sje í miðj- um hlíðum, en fyrir sunnan Is- land svo að þeir hafi fugl og hval af. Hernar heita nú Hednan í Mangér í mynni Heltefjordens. Hvarf er suðuroddi Grænlands. Þegar þangað var siglt komu skipin ekki einu sinni við í ey- löndunum á leiðinni. Norrænir menn sigldu yfir út- höfin 500 árum áður en kristnar þjóðir gerðu það að nokkru ráði. Skipin voru ágæt. „Víkingaskip- ið„ sem Magnus Andersen sigldi á yfir Atlantshafið 1893, gat siglt 10—11 sjómílur á klukkustund, og stundum 9 mílur dag eftir dag. Skip þetta var smíðað eftir Gauk- staðaskipinu. En vjer skulum ekki gleyma því, að aðrar þjóðir, sem heima eiga fjarri Evrópuþjóðum fóru fræki- legri sjóferðir en nokkrir aðrir. Arabar, Kínverjar og Japanar hafa allir verið duglegir siglingamenn, en Malayar og Polynesíar taka öðr um fram. Þeir hafa fundið upp merkileg'a seglbáta, sem geta borið alt að 100 manns. Nokkuð til hlið- ar við þessa báta eru litlir bátar, sem festir eru á þá með borðum og styðja þá í sjávarróti þegar sigldur er beitivindur. Á þessum bátum fóru þeir yfir Kvrrahafið þvert og endilangt, frá Hawaii að norðan, Páskaeyjunnar. að austan, New Zealand að sunnan og sigldu svo jafnvel þvert yfir Indlands- haf vestur til Madagaskar. Það hefir auðvitað verið þeim mikil hjálp, hvað vindar eru stöð- ugir á þessum slóðum. En nokkr- ir af þessum siglingamönnun' fundu upp á því, að gera sjer nokkurs konar siglingakort vlr smáspýtum og' böndum. Slík sigl- ingaáhöld gat enginn notað sje skilið, nema sá, sem hafði búið þau til, eða kent öðrum að nota þau, til leiðbeiningar. Ymsir halda því fram, að Kol- umbus hafi á unga aldri komið til íslands og heyrt þar um Vínlauds- ferðirnar. En engar sannanir eru fyrir þessu. En þótt svo hefði ver- ið, þá var það samt glæfralegt af honum að sigla út á Atlantshaf, Bæn Disu Fyrir utan gluggan var sól og sumarglóð, því sjúkrahúsið móti yl og birtp. stóð. Þar brosti lítill garður er ribs og' reyni ól, en rósin ung og fögur, hún spratt við þeirra skjól. Og' fyrir innan gluggann var önnur sumarrós, með æskufölva vanga og döpur brúna ljós, hún vildi reyna að seilast. í sólargeisla þá, er sjúkrarúmið skreyttu og himnum komu frá. Sii rós var litla Dísa, hið unga yndisblóm, sem örlög mátta skapa hinn þunga reynsludóm, að liggja þarna veik, eins og visið bliknað strá, en vörsins gleði leiki og æskusöngva þrá- í fjögur ár hún hafði, þar liðið langa þraut, og' lífið var að fjara í smáum dropum braut , í dag er sólin brosti hún átján ára var, ög unga fagra rósin sín dauðamerki bar. Og sólargeislan bjarta hún bað svo undur vel, að brenna sundur þráðinn sem skyldi líf og hel. Og bera sál í hæðir með heitum geislastraum þar harmur allur breytist í fagran gleði draum. Sú bæn var heyrð, því áður en sól í sæinn rann, var sjúka lífið sloknað til ösku kveikur brann, Og litla Dísa hvíldi svo föl í sinni sæng, en sálin burt var flogin á geislans engilvæng. Við gluggann rósin döggvast af næturtárum tær. það truflar enginn kliður í greinum hvíslar blær. Og blómin loka augum í aftanskini hljótt, og unga rósin býður þjer, Dísa, góða nótt. Kjartan Ólafsson- því að á þeim árum var það talin vitfirring. Nú er alt breytt. 1 stað opinna trjeskipa eru komin stálskip; hreyfivjelar knýja þau gegn sjó og vindi, og sjómennirnir verða meir og meir verkfræðingar og vjelamenn. Tveir öldung'ar eru að spjalla saman: — Jeg er nú að verða alveg fótalaus, sagði annar, — Það er von, gamli vinur, sagði hinn, en þú verður að minn- ast þess, að við erum ekki áttræð- ir lengur. Hún; Áður en við giftumst kall- áðir þú mig altaf engilinn þinn, en nú kallar þú mig ekki néitt. Hann: Þarna sjerðu hvað jeg er skapstiltur.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.