Lesbók Morgunblaðsins - 30.09.1934, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 30.09.1934, Blaðsíða 4
316 LESBÓK MORGITNBLAÐSINS Ingibjörg H. Bjarnason. að námsmeyjarnar skyldn dvelja fleiri ákveðin ár í skólanum. Og annan erfiðleika þann ,að fjár- hagur skólans hafi enn eigi levft að lialda fasta kennara, aðra en forstöðukonuna. Þessum erfiðleik- um liefir ekki enn verið rutt úr vegi, og væri þó hvorutveggja til mikilla hagsbóta fyrir skólann. Árið 1905 var komið á fót kensludeild til að kenna hús- stjórnarstörf, matreiðslu og alls- konar innanhússtörf, og er þeirri deild enn haldið við. Hefir hún án efa gjört stórmikið gagn, og vfir höfuð verið vel sótt. Árið 1906 ljet frú Thora af skólastjórninni, og segir um það sjálf í ritgjörð sinni: ..Þá er jeg' hafði stýrt Kvennaskólanum í Rej’kjavík 32 ár. þorði jeg eigi sökum aldurs míns og heilsu að halda áfram lengur. Jeg ljet þv* skólastjórn af hendi við Ingi- björgu fröken Bjarnason, er jeg ber hest traust til- Mjer er kunn- ngt ]>rek hennar. þekking og dugn aður. Jeg' vona því að Kvennaskól- inn sje kominn í góðar hendur og nái miklum vexti og viðgangi und- ir stjórn hennar“. Og sú von hefir eigi brugðist. Fröken Ingibjörg hefir síðanstjórn að og stjórnar enn skólanum, með þeim áhnga á velferð lians. regíu- semi og' stjórnsemi, að liann liefir á flesta lund náð vexti og við- gangi í stjórnartíð hennar, nem- endum fjölgað, betri aðbúð (.g aukin kensla; hefir enn verið hætt við tilsögn í þýsku, svensku og bókfærslu, svo að ekki mun mjög skorta á. að nemendur með 4 bekkja prófi, standi á sporði þeim. sem lokið liafa prófi í gagnfræða- skólnm, auk hinnarmikluogágætu hannvrðakenslu. Má í því sam bandi geta þess, að á sýníng'unni, sem haldin var í nýja barnaskól- anum í vor, þótti hannyrðasýoing K vennaskólans afburðag'óð. I stjórnartíð frú Melsteð, telur liún að gengið liafi í skólann tíutil ellefu hundruð stúlkur, flestar að vísu í einn vetur, en ]>ó nokkrar tvo eða þrjá. Og nú var svo komið, að skóla- liúsið, sem í upphafi fullnægði þörfum skólans ágætlega, nægði nú ekki lengur fyrir námsmeyjar, sem fóru fjölgandi og fyrir híis- stjórnardeildina. Varð þá að samn- ingum við Steingrím trjesmið Guðmundsson, að hann reisti nýtt hús sniðið eftir þörfum skólans og leigði honum. Er það steinhús prýðilegt við Fríkirkjuveg. Þang- að var skólinn fluttur haustið 1909 og ]>á er eigandinn andaðist árið 1930. rjeðst forstöðunefnd skólans í að kaupa húsið, og fekk ábyrgð ríkissjóðs fyrir láni, er til ]>ess þurfti. Þegar er skólinn var fluttur í hið nýja hús, fjiilgaði námsmeyj- um, urðu 90 fyrsta veturinn. en voru árið áður 55. Þegar skólinn hafði starfað 50 ár liöfðu sam- kvæmt skýrslum heggja forstöðu- kvennanna um 2430 stúlkur setið í bekkjum skólans, einn eða fleiri vetur og 360 sótt hústjórnardeild. Fyrir þau 10 ár, sem síðan eru lið- in má bæta þar við um 450 í bekkjum, svo að liátt á þriðja þúsund (2880) konur hafa fengið mentun sína í skólanum. Má af því ráða hvert gagn hann liefir unnið þjóðinni á þessum tíma. Á sama tíma hafa í alt um 540 sótt hússtjórnardeildina, síðan hún var stofnuð. Að vísu eiga nú konur kost á að sækja aðra skóla, en óliætt er'að segja, að þær fá hvergi eins alhliða kvenlega ment- un eins og í Kvennaskólanum, svo að vænta má, að hann verði styrkt- ur til að koinast yfir þá erfið- leika, sem hann á eftir að yfir- stíga og að nokkru hefir að fram- an verið drepið á. Ríkissjóður lief- ir að vísu drengilega lagt til lians, var kominn upp í 31 þús. kr. á ári, en nú tvö síðustu árin 28.000, auk 1000 til fátækra sveitastúlkna. Og sömuleiðis hefir bæjarsjóður hækkað tillag sitt úr 500 kr., sem ]>að áður var, í 4000 kr. En enn vantar þó herslumun til þess að fullu gagni komi. Frumvarp var borið fram á Al- þingi um að ríkið tæki skólann að sjerr en það náði ekki fram að ganga. Talið að skólahaldið yrði með því dýrara, en viðurkent að ríkið teldi s.jer skylt, að legg.ja til nægilegt rekstursfje. Rekstri skól- ans er stjórnað af sjerstakri nefnd, sem valin var í upphafi eins og

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.