Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1934, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1934, Blaðsíða 11
LESBÓK MOTlGUNBLAÐSINS 411 inn, og segir að yður sje hjer gisíing til re'ðu. Húsakynnin eru ljeleg, en hann hefir ekki upp á betra að bjóða. Hann spyr hvort þjer viljið ekki kaffi og langar til að vita hvaðan þjer sjeuð. Jeg sagði honum að þjer væruð frá Kaliforníu, og þá sagði hann að það væri hin- um megin á hnettinum, og ósk- aði að guð væri með yður. — Ger.'ð svo vel að ganga í bæ- inn“. Mjer þótti vænt um þessar vingjarnlegu móttökur og tók innilega í hönd prestsins. Bað jeg Geir að segja honum að jeg þakkaði honum kærlega fyrir og vildi óska þess að hann gæti einhvern tíma heimsótt mig í Kaliforníu. En þegar hann heyrði það varð hann bæði hissa og skelfdur. Hann var ein- kennilegur og óframfærinn, presturinn — nokkurs konar lifandi múmía, sem hefir blikn- að í snjónum á íslandi. Hann kom einkennilega fyrir — í honum var sambland af mann- fælni, ótta og mannviti, eins og hann hefði alið allan aldur sinn meðal sauðkinda og bóka, og það hefir hann sennilega gert. Meðan jeg var að reyna að segja einhver vingjarnleg orð við hann, skimaði hann alt í kring um sig, eins og hann langaði til að skjótast í ein- hvern felustað. Jeg fór nú samt á eftir honum inn í göngin og til gestastofu. Þar bauð hann mjer sæti, og tylti sjer svo sjálf- ur á stólrönd eins langt frá mjer og hann gat án þess að fara í gegn um vegginn. Hann ávarpaði mig á dönsku, en þar sem það dugði ekki, þá breytti hann um og smelti á mig latínu, sem hann talaði jafn reiprennandi og móðurmál sitt. En þar rak mig aftur í vörð- urnar. Jeg hafði lesið aftur að Quosque tandem þegar jeg var drengur, en atburðir og ferða- lög höfðu mulið það alt úr höfði mjer. Jeg reyndi þýsku, en þá fór eins fyrir honum. — Hann skildi ekki orð í því máli. En nokkur orð í spönsku, sem jeg hafði lært í Mexiko og Kaliforníu, hjálpuðu mjer til að skilja sumt af latínunni hans og með þessum orðaforða reyndum við að taka upp sam- ræður. En þetta var þreytandi. Og eftir margar langar þagnir tók hann húfu sína og fór. LUKKAN tíu um kvöldið fór jeg að hátta. Það var ekkert athugavert við rúmið nema hvað það virtist hafa ver- ið smíðað handa manni, sem ekki hafði náð meðalhæð Ame- ríkumanna. Og það er hægt að sofa þótt maður hafi enga nátt- húfu. En hvernig í ósköpumrm á maður að geta sofið, þegar engin nótt er? Um miðnætti, þegar átti að vera niðamyrkur og draugar alt um kring, varð mjer l.'tið upp, og þá var bjart- ur dagur. Klukkan hálf tvö leit jeg upp aftur, og þá var sól- skin.Klukkan tvö fór jeg á fæt- ur og ætlaði að lesa í bókum prests, en þær voru þá allar á íslensku og ekki mjög skemti- legar fyrir mig. Klukkan þrjú tók jeg til starfa og lauk við nokkrar teikningar mínar. Og klukkan fjögur gafst jeg upp við það að sofa og labbaði upp í Almannagjá. BLEIÐINNI til Geysis kom- um við að bóndabæ. Þar hittum við bóndann og fjöl- skyldu hans. Allir, litlir og stórir, komu hlaupandi út til þess að horfa á komumenn. Bóndi og húsfreyja voru ágæt sýnishorn • íslenskrar bænda- stjettar, breiðleit, bláeyg og glaðleg, og ljóshærð. Þau voru í sundurleitum fatnaði. Börnin, sem voru milli tíu og tuttugu, voru öll með þessa glókoila, sem algengir eru á Norðurlönd- um, og voru í allskonar flík- um, sem þau höfðu komist yfir, gömlum fötum af foreldrum sínum, skinnleistum o. s. frv. Bóndi var ákaflega virtgiarn- legur og forvitinn. — Hann spurði Geir þúsund spurninga um þennan ,,herramann“ og svo bað hann okkur að s'.íga af baki og veita sjer þá ánægju „Allir, litlir og stórir, komu hlaupandi út til þess að horfa á komumenn". að koma inn og drekka kaffi — konan sín væri ekki nema fimm mínútur að hita það. En þar sem jeg vissi að fimm mín- útur á íslandi geta þýtt alt að fimm klukkustundum, þá af- þakkaði jeg boðið. Honum vii’t- ist þykja mjög fyrir því, og það var enginn efi á því að hann langaði til að veita okkur góð- gerðir. Ámi Óla þýddi lauslega. Jólapóstur. Póstarnir í f jallahjeruðunum eiga oft erfiða daga rjett fyrir jólin. Þá er pósturinn mörgum sinnum me:ri heldur en endra- nær, en ófærð oft mikil, eins og sjá má hjer á myndinni. -----«•>-------

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.