Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1934, Qupperneq 12

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1934, Qupperneq 12
412 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS losé Gers: Ölfusárbrú ♦ Bjöm L. Tónsson þýööi úr frönshu. José Gers er þektur belgiskur rithöfundur, ungur að aldri, sem hafði oft komið upp að ströndum Islands með belgiskum togurum, þegar hann loks fekk þá langþráðu ósk uppfylta að stíga fæti sínum á íslenska fold og kyymast landinu og ibúum þess. — Hann dvaldi hjer nokkrar vikur sumarið 1933 ásamt þremur öðrum Belgum, sem tóku kvikmyndir af landi og þjóð í því skyni að kynna löndum sínum og öðrum þjóðum lifn- aðarhætti Islendinga. J. G. er margt til lista lagt. Síðastliðið sumar hafði hann málverka- sýningu í Brússel og hlaut lofsamleg ummæli fyrir. Þar voru mörg málverk frá ís- landi, einnig frá Sahara. — Aðdáun hans á lslandi hefir ekki minkað við hans nánu kynni af því, og nú vinnur hann að skáldsögu, sem gerist að nokkru hjer heima. Hann yrkir bæði i bundnu máli og óbundnu. „Hjer gistum við í nótt“, seg- ir fylgdarmaður minn. Við erum staddir á vegamót- um úti á víðlendri sljettu, um- kringdri slokknuðum eldfjöll- um. Nokkur gulleit timburhús: tvær búðir, pósthús og jám- klætt gistihús, langt og mjótt. Við stígum af baki. Litlu hestarnir okkar hrista sig eins og rennblautir rakkar, skokka niður að ánni, sem renn- ur milli grösugra bakka, og gufuna leggur upp af hárum þeirra. Á morgun leggjum við af stað til Heklu, en þangað eru tvær dagleiðir á hesti. Rjóð og ljóshærð stúlka stendur á þrepskildi gistihúss- ins og býður okkur inn. Það er liðið að miðnætti. En himininn er stjörnulaus: Það er hin bjarta nótt heimskautabaugsins. Jeg lít á kortið mitt. Staður- inn heitir ölfusárbrú .... ölbusárbrú! .... Alt í einu tekur hjarta mitt snögt við- bragð. Jeg er hingað kominn, á þennan einmanalega áfanga- stað, eftir erfiða dagleið. ölfus- árbrú .... Og nafn þetta vek- ur hjá mjer svipaðar endur- minningar og sæi jeg vin eftir langan skilnað. Vegir þessa undralands, Islands, hefðu get- að leitt mig til ótal annara staða. En atvikin hafa hagað því svo, að fyrir valinu varð einmitt þessi. Kynlegar ástæður eru til þess, að nafn hans er mjer gamal-kunnugt. Við að sjá nafn þetta á kort- inu hvarf samstundis hinn kuldalegi og drumbslegi svipur, sem hvíldi yfir staðnum, er jeg nálgaðist hann. Þessi óvænta uppgötvun hefir tengt okkur vináttuböndum. Og jeg kannast við gistihúsið, ungu stúlkuna rjóða og ljóshærða, sem stend- ur á þrepskildinum, jeg hefi þegar sjeð alt þetta áður. En sú furða, að jeg skuli hafa rekist einmitt á þennan stað! . . . . Þetta er heil saga! Jeg man hana næstum altof vel. — Það var í júlí 1927, um borð í ,,0.99 Jeanne“, 200 smálesta togara, belgiskum, gerðum út til veiða í Norðurhöfum. Við vorum rjett komnir fram hjá Reykjanesi, þar sem bin ægi- legu sker, Eldey og Fuglasker, morandi af fuglum, rísa upp úr djúpinu líkt og risavaxin skips- flök. „Ennþá 60 mílur“, sagði gamli skipstjórinn og leit á hraðamælinn, „og þá skulum við sjá, hvort nokkur þorsk- branda er ef.ir í þessu bann- setta, guðlausa landi“. Við sátum á handriði aftur á, hlið við hl'.ð. Hafið var spegil- fagurt og sljett eins og út- strengd vatnslitamynd. Kjölfarið dró beina braut í kyrran haf- flötinn, dökkgrænan og silfur- glampandi. Yfir hann liðu skuggar skýjanna til og frá. Kría ein, sem leit út eins og snjókúla með lítinn, svartan, þrístrendan stein í nefs stað, hitaði sjer á masturshún’num, sem naumast haggaðist, og gaf við og við frá sjer þrjá stutta, skerandi skræki, þrjá mjóa tóna, sem rufu óþægilega hina bláu þögn. Á stjórnborða eygð- um við land, en Faxaflói lá á milli og bægði því frá.Við höfð- um sett stefnuna beint á Snæ- fellsjökul, því að þar ætlaði skipstjórinn að reyna, „hvort nokkur þorskbranda væri eftir í þessu bannsetta, guðlausa landi".

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.