Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1934, Qupperneq 18

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1934, Qupperneq 18
418 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS þar er ekki fátækt, en þó er húsið grátt af elli og reyk, bæði veggir, loft og gólf. — I stofunni er bara stundaklukka og hár skápur, blá- og brún- málaður. Þegar faðirinn lítur fyrst til dyra sjer hann ekkert nema bjálkana og fjalirnar. Hann horfir aftur á dóttur sína. Andlitsdrættir hennar eru í æsingi og hún starir til dyra. — Hjá dyrakarminum — segir hún, og nú sjer hann að eitthvað stendur við dyrnar, sem minnir mest á hálffallið trje. Faðirinn getur ekki sjeð hvað þetta er, þetta trjelÍKan er þakið trjáberki og skinn- druslum og undan þeim koma tveir fætur í ljós. Það eru mannsfætur, þó þeir sjeu svo magrir að ætla mætti að tærn- ar dyttu af. Alt í einu skilur hann hvers- vegna hann sá ekki strax hvað þetta var. Veran, sem stendur við dyrn- ar er með langt, grátt hár og hárið byrgir andlitið. Hönd jafnmögur og fæturnir ýtir hárinu til hliðar og augu gægjast fram, áþekkust augum dýrs, er starir út úr fylgsni sínu. — Þetta er kvenmaður, hugs- ar faðirinn með sjer, þegar hann sjer hárið. — Hún hefir átt heima í skóginum með ein- hverjum útlaga. Þessvegna er hún klædd trjáberki og skinn- ræflum. En hversvegna er Magnhild- ur hrædd við hana? Ekki get- ur hún gert ilt af sjer, þessi vesalingur. Magnhildur heldur kannske að hún sje óvættur. Hann snýr sjer að dóttur sinni til þess að kyrra hana. Hún er staðin upp. En hún starir í síellu á veruna við dyrnar. Fað rin skilur ekki í þessu. Dótiir han3 er ekki vön að hræðast birni nje óvætti. Hann lítur í kringum sig í stofunni. Allir horfa til dyra. Þarna er sonur hans, drengur rúmlega 15 vetra. Hann hefir aldrei sjeð svo kynlega veru fyr og honum liggur við hlátri. En tengdasonur hans er reiði- legur og er staðinn upp. Hver svo sem er nú þarna, þá er hann maður til að verja hús og heimili. Gömlu vinnukonurnar eru hræddar. Þær hnipra sig saman við ofninn og byrgja augun, og minstu börnin leita til þeirra, og þau gráta og fela andlitin í kjöltum þeirra. Það getur gamli maðurinn skilið. Það er ljett verk að hræða börn og gamalmenni. En Magn- hildi? Faðirinn sjer, að allir eru að bíða eftir því, hvað hann geri, og nú stendur hann upp og ræskir sig.En Magnhildur dreg- ur hann aftur niður í sætið. — Uss, uss, segir hún. Og faðirinn, sem ekkert vill aðhaf- ast fyr en hann veit hvað um er að vera, situr kyr. En gifta dóttirin stendur upp. Hún gengur til dyra, stendur kyr, gengur eitt skref aftur á bak og stendur aftur kyr. Útlit hennar bendir til þess að hún sje að vaða eld og bjarga eignum sínum. En þegar hún er komin tvö skref frá verunni, snýr hún við, og sest aftur við hlið föður síns. — Mjer finst jeg þekkja hana, segir hún ofurhægt, eins og hún væri að tala við sjálfa sig — en það er ómögulegt! — Þekkja hana? Hvað á hún við? Hvernig getur hún þekt ■það, sem þannig er útlits? Það er fyrst nú, að veran fer að hreyfa sig. Með þungum stunum dregst hún eftir hálm- þöktu gólf'nu. Hún er óslöðug í gangi. Hún kemur ekki ná- lægt nokkrum manni, en geng- ur að stundaklukkunni, sem stendur úti í horni. Hún nemur staðar — horfir — hlustar lengi. Gifta dóttirin verður aftur óróleg. — Pabbi, segir hún — klukk- an var ekki komin, þegar Urð- ur týndist. Getur það verið, að það sje hún? • Fað.'rinn ræskir sig enn. Nú, það er þá Urður, sem Magn- hildur er að hugsa um, eldri systirin, sem hefir verið týnd í 10 ár. Gat það verið, að þetta væri Urður? Faðirinn spýiir út úr sjer með fyrirlitningu langt fram á gólfið. Það er eins og hann spýti frá sjer hugsuninni. Urður, sem var svo lagleg, ljÓ3 og rjóð í kinnum, með glóbjart hár, ung og yndisleg! — Þetta er hungraður kerl- ingaraumingi ofan af öræfum. — Það er fásinna! Tengdasonurinn hreyfir sig dálítið eins og hann vildi spyrja og húsbóndinn kinkar kolli til samþykkis. Það er best að losna við þenna vesalings fáráðling. Magnhildur getur gefið henni matarbita, og hún getur sofið úti í fjósi, ef hún fer þá ekki lengra. Veðrið er milt, snjó- laust, svo að henni verður ekki kalt. Við getum ekki notið helgi hátíðarinnar meðan brjál- uð manneskja er á ráfi um stof- una. En skipunum föðursins er ekki hlýtt. Magnhildur gengur til manns síns. — Þekkir þú Urði ekki held- ur? Maðurinn kippist við. Það grípur hann geigur. En svo bít- ur hann á vörina og getur naumast varist hlátri. Þetta Urður! Ef nokkur þekti hana, þá ætti það að vera hann. Fyrir 10 árum ætlaði hann að giftast henni. Hún hafði horf- ið viku áður en brúðkaupið átti að fara fram. Enn einu sinni horfði hann á hana. Þetta var gömul, út- slitin mannvera, kengbogin, gráhærð og andiitsbjórinn allur í hrukkum. Hann var forviða á því, að Magnhildur skyldi láta sjer detta þetta í hug. E.a Magnhildur hafði altaf verið hrædd um að systir hennar kæmi aftur. Henni fanst hún vera í sætinu hennar, síðan hún giftist honum. Þó að 10 ár væru liðin, gat hún ekki trúað því, að Urður væri dáin. — Hvað á jeg að gera, þegar Urður kemur aftur og sjer að jeg er gift unnusta hennar? — Ókunna veran er hætt að horfa á stundaklukkuna, en gengur inn 1 stofuna. Hún

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.