Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1934, Page 24

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1934, Page 24
424 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Myndagáta („rebús'). Verðlaunagáta. Myndagátur eru sjaldgæfari í íslenskum blöðum, en vera skyldi, bví margir hafa ánægju af því að leysa slíkar gátur, sem birtast í erlendum blöðum. Hjer birtist ein myndagáta, og heitir blaðið f.mm verð- launum fyrir rjetta lausn — ein 25 kr. verðlaun, ein 10 kr. og þrenn fimm króna verðlaun. Hlutkesti ræður hver fær verðlaunin. þeirra er rjetta ráðn- ingu sendir til blaðsins í lokuðu umslagi fyrir 6. janúar, merkt „Myndagáta.“ Ráðningin er að sjálfsögðu samfeld setning, og birtist hún í Lesbók, ásamt nöfnum þeirra, er verðlaunin fengu. SmŒlki. I Chicago er fjöldi kaþólskra manna og þar eru margir kaþólskir bisk- upar. Hjer á myndinni sjest erkibiskupinn Cicognani, þar sem hann er að óska öðrum biskupi til hamingju á starfs- afmæli hans innan kirkjunnar. — Hvað ertu gamall, drengur minn? spurði gamali maður. — Það veit jeg ekki. Mamma var 24 ára þegar hún átti mig, en nú er hún 23. Hún: Georg, jeg er viss um það að þessi stelpa er að gefa þjer undir fótinn. Hann: Já, elskan mín, það er víst best að jeg fari til leik- hússtjórans og kæri það fyrir honum. Hátíð í Sevilla. Á Klemensmessu er á hverju ári haldin hátíð í borginni Se- villa á Spáni til að minnast þess er borginni var bjargað undan yfirráðum Serkja árið 1248. Fer þá fram skrúðganga um borg- ina og ber preláti þá í farar- broddi sverð Ferdinands kon- ungs þriðja, er bjargaði borg- inni. — Þetta kalla jeg vel af sjer vik ð! Hatturinn á einni grein, regnhlífin á annari og þjer á þeirri þriðju! Jeg skal ábyrgj- ast að þjer getið ekki leikið þetta aftur.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.