Lesbók Morgunblaðsins - 30.12.1934, Side 4

Lesbók Morgunblaðsins - 30.12.1934, Side 4
LESBÓK MOKGUNBLAÐSINS 428 mjög á sinn veg hvorum að þeir hœttu að skiftast á brjefum*. Samson var duglegur og mjög sýnt um fjármál, varð og efnað- ur maður. Hann andaðist 1933. Friðrik Bjarnason er fæddur að Tungu 4. júlí 1851. Atta ára gam- all fluttist hann að Katadal með foreldrum sínum. Þar misti hann móður sína 12 ára gamall. Ári síðar, 1864, fluttist Bjarni faðir hans að Hlíð á Yatnsnesi, en syst- kinin Sigurbjörg og Friðrik vist- uðust þá að Tungu. Leið þeim þar miðlungi vel. Eftir eins árs dvöl þar, fluttust þau að Ásbjarnar- nesi til Ásgeirs Einarssonar al- þingisinanns og Guðlaugar Jóns- dóttur ,,og voru þar tvö ár í yfir- læti“. Þaðan fluttist Friðrik að Hlíð til föður síns. Bjó Bjarni þá með Kristínu Jóhannsdóttur, og segir Friðrik svo síðar, að hún hafi verið þeim systkinum eins og góð móðir. Til Kanada fluttist Friðrik 1874 með föður sínum og systkinum. Haustið 1875 kvæntist hann Mildfríði Árnadóttur frá Grafarkoti á Vatnsnesi Sigurðs- sonar. Lengst bjuggu þau í Pembina- fjöllum og Wynyard bygð og þar andaðist Mildfríður 9. október 1911. en Friðrik lifði til 1927. Þeim Friðriki og Mildfríði varð átta barna auðið. Dóu tvö í æsku, og lifa fimm þeirra enn. 1 endurminningum sínum frá Garðar segir Stephan G. Stéhp- ansson skáld svo um Friðrik: „Hann hefir verið og er skýr- leiksmaður á marga lund. Um eitt skeið ævinnar fekst hann nokkuð við smáskamtalækningar og þótti takast vel. Andlegum og íslensk- um fjelagsmálum he'fir hann ævin- lcga verið lilyntur. Hann hefir á- valt tekið mikinn þátt í fjelags- málum sveitar sinnar. Hann er frjálshyggjumaður í besta skiln- ingi þess orðs“. Friðrik var greindur maður og prýðilega hagmæltur, og róma þeir er þektu hve gott hjónaband þeirra Mildfríðar var og heimilið glaðvært, þó þar væri aldrei mikl- * Þessi brjef Samsonar voru til á Illugastöðum til skamms tíma. um efnum td að tjalda. Mildfríð- ur var mjög dugleg kona, eins og henni stóð ætt til, en Friðrik var veikbygður maður og heilsulítill, og þoldi illa vosið og erfiðið, sem fylgdi landnámsárunum. Hefir það að sjálfsögðu gengið hart að Friðrik, því á einum stað lýsir hann því svo: Kuldasteytings frost og fjúk feril dimman næddi. Þó var hann alla tíð þess um- kominn að gefa þeim hlýju og gleði er næst stóðu honum. Því unna honum allir, sem einhvern- tíma þektu hann. — Því ver hef jeg ekki fengið afskrift af ljóða- syrpu hans, en set hjer aðeins eina vísu, líklega hans síðustu, því hún lýsir honum nokkuð: Vinir, ekki hafið hátt hinst er kveð eg foldu — en fellið blóm að leiði lágt lík þar fer í moldu. Sígtirður og Helga. Jeg get ekki skilið við þessar sagnir um Katadalsfólkið svo, að tilfæra ekki fáeinar vísur eftir Sigurð Bjarnason. Eru þær að mestu teknar af handahófi og sýna því nokkurnvegin hagmælsku hans. Á barnsaldri orkti Sigurður þessa vísu: Höttótt rolla og rauður klár reyna að tolla saman. Laufaþollum leit við fjár líst það skolli gaman. Þessar vísur, ósamstæðar, lýsa Sigurði nokkuð, skoðunum hans og hugsunarhætti: Innra-manninn ef að sjá ertu fast í sólginn, augun skoða áttu þá, andinn þar er fólginn. Til að þekkja þankann hreint þetta eina dugar; augun geta engu leynt eðlisfari hugar. Fyrst þú auður firrist mig farðu hvert þig lystir. Ekki skal jeg elta þig, aðra meira þyrstir. Þú á lífsins völtum veg vanda mörgum semur. Minnar sálar auðinn eg elska langtum fremur. Reyndu flárra’ að forðast stig, falsi mægjast tregur; vinskap fárra festu þig, fre3tum þægilegur. Heims um glaum jeg hirði’ ei neitt, hann því vil afsegja; jeg i guði girnist heitt glaður lifa’ og deyja. (Líklega síðasta vísa Sigurðar). Sigurður kom þar inn í Reykja- vík er menn voru kliptir. Vildu þeir að hann ljeti einnig klippa sig, því hann var orðinn loðinn. Kastaði hann þá fram þessum vísum: , Ljós á brá og mjúkhent mær, máluð klárum sóma, skar mitt hár þá skildum vær — skærri báruljóma. Koll þó lýða klippi hjer klaka hliðir mundar, hárið síða’ á höfði mjer hennar bíði fundar. Kunnar eru nokkrar vísur Sig urðar, sem sýna að hann óraði fyr- ir endalokum sínum: Hrollur króar hyggjubæ, helst sem þróar trega, þegar sjói sjeða fæ svona ógalega. Þá vill grunur glæðast minn geigblöndunarstrangi, að jeg muni síðsta sinn sjóriðunum fangi. Síðar var það, að hann kvað og nefnir „Svefnvísu". Finn jeg vanda þrjóta þráð þegar landið hverfur. Sjóarandlát sætt er tjáð; sá mjer blandast skerfur. Ekki var Sigurður einhliða í Ijóðum sínum, þótt flest sje það alvarlegt, sem birt hefir verið eft- ir hann. Set jeg hjer nokkrar vís- ur, sem þetta sanna, sína tir hverri áttinni. Þessar nefnir hann Óyndi. Hjer er drungaeðli inni. — Eg fæ sungið ljóð svo að þungum þanka linni — þó miðlungi góð. Farðadallar hjer þó hjá sjer happa galli seim, jeg rek aila ólund frá mjer, yndið kalla heim,

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.