Lesbók Morgunblaðsins - 02.06.1935, Qupperneq 1
22. tölublað.
orgtmMaðsins
Sunnudaginn 2. júní 1935.
X. árgangur.
Kötlugosið 1625
og jökulhlaupið mikla úr Mýrdalsjökli.
Eftir Þorstein Magnússon, sýslumann á Þykkuabœjarklaustri.
Þorsteinn var á unga aldri við lærdómssakir og gerðist
hinn lögvitrasti maður. Mun hann þá hafa framast utan-
lands. En hingað til lands var hann kominn 1605.
1656 í júnímánuði deyði Þorsteinn og þótti verið hafa
ágætur maður í flestu. Hann var haldinn kvennhollur og
hjeraðsríkur, en spekingur í lögum. (Sýslumannaæfir eftir
Boga Benediktsson á Staðarfelli, IV. bindi.)
Jeg vil yður öllum (þeim til
guðs ótta og iðrunar uppvakn-
ingar, er sína sáluhjálp og það
eilífa líf framar elska og kærara
hafa vilja heldur en þennan vonda
og fallvalta heim, eður edífa for-
djörfun) í Jesu nafni kunngera
það ljósasta og sannasta jeg af
veit hvernig til hefir gengið á
þessum nýs umliðna tíma um þá
mikið stóru og hræðilegu, fásjeðu
landsfordjörfun, undur og ógn-
anir, sem skeð hefir og orðin er
jörðum, landi, túnum, engjum og
úthögum hjer um Austurlandið,
út frá Mýrdal að vestan og aust-
ur svo langt í Fljótshverfi, sem
tdspurst hefir. Hvað skeð hefir af
þeim mikla eldgangi, jökulhlaupi,
öskufalli, sandflaug og grjótkasti,
er komið hefir úr þeim jökli og
fjallgarði er liggur á bak við, eð-
ur norðaustast við austanverðan
Mýrdal í Skaftafellsþingi, hvor
fordjörfanleg fádæmi yfirgengið
hafa tvær heilar sveitir eður hjer-
uð og þær að mestu eytt og for-
djarfað, og allra mest með fjall-
bygðum, svo ei munu framvegis
um nokkur eftirfylgjandi ár bygt
nje bælt verða (þótt guð um
stund landi og lýðum með líf,
hefð og magt halda vdji) sem er
fyrst og sjerdeilis Alftaver sem
Þykkvabæjarklaustur með IV
jörðum í liggur, hvar eð allra
fyrst jökulhlaupið og vatnsflóðið
yfir gekk, sem síðar segir. Þar
næst Tungusveitin, í sama hrepp,
hverja að sandurinn og öskufallið
(að jeg meina) með öllu nær eytt
hafa, því þar var sandur og aska
að leggjabandi á sljettu. Þar næst
alt nærri Meðallandi í sama
hrepp, en sunnanvert er það líð-
anlegt þar kom ei svo mikið af
öskunni og mýrarnar og flóðin
drukku betur í sig en harðlendið.
Item og í sama máta KLeifar-
þingsókn eður Kirkjubæjarklaust-
urshreppur austur með fjalli, á-
samt Landbroti fyrir sunnan
Skaftá, eytt og fordjarfað, svt'
engir hagar uppi eru, fást nje
finnast, hvorki fyrir sauð nje kap-
al, svo björg megi að verða, ut-
an alleinasta í Meðallandinu og
Kötlugos.