Lesbók Morgunblaðsins - 01.09.1935, Blaðsíða 5
LESBÓK MORGFNBLAÐSINS
277
Thule-nýlendan í Grænlandi
Nýlega fór Grænlandsfarið
„Disko“ frá Kaúpmannahöfn til
Grænlands, og tóku margir sjer
far með því til þess að kynnast
Grænlandi. Myndin er tekin rjett
áður en skipið leggnr á stað.
Fremst á henni til vinstri sjest
Daugaard-Jensen, forstjóri græn-
lensku stjórnarinnar. Fór hann
með skipinu eftirlitsferð til græn-
lensku bygðanna. Til hægri er
mynd af Hanne Rasmussen, dótt-
ur Knud Rasmussen. Hún ætlaði
að fara lengst allra farþeganna.
Förinni var heitið norður til ný-
lendunnar Thule, sem faðir henn-
ar stofnaði. Þar vildi hún vera
við stödd hátíðahöld, sem
fara fram í tilefni af því, að nú
eru 25 ár liðin síðan að nýlendan
var stofnuð.
Daugaard-Jensen. Henni Rasmussen.
Bústaður landstjórans í Thule.
Eins og áður er sagt voru
fyrir skemstu 25 ár liðin
síðan Knud Knud Rasmussen stofn
aði nýlenduna Thule í Norður
Grænlandi, hjá North Star Bay,
norðan við Kap York. Er nýlendan
á 7ú gráðu 33 mín. norðurbreidd-
ar. Á þessum slóðum býr sjerstök
kynkvísl Skræligja, sem nefndir
era Pólskrælingjar. Yissu menn
ekki fyr en árið 1818, að enskur
landkönnuður kom þangað, að þar
væri bygð.
Á 25 ára afmæh nýlendunnar
var þar mikið um dýrðir og við
það tækifæri var afhjúpaður þar
minnisvarði af dr. Knud Rasmus-
sen.