Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.1935, Qupperneq 8
344 LiÉSBÓK MORGUNBLAÐSINá
Þetta er hin fyrsta flugvjel, sem stigin er, líkt og reiðhjól, og
þannig knúin áfram. Það eru tveir þýskir verkfræðingar, sem
hafa fundið hana upp. Á reynslufluginu fór hún um 200 metra og
aðeins í 5 metra hæð yfir jörð.
Gengið yfir Svalbarða.
í sumar voru fjórir norskir
veiðimenn frá Tromsö settir á
land í Lómafirði, norðaustan á
Svalbarða. Skip átti svo að sækja
þá í ágúst, en komst ekki alla
leið vegna íss. Leið nú og beið
fram að septemberlokum. Þá
komst skipið til Lómafjarðar, en
greip í tómt. Veiðimennirnir
höfðu lagt á stað daginn áður
og ætluðu að ganga yfir fjöll og
firnindi til Longyearþorps á
suðvestanverðum Svalbarða, og
er sú vegarlengd 200 km.
Mennirnir komust alla leið
heilu og höldnu, en hálfan mán-
uð voru þeir á leiðinni. Urðu
þeir að fara yfir 2000 metra há
fjöll og landsvæði, sem enginn
maður hefir farið um áður. Urðu
þeir altaf að liggja úti og hreptu
mikla kulda. —
Þar sem innbrot hafa verið
framin í París að undanförnu,
hafa húsráðendur fengið brjef
með tilkynningu um það, að brot-
ist verði inn hjá þeim aftur. Það
komst upp að það var firma, sem
selur þjófalása, sem sendi þessar
tilkynningar.
5mœlki.
r
— Jeg segi að þú sjert svona
af öli, en óli segir að það sje af
bauta. Hvor hefir á rjettara að
standa?
— Fyrir fimm árum týndi jeg
úrinu mínu og vissi ekki hvernig
í ósköpunum jeg hafði farið að
því.
— Nú?
— Jeg leitaði og leitaði, en var
engu nær. En í gær fór jeg í
vestið, sem jeg var í þá, og hvað
heldurðu að jeg hafi fundið?
— Úrið.
— Ónei, jeg fann gatið á vas-
anum, sem úrið hefir farið út
um.
Frúin klykti út lagið með
þrumum og gjallanda.
Þetta var „Bani Siegfrieds“
mælti hún.
— Því trúi jeg veh góða mín,
sagði inaður hennar.
— Hvað heldurðu að svona
fíll kosti?
— Afskaplega mikið. Jeg vildi
bara að jeg ætti svo mikla pen-
inga, að jeg gæti keypt hann.
— Keypt hann? Hvað mynd-
irðu gera við hann ?
— Ekkert. Jeg vildi bara að
jeg ætti svo mikla peninga.
— Fríða, jeg hefi heyrt lag-
lega sögu um manninn þinn.
— Blessuð lofaðu mjer að
heyra hana. Jeg þarf að láta
hann gefa mjer vetrarkápu.
— Inga, hvers vegna viltu alt-
af láta ömmu þína gefa þjer inn
meðalið? Jeg get alveg eins vel
gert það.
— Nei. Amma hellir mestu ut-
an hjá.
I rúmlega 100 ár hefir verið
ófriðarástand milli stjórnarinnar
í Bandaríkjunum og Semino-
Indíánanna í Florida. En nú ný-
lega eru sættir á komnar. Sjást
hjer á myndinni höfðingi Indíán-
anna og Ickes, innanríkisráð-
herra, þar sem þeir eru að ræða
um friðarskilmálana.