Lesbók Morgunblaðsins - 05.01.1936, Page 2

Lesbók Morgunblaðsins - 05.01.1936, Page 2
2 1 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ekki það að kynnast landinu st*m ferðamaður, heldur hafði hann hu{tsað sjer að ger- ast stórhóndi á Islandi. — Frjetti hann nú að jörðin Hvítár- vellir í Borgarfirði mundi föl, og fór liann þá þangað upp eftir um vorið. Keypti hann jörðina og búið af Andrjesi Fjeldsted fyrir 36 þús. kr. Var kaupsamningur- inn gerður 21. maí og tók hann þá þegar við búi og búslóð. Samkvæmt kaupsamningnuni fylgdi þessi kvikfjenaður: 7 kýr mylkar, 2 kvígur, 1 naut, 1 ung- neyti. 5 hestar, 4 hryssur, 2 folar (2. og 3. vetra), 3 tryppi vetur- gömul, 109 ær, 93 gemlingar, 13 hrútar veturgamlir og 4 eldri. Það varð og að samningum að Sigurður, sonur Andrjesar Fjeld- sted, nú bóndi í Ferjukoti, yrði ráðsmaður barónsins og gengdi Sigurður því starfi í tvö ár. En vinnufólk það, sem fvrir var, fylgdi bviinu. A sumrin var þar margt kaupa- fólk, og var tíísli Þorbjarnarson búfræðingur verkstjóri þar. um sláttinn. Munu þá hafa verið þar í heimili um 30 manns. Það er mælt, að baróninn hafi jafnan sjálfur viljað sjá það fólk, sem ætlaði að ráðast til hans. Þóttist liann vera svo mikill mannþekkj- ari að hann gæti sjeð á því hvort það mundi vinna sjer trúlega. Annars ljet hann verkafólkið alveg afskiftalaust, og talaði aðeins við ráðsmann sinn eða verkstjóra, er liann vildi hafa einhver afskifti af búskapnum. og voru þá margar tilliigur hans þannig. að vel var hægt að taka þær til greina, þótt ókunnur væri hann öllum búnað- arháttum hjer og íslenskri veðr- áttu. Tei jeg sennilegt að hann hafi opnað augu ýmissa manna fyrir því að vjer íslepdingar gæt- um lært þó nokkuð af búskapar- lagi annara þjóða, að breyttu breytanda, enda þótt það yrði hon- um . sjáJfum ekki til gengis. Eins og áður er sagt var hann ljúfmannlegur í umgengni, en af verkafólki sínu krafðist hann fullr ar virðingar, og heimtaði það t. d. að karlmenn tæki ofan, þegar þeir ssei sig, við hvaða verk sem þeir væri. Tlla var honum við alla hnýsni. Einu sinni gerðu piltar það að gamni sínu að senda til hans einfalda en framhleypna kauj»akonu að spyrja hann um það hverra manna hann væri, vegna þess að þeir þóttust ekki vita nein deili á þessum einkennileg i mtnni. Baróninn leit aðeins við henni o<r mælti: „Vitið þjer ekki að þ«o er ljótt að spyrjaf* Hús bygði hann handa sjálfum sjer á Hvítárvöllum og hafðist þar aðallega við þegar hann var heima, en það var sjaldan lengur en hálfan mánuð í senn, því að hann virtist eirðarlaus og vildi altaf vera á ferðalagi. Á veturna dvaldist hann laug- dvölum í Reykjavík, en heimtaði að hann væri sóttur þangað hvern- ig sem á stóð. Varð þá að flytja hann á skipi upp á Akranes, og hafa þar til hesta, er hann gæti farið á heim að Hvítárvöllum. Voru þessi ferðalög hans dýr, og báru rneir vott um að í honum byggi eirðarlaus sál, heldur en fjáraflamaður og framsýnismaður. I fylgd með lionum var nnglings piltuf, sem hjet Richard Leciiner og var talinn fóstursonur hans og • ritari. Þeir voru oftast saman. — Fekk baróninn sjerstaka ráðs- konu fvrir |»á að Hvítárvöllum. Það var Elísabet Árnadóttir, sem seinua giftist Sig- ui ði Fjeldsted og er nú liús- freyja í Ferjukoti. Var baróninn liitm inesti sælkeri og helt sig vel í mat <>g drvkk. Átti hann jafuan -ærnar birgðir af áfengi, sem liann pantaði frá útlöndum. Kvaðst hann ekki geta borðað nema því aðeins að liann hefði vín með mat. Stofnandi fyrsta mjólkur- bús á íslandi. Um þessar mundir fekk bar- ÓTiinn þá hugmynd að setja á stofn kúabú í Reykjavík. Bygði hann þá fjós hjer fyrir 40 kýr, og gekk það undir nafninu Barónsfjósið, og út af því fekk Barónsstígur nafm sitt. Til þess að fá kýr í þetta fjós, seldi hann sauðfje á Hvítárvöll- um og ljet svo kaupa kýr hingað og þaugað, austan við fjall, í Mos- fellssveit og víðar, en fekk aldrei nema -20. Ætlaði liann svo að græða á því að selja mjólk í bæ- inn. En mjólkurpotturinn kostaði þá ekki nema 15 aura, kýrnar vonx víst mestu gallagripir og dýrar á fóðrunum. Hugmynd barónsins var sú, að liafa þær uppi á Hvítárvöllum á sumrin og gera smjör, skyr og osta úr mjólkinni, og flytja svo hey á sumrin hingað suður. Til þess að annast þessa flutninga keypti liann lítinn gufubát, sem nefndur var Hvítá, og ennfremur stóran flutningabát til að hafa í eftirdragi. Segja Borgfirðingar að allur búskapurinn á Hvítárvöllum hafi gengið ævintýri næst, en þó hafi þeim fátt þótt ævintýralegra og skemtilegra, heldur en þegar gufu báturinn kom öslandi upp eftir allri Hvítá. Vrakti þetta og þá von í brjóstum margra, að sumar af stóru ánum á íslandi myndi vera skipgengar á köflum og yrði að því stórkostlegar samgöngu- bætur þegar slíkir bátar kæini á fleiri ár. Fjósið kostaði 16—20 þús- iind krónur, ,,Hvítá“ 12 þús. og flutningabáturinn 3000 kr., svo að stofnkostnaður varð ærinn. Við það bættist að kaupa varð liey hjer í kring lianda kúnum, og auk þess var þeim gefinn mikill matur. Mun því altaf hafa verið tap á kúabúi’iu. En þetta var fyrsta kúabú. sem sett var á stofn hjer á iandi í því skyni að selja mjólk, og varð baróninn því brautryðj- andi á því sviði. Ævintýramaður. Baróninn mun hafa verið fje- íítill er hann kom hingað. Hafði hann eytt aleigu sinni í einhverja konu vestanhafs. Þó átti hann eitt- hvað af hlutabrjefum í járnbraut- um þar vestra, og var bróðir hans, sem átti heima í Baltimore að selja ]>au fyrir hann. Þessi bróðir ávítaði hann harðlega í brjefum sínum fyrir það uppátæki að fara til íslands, og sagðist ætla að hann ætti nú að vera orðinn svo veraldarvanur, að hann gerði ekki fleiri skyssurnar. Ljet hann þess

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.