Lesbók Morgunblaðsins - 14.02.1937, Blaðsíða 1
6. tölublað.
Sunnudaginn 14. febrúar 1937.
XII. árgangur.
Í»«ful<*arprrutimiSja b.f.
rjetur mikli
og hin rússneska
þjóðarsál.
(Eftirfarandi kafli er tekinn úr hinni kunnu
„Menningarsögu Friedells“).
Einn merkasti viðburður þessa
tímabils er það, þegar Rússar
gerast þátttakendur í veraldar-
sögunni, og er það verk eins
mikilmennis. Alt fram til daga
Pjeturs mikla var Rússland krist-
ið austurlandaríki. Þegar þjóðin
snerist til eingyðistrúar, var það
að sögn bindindiskrafa Mviham-
eðstrixarmanna, sem gerði það
að verkum, að miihameðstrúin
beið lægra hlut fyrir kristindóm-
inum. Eftir að Tyrkir höfðu unn-
ið Miklagarð, færðist miðstöð
grísk-rómversku kirkjunnar til
Moskva, og Rússar tóku við hin-
um austur-rómverska kirkjuarfi.
En þá þegar hafði Rússland
fengið einkenni byzantiskrar
menningar, þar sem yfirdrotnar-
ar landsins voru skoðaðir með
guðdómlegu valdi, hirðsiðir voru
strangir og sjerkennilegir, eilífar
óeirðir í sambandi við hirðina og
sífeld stjórnarskifti, prestavald
mikið og stórfengleg byggingar-
list.
Mongólar höfðu ráðið þar ríkj-
um í 250 ár. Þeir höfðu alið upp
í þjóðinni þann undirlægju- og
þrældómsanda, sem einkent hefir
sögu hennar gegnum allar til-
breytingar hennar alt fram á
vora daga. Því jafnvel sovjet-
stjórnin er ekki annað en vinstri-
manna keisaraeinræði. Tilhneig-
ingin til bolsivisma var undirbú-
in frá ómunatíð í rússneskri
bændastjett, þareð akurlendið
hefir öld eftir öld verið sameign.
Og tilbreytingarleysi hinnar
rússnesku flatneskju er bæði tákn
ræn fvrir hið afskiftalausa lang-
lundargeð Rússa og ástæða til
hinna kommúnistisku tilhneiginga
þeirra.
1 lok 15. aldar byrja hinir
miklu landvinningar þjóðarinnar.
Árið 1480 tókst ívan mikla að
hrista af þjóðinni oki Tartaranna,
og nálega tveim mannsöldrum síð
ar vann ívan grimmi Kasan og
Astralcan. Og á sömu öld byrja
Rússar að leggja undir sig Sí-
beríu. Um miðja 17. öld komast
Rússar alla leið austur til Kyrra-
hafs, og árið 1667 hverfur inest-
ur hluti Ukraine frá Pólverjum
undir valdasvið Rússa.
Pjetur mikli gat þvingað þessa
þjóð til þess að snúa sjer til vest-
urs, sem virtist alveg útvalin til
Pjetur mikli.
Lenin.