Lesbók Morgunblaðsins - 21.02.1937, Síða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 21.02.1937, Síða 6
54 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Sagnir af Jóni stcrka. SKRÁÐ hefir ÓLAFUR KETILSSON. Steinninn í Stóru-Vosa vörinni. Frá óiminatíð hafði klettur eimi mikill verið framarlega í Stóru- voga vörinni, þar sem þrengsli voru mest á milluin tveggja skerja þegar skipin voru sett upp eða fram. Var steinninn mitt á milli skorjanna þar, sem þrengslin voru m st, og varð því að setja skipin annað hvort vfir steininn, eða þá yfir anuað hvort skershornið, en þetta kom ekki fyrir nema þegar lágsjávað var, eða um fjöru, eða því sein næst. annars flaut yfir stcininn, eða skerin, þótti hvoru tveggja miklum erfiðleikum bund- ið, og hefir því sennilega steinn þessi margt ókvæðis- og formæ'- ingarorðið verið biiinn að fá á sig, hjá hinuni þreyttu og þjök- uðu sjómönnum, sem svo marga bakrauiiina höfðu orðið að þola Jin 's vegna, á meðan að þeir voru aö klöngrast með skipin yfir liaun. Eina vetrarvertíð, seui næst J8d5, kom .Tón Daníelsson af sjó á áttæring sínum vestan úr Oarð- sjó. Fekk hann þennan dag land- synningsrok og roga barning alla leið lieim í vör. Voru hásetar .Tóns venju fremur þjakaðir eftir barn- inginn og bölvuðu klettinum í sand og ösku. á meðan að þeir voiu að koma skipinu yfir hann. Kn þegar að setningnum Joks vrar Jokið. sagði Jón liásetum sínum að fara heim, en kvaðst sjálfur ætla að verða eftir og taka til í skipinu m. m. En þegar hásetar Jiaus eru komnir upp á túnfótinn Jteyra þeir ógurlegt öskur niður í fjörunni, og litu þvrí allir sam- líniis við, og sjá .Tón með klett- ion í fanginu, og skotthúfuna i munninum, sem hann brúkaði vaualega á sjónum. Oskraði karl- inn ægilega, og var þá hinn ægi- Jegasti ásýndar. Hásetarnir þutu allir samstundis niður eftir aftur, en þá hafði .Jón horið steininn Jangt norðvestur fvrir lendinguna og kastað hanum þar frá sjer, en svo máttfarinn var hann, eftir að be-'serksgangurinn rann af hon- uin, að hásetarnir urðu að leiða hann heim, en daginn eftir vrar Jón þó sjáanlega jafngóður. Nokkrum dögum seinna tók hann svo steininU aftur í fang sitt, og bar hann lengra upp í fjöruna norðvestur af lendingunni, þar sem hann Jiggur enn þann dag í dag. í síðastliðnum desembermán- uði gerði jeg mjer ferð inn að Stóru-Vogum. til Sigurjóns frænda míns, var ferðin aðallega farin til þess að skoða steininn og áætla þunga hans. Fórum við þrír niður í fjöruna og skoðuðum steininn, og gátum velt Jionum við. Kom okkur saman um að minna en 500 kg. (1000 pund) vræri hann ekki, og börutækur fjórum duglegum mönnum. en Sigurjón fræddi mig líka um það, sem jeg áður ekki hafði hevrt, að leðurhrók sú, sem .Jón var í og tvennar buxur, hefði verið sundur tætt á hnjám og lærum, eftir átökin, og hann sjálf- ur blóðmarinn, en ómeiddur að öðru leyti. Að til hafi verið, og sjeu til ennþá, á íslandi þeir aflrauna- menn, setn taki steininn upp, og geti fært liann úr blautum sand- inum, þar sem hann hafði Jegið öldum saman á kafi, til þess hefir þurft, bæði að mínum og annara dómi, sem sjeð hafa steininn, al- veg yfirnáttúrlegt manrisafl. Pertlínan. Eitt sumar, á meðau að Jón Daníelsson bjó í Stóru-Vogum, kom suður á Vogavík danskur „spekúlant", sem kallað var í þá daga. Voru það vörubjóðar, eða með öðrum orðum, skip sem höfðu allskonar útlendan varning á hoð- stólum, fyrir íslenskar afurðir. Höfðu þeir einskonar búð í lest- inni, þar sem að öllu ægði saman, ætu og óætu, þurru og blautu. Þegar skip þetta var komið inn á \’ogavik og lagst þar við festar, spurði skipstjórinn einn af þeim mönnum. sein komuir voru um borð hvert þessi sterki íslending- ur myndi ekld komi um borð til sín. Benti þá einn maðurinn skip- stjóranum á bát sem kom frá Jandi. og sagði skipstjóra. að maðurinn sem sæti aftur í bátnum væri hinn sterki íslendingur, sem hann óskaði að sjá. Þegar Jón Daníelsson var kom- inn um borð í skipið, varð skip- stjóranum starsýnt á þennan Iiáa og lierðabreiða heinabera mann, sem liorfði á slíipstjóra tindrandi stálgráum augunum, þrungnum af viti og viljakrafti. Þegar .Tón liafði lieilsað skipstjóra, og þeir höfðu talast við góða stund, gekk Jón fram á skipið, og sá þar afar- stóra kaðalrúllu, sem ekki hafði verið vætt. Var þetta „Pertlína“ seni> kallað er, eða festartóg, afar sver og úr tjöruhampi, mörg liundruð pund, eftir því sem mjer hefir verið skýrt frá. Þegar .Jón hafði skoðað þessa kaðalrúllu, gekk hann aftur til skipstjórans, og bað hann að selja sjer 4—5 faðma af kaðlinum, sem hann svo ætlaði að rekja spottann upp og snúa svo úr honum stjóra- færi netateina, m. m., en skip- stjóri svaraði samstundis neitandi en hann bætti svo við: ,,En jeg skal gefa þjer af kaðlinum það, sem jeg má hringa upp á hand- legg þinn ofan frá öxl og fram á hönd, þar til handleggurinn fer að hogna eða síga“. Sem auðvitað gekk Jón að þessu veglega boði skipstjóra, því að liann hafði engu að tapa, en til mikils var að vinna fyrir ofurmennið .Tón Daníelsson. Var Jón svo látinn* standa á stórum kassa, og böndin, sem hjeldu rúllunni sainan, skorin í sundur. Og byrjaði svo skipstjóri að dunda við að hringa kaðalinn

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.