Lesbók Morgunblaðsins - 21.03.1937, Side 8
68
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Breska flugfjelagið Imperial Airways er að láta byggja nýja tegund flugbáta til farþega- og póstflugs.
Þessar flugvjelar geta flogið með alt að 18 tonna þuuga. Þær hafa fjóra stóra hreyfla, sem eru rekn-
ir af 3000 hestafla vjelum. Flugbátarnir geta farið með 300 kílómetra hraða á klukkustund. Á mynd-
inni sjest einn af þessum risaflugbátum á höfninni í Southamton. Farþegarnir eru fluttir um borð í
vjelbát til þess að fljúga beint til Egyptalands. Ferðalagið tekur aðeins einn dag.
— Hvað hefir kötturinn mörg
eyruT
— Tvö.
— Og hvað mörg augut
— Tvö.
— Og hve margar fæturí
— Vitið þjer alls ekki neitt um
köttin sjálf, kennarií
*
Vindlasalinn: Vill frúin sterka
vindla?
Frúin: Já, eins sterka og þjer
hafið. Maðurinn minn kvartar alt-
af yfir því, að þeir brotni í vasa
sínum.
— Hvað mynduð þjer gera, ef
konan yðar eignaðist fimbura ?,
spyr norskt blað lesendur sína.
Einn lesandi blaðsins svaraði:
— Síma til Stalins: Fimm ára
áætlunin framkvæmd á einu ári.
— Herra skrifstofustjóri, bók-
arinn kyssir —---------
— Þá verðið þjer sjálfar að gefa
honum löðrung, til að venja hann
af því.
— Ungfrú Jónína neitar því.
— Ungfrú Jónína?
— Já, það er hana, sem hann
kyssir.
— Jeg keyrði nú ansi vel, Óli,
þangað til þetta bannsetta trje
varð fyrir.
*
— En hvað það er sorglegt, að
kærastan yðar skuli hafa mist all-
ar eigur sínar.
— Já, það er leiðinlegt fýrir
hana. Haldið þjer að hún sakni
mín mikið.
*
— Varð húu ástfangin í honum
við fyrstu sýn?
— Nei, við aðra, þá kom hann í
nýja bílnum sínum.