Lesbók Morgunblaðsins - 25.07.1937, Blaðsíða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
227
Frá listsýningunni í
Miðbæjarbarnaskólanum.
Hjer birtast tvær myndir af
niálverkum, sem eru á sýn-
ingu Bandalags ísl. listamanna í
Miðbæjarbarnaskólanum. Ounur er
sjálfsmynd Jóns Stefánssonar, nr.
50 í sýningarskránni, en liin er
,,Fiskibátar“ nr. 07 eftir Þorvald
Skúlason.
Eins og getið liefir verið um í
Morgunblaðinu áður, gefur list-
sýning Jiessi bæjarbúum glveg ein-
stakt tækifæri til ]>ess að fá yfir-
lit yfir og kynni af íslenskri mál-
aralist, eins og hún er nú. Væri
óskaudi að sem flestir notuðu sjer
]>að tækifæri. fslensk málaralist
hefir tekið svo örum þroska á síð-
ustu árum, að undrum sætir. Eng-
inn, sem ann íslenskri meuningu,
og andlegum framförum og' þroska
þjóðarinnar, getur leitt hjá sjer
liina íslensku málaralist, getur
neitað s.jer um, að kynnast þjóð-
inni, í gegnum verk málaranna.
Þannig litu Norðmenn á, er þeir
sáu sýningu þessa í vor, þegar
hún var í Björgvin. Eitt Björg-
vinarblaðanna komst svo að orði:
;,Við að horfa á mvndir hinna
íslensku málara, lirífast menn til
Jón Stefánsson: Sjálfsmynd.
Þorvaldur Skúlason: Fiskibátar.
söinu geðbrigða, sömu áhrifa og
þegar menn lesa Heimskringlu
Snorra eða íslenskar nútímabók-
mentir.
Hinar svipmiklu myndir þessara
djarftæku málara hafa norrænan
æfintýrablæ. Með einstakri við-
kvæmni skýra þær áhorfandanum
frá íslenskri náttúru, þjóðlífi og
dýraríki. Stundum ljóma þær af
lýriskri gleði yfir hinu stutta, en
fagra íslenska sumri og lýsa ást
höfundanna á sólbjörtu landinu,
svo áhorfendur verða gagnteknir
af. En þeir gera sjer líka far um
að lýsa sjerkennum ættlands síns,
íneð hinum tignarlegu fjöllum,
jöklum, gígum, vÖtnum og hafi.
Bak við baráttu þjóðarinnar við
náttúruöflin bólar á hjátrúnni,
töfrar sumarnæturinnar koma í
ljós. En öllu þessu ofar er lof-
söngurinn til ættlandsins, er lýsir
sjer í þessum þróttmiklu litauðgu
og tilfinningaríku myndum“.