Lesbók Morgunblaðsins - 25.07.1937, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 25.07.1937, Blaðsíða 7
LESBÓK morglnblaðsins 231 látinn fá larfana mína — því jeg átti að fara aðra leið....Það var auðskilið mál. En hvað að mjer liefir gengið veit víst enginn maður — en senni- lega hefir það verið ofþreyta, eða ef til vill taugaveiki. * in þær muindir, sem jeg var að skríða saman kvæntist sonur húsbænda minna og byrj- aði búskap á litlu horni af jörð- inni. Mjer var komið til lians. Hann var maður latur og sjer- hlífinn en miskunnarlaust fól. Fekk jeg oft að kenna á konum, því gæti jeg ekki gert honum til geðs nægði honum ekki að berja mig, hvar sem var, í höfuðið og skrokkinn, heldur henti hann mjer niður og sparkaði í mig og tróð á mjer með fótunum. Og jafnan ljet hann mig vinna það erfiðasta, en gutlaði sjálfur við það, sem hlest var á mínu með- færi — eins og til dæmis þegar rista þurfti torf, stóð hann yfir mjer og brýndi ljáinn, en ljet mig rista og velta úr flaginu — og ógnaði mjer með því að reka í mig ljáinn „ef jeg ljeti þetta ekki ganga. Hann naut þess blátt áfram að kvelja mig í einu og öðru. Aftur á móti var kona hans í aðra röndina ekki slæm kona, þó hún sýndi mjer í hvívetna mikinn ribbaldaskap og óbilgirni og ljeti sjer einu gilda hvernig hiisbónd- inn fór með mig. Strax og jeg kom í hennar „umsjá“ græddi hún þó í mjer geiturnar, er höfðui ágerst svo voðalega í veikindum mín. Ofholdgun liafði hlaupið í keitusoðin sárin undir legu- þæfðum, svitastorknum og mor- lúsugum hárluibbanum. Sár mín græddi hún með því að þvo þau fvrst upp úr stöðnu vatni og leggja síðan á þau tólgar- og tjöruplástra. En jeg misti alveg hárið — og fann mikið til þess. Þegar jeg var fermdur var ekki hár á mínu höfði — ekki hár. En seinna, er mjer fór að vaxa skegg rakaði jeg á mjer höfuðið í hvert sinn og jeg skar skegg mitt. Fyrir það fekk jeg, með tíð og tíma, þennan kragahíung, sem er í hnakkagrófinni á mjer og aftan við eyrun. En sjáið þjer örin uim alt höfuðið ? * Er jeg var á tólfta árinu var farið að hugsa til þess „að kenna mjer eitthvað til trúar- bragða“ — svo ekki yrði jeg hundheiðinn ofan á alt annað. Fyrst var mjer kent að þekkja stafina og þegar þeirri eldraun var lokið var mjer kent að kveða að eins atkvæðis orðum. Að því búna var mjer fengið „kverið“ og sett fyrir ein síða á dag, sem jeg skyldi ,,skila“ kvöld hvert fyrir háttatíma. En tíminn, sem mjer var ætlaður til þessa náms var á kvöldin, þegar jeg hefði lokið gegningum, vatnsburði í fjós og bæjarhús, flórmokstri og síðan allri kornmölun til heimilisþarfa. Það ljet því nærri, að jeg hefði tvo tíma á kvöldi til að læra þessa blaðsíðu í kverinui, sem jeg, ofan í kaupið, alls ekki gat lesið. Enda kunni jeg marga greinina reip- rennandi, þó jeg gæti ekki lesið hana — það var nú svo skrítið. Húsmóðir mín hafði yfirumsjón með þessari fræðslu og löðrung- aði mig óspart með „þeirri hinni helgu bók“, ef mig rak í vörð- urnar. , ] Þennan fyrsta „uppfræðsluvet- ur“ minn var á heimilinu frænka húsfreyjuinnar. Hún var á líku reki og jeg, og átti að nema kvenlegar dygðir af frænku sinni, húsfreyjunni, en bókvísindin hjá húsbóndanum! Hann kunni ofur- lítið að skrifa og stuudum tók hann „heimasætuna“ á hnje sjer og reyndi að kenna henni að draga til stafs. Jeg ljet í ljós þá ósk, að mig langaði líka til að læra að skrifa, en þá var hiis- bóndinn ekki seinn til svars og sagðist ekki búast við, að jeg yrði nokkurn tírna fenginn til að skrifa meðlagið mitt á hrepps- bækurnar. Það mundu aðrir gera. Þar með var því mál lokið. En seinna lærði jeg að skrifa — fyrst með því að hirða sendibrjefs- snepla og eftirlíkja úr þeim stafi og orð og rispa þaui með koli á fjárhúshurðir og jötubönd, og með því að „skrifa“ með priki í snjó og leirflög. Þá þekti jeg eng- an skrif-staf. En jeg lærði það seinna. * annig liðu árin eitt af öðru. Hver dagur var öðrum lík- ur — alt þreytu- og þjáninga- dagar. Jeg var tæpra fjórtán ára. Það var áliðið vors. Húsbóndi minn var að reisa sjer hesthús úti á túni og hafði mig í verki með sjer. Hleðsluefnið voru „kvía- hnausar“ — en það eru hnauisar, sem stungnir eru af grunnum jarðvegi, svo neðan í þeim er möl og sandur. Hnausar þessir voru hin mestu bákn og þungir. Ljet hann mig rjetta sjer þá upp á vegginn, en hlóð þeim sjálfur. Alt gekk þetta stórslysalítið uns röð- in kom að stórum hnaus, sem jeg ætlaði aldrei að koma upp á vegg- inn. En er mjer heppnaðist það loks eftir mikið þrauk var hiis' bóndi minn orðinn mjer svo reið- ur, .fyrir helv. . . . silaskapinn, eins og hann nefndi það, að hann þreif hnausinn, hóf hann á loft og sólhenti honum í hausinn á mjer. Meira -veit jeg ekki — og veit þó. Þegar jeg kom til sjálfs mín aftur ]á jeg uppi í rúmi með hvít- an kodda undir liöfðhm Þetta var á „öðrum“ bæ — bænum smiðs- ins. Smiður þessi hafði af hend- ingu rekið höfuðið út um skeramu- dyr sínar rjett í því, að hnaus- inn reið í hausinn á mjer. Hljóp hann þá til, lyfti af mjer farginu og bar mig meðvitundarlausan inn í bæ og bað konu sína fyrir mig. Hugði hann mig í fyrstu dauðan — en þegar jeg raknaði úr rotinu gerði hann sjer hægt um hönd og kærði húsbónda minn fyrir hrepps nefndinni og sagðist krefjast þess, í nafni laganna, að mjer yrði komið á gott heimili — til góðra húsbænda — því jeg verðskuld- að ]>að fylíilega. * Hjer með er minni harmasögu lokið. Jeg komst til ágætis fólks — og síðan hefi jeg yfirleitt um- gengist gott fólk. En sannleikurinn er sá, að sum- ar manneskjur eru skelfilegar skepnur". S. B,

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.