Lesbók Morgunblaðsins - 15.08.1937, Síða 8
lesbók morgunblaðsins
2")fi
Fiskistólar“ í stað báta.
Margir japanskir fiskimenn eru svo fátækir, að þeir liafa ekki efni á því að eignast báta, og
í stað þeirra nota þeir ..fiskistóla, (eins og myndin sýnir), en í stólana eru þeir fluttir af fjelögum
síinim sem betur eru stæðir.
— Veistu nokkuð ráð til þess
að ung hjón geti sparað á þessum
tímum ?
— Já, með því að leggja krónu
í sparibaukinn í hvert sinn og
þau rífast.
*
Hertoginn af Windsor hefir sent
ekkjudrotningu Englands buð um
að heimsækja sig. Hann.langar til
þess að sjá móður sína. En ef
hún er ekki nógu hraust til þess
að ferðast aila leið til Austurríkis,
þar sem hertoginn býr nú, ætla
þau að hittast í Parísarborg.
— Jeg fekk aðeins einn sykur-
mola í kaffið.
— Hvernig veistu það ?
— Jeg sje það greinilega!
*
Maður nokkur í Serajevo, Avda
Abalkovis að nafni las um það í
blaði um daginn, að amerískur
maður hafi sett met í því að
hnerra. Ilann hafði hnerrað 450
hnerra í einn. Avda sló metið í
einu vetfangi og hnerraði 716
sinnum. En þá fjekk hann ákafan
höfiiðverk og varð að hættg. Ann-
ars hefði hann getað hnerrað helm
ingi oftar, eftir því sem hann seg-
ir sjálfur.
— Getur þú hugsað þjer ömur-
legra en gíraffa með hálsbólgu?
— Já, þúsundfætlu með lík-
þorn!
*
Þjóðverjar spara á öllum svið-
um, t. d. hefir nú verið bannað
að hafa skóáburðardósir með
hvelfdum lokum.. Þau eiga að
vera flöt, til þess að minna efni
fari í þau.