Lesbók Morgunblaðsins - 15.05.1938, Síða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 15.05.1938, Síða 4
LE8B0K M0BGUNBLAÐ9INS Undur í Búlgaríu Eftir Ivan h. Krestanoff. Aþeirri öld vísinda off efnis- hyggju. sein nú stendur vf ir, verðnr því samt ennþá ekki neitað, að í náttúrunni eiga sjer stað t'yrirbæri. sein hvorki verða skvrð nje vjefengd. Má þar til nefna vofur, svipi framliðinna manna. flökkuanda. fjarhrif. fjar skygni...... En í Búlgarín eru við líði helgi- siðir. þar sem undrin keppast á við trúna. Þetta er hálfkristinn o*r hálfheiðinn • leyndardómur. sem vekur furðu hjá vísindamönnum í Bulgaríu og öðrum löndum, pró- fessorum o*r lækuum. Þótt |>að láti í eyrum eins og lygasaga. |>á er það samt satt. Þar er dansað á eldi án þess merki sjáist eftir. Þetta t'er fram á hverju ári M júní, á hátíð hinna heiliigu Kon- stantínusar og Helenu, í þorpinu Vulgari við rætur furðufjallanna Strandja, skamt ?rá hinu dulræna Svartahafi í suðurhluta Búlgaríu. Þarna. mitt inni í aldagömlum eikar- og beykiskógum, á trúar- bragðaflokknr heima, sem kallast nestinari, þ. e. elddansendur. af gríska orðinu ,.nestia“: eldur. Hinn opinberi fulltrúi þessa trú- fjelags og aðalleiðtogi við fram- kvæmdir helgisiðanna er nefndiu' vekil. ★ Þriðja dag júnímáuaðar. á musterishátíð kirkjunuar, hefir í manna minnum verið farin skrúð ganga til „ajazmanna“ eða liinna helgu Jinda. og vaðið í lifandi eimyrju. Þennan dag sækja þang- að þúsundir aðkomumanna, ekki aðeins úr nálægum þorpum, held nr víðsvegar að úr Búlgaríu og jafnvei frá öðrum löndum. Klukkan 10 að morgni kalla klukkurnar hina trúuðu til þorps kirkjunnar. Hún stendur í 150 metra hæð og er kölluð „aðalstöð hins heilaga Konstantínusar". Það er lítið. liálfdimt herbergi, og brennur þar eldur á arni og helgi- myndir standa á vegghillunni. Á veggnum hangir bumban helga, sem aldrei er tekin niður og sleg in nema þennan dag. Nokkrar gamlar konur brenna vaxkertum á þrífætjnuiu og signa sig. Merk- ust þeirra er amma Nuna, at'- göinnl kona með traustvekjandi svip; hún var þar til fyrir skömmu „aðalnestinarinna". Hátíðabúið fólk úr öllu þorpinu, karlar og konur, streymir inn í kirkjuna. kveikir á vaxkertum. leggur fram gjafir og raðar sjer upp úti til þess að bíða eftir skrúðgöngunni til lindanna helgu. Bænagjörð nestinarinnanna stendur yfir til kl. 11. ★ Eftir að amnia Xuna hefir gefið merki. er sekkblístruleikarinn sóttur og bumban tekin og allir búa sig i ndir að leggja af stað. Þegar fyrstu hljómarnir lieyrast úr sekkblístrunni og fyrstu högg in eru slegin í bumbuna, kemur nokkuð óvænt fyrir. Nokkrir svart klæddir kvenmenn, náfölir, þögul- ir til jiessa. taka nú alt í einu að æpa æðislega: „Vah, vah!1', og vekur það óró og helgau hroll í þeim, sem viðstaddir eru. Þetta er tákn þess, að nesinarinnurnar sjeu nú tilbúnar til hins heilaga dans dagsins. Undir hljómum hins sjer stæða hljóðfæraleiks elddansend anna, ,,racenica“. byrja þær að hoppa til allra hliða eftir hljóð- fallinu. æpa æðfslega, fórna hönd- unuih upp eða fram. utan við sig, „geðhrærðar“ eins og þoi’psfólkið kemst að orði. „Hærra, hraðar. bumbumaður“, kallar amnia Nuua, og fjörugur dansinn fyllir íbúa þorps og borgar skelfingu og undrun yfir þessu hrifningarkasti, sem þjarmar að og gagntekur eins og djúpt og einlægt lífsatvik. Há- vær músíkin. stunur dásefjaðra nestinarinnanna, angan reykelsis ins. dulrænar aðstæðurnar — alt þetta kippir okkur inn í sjerstakf andrúmsloft fornra helgisiða, þar sem sömu geðbrigðin koma fyrir og sömu dansarnir. Þetta stendur í stundarfjórðung. Þegar dansin um er lokið. leggur skrúðgangan af stað með helgimyndir í farar- broddi, nestinarana næsta ög síð an allan múginn, áleiðis til hinn ar heilögu lindar hins helga Kon- stantínustar utan við þorpið, í ár- dalnum milli aldagamalla beyki- trjáa. ★ Fyrir franian helgistaðinn fram- kvæiuir presturinn guðsþjónustu, helgar vatnið og stekkur því. Lýð- urinn drekkur vigt vatnið. etur vígt brai ð. og síðan hefst helgi bundinn alþýðudans til heilinda, og taka nestinarinnurnar eiunig þátt í honum. Loks er snúið aftur til þorpsins, ol' verða nestinarinn urnar fyrir nýjum geðshræringum á leiðinni. En merkilegast er samt kvöldið. Kl. 18 er bál mikið gert á torg inu, og er glóðin sem mest og eldurinn sem sterkastur kl. 20. Þá er orðið dimt. Frá „aðalstöð hins heilaga Konstantínusar“ kemur ný skrúðganga nieð helgimyndir og nestinara og stefnir liratt að bál inu fvrir framan kirkjuna. Þang- að hafa þorpsbúar borið mikið timbur til eldiviðar og staflað á torginu, og hækka nú eldtugnurn- ar sem óðast. Sekkblístran og bumban valda ótrúlegum hávaða: eimvrjan ljómar fagurlega. Þeir. sem lielgimvndirnar bera, staðnæm ast annarsvegar, sekkblístruleikar- inn og bumbuslagarinn hinum megin. Þjettur manngrúinn stend- ur í hring um eldinn og bíður með hrollkendri eftirvæntingu hinnar undraverðu eldraunar. mikilvæg asta helgisiðarins, kórónu liátíð- arinnar. Myrkur og þögn gei’ði okkur órótt. Og þarna komu finnn nestinarinnur syngjandi, stukku samstíga inn í glóandi báleisuna og gengu yfir. Augnablik skelfi-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.