Lesbók Morgunblaðsins - 14.07.1940, Qupperneq 6
222
LBSBÓK MORGUNBLAÐSINS
Hvað er um fimmburana frægu?
Nokkrar athuganir eftir einn
úr uppeldisnefndinni
ann 28. maí síðastliðinn urðu
fimmburarnir frægu 6 ára að
aldri. Þessar 5 telpur eru einu
fimmburar, sem menn vita til að
lifað hafi, og nú fara að hefjast
þau ár þeirra, sem leiða í ljós
sjerkenni þeirra og einstaklings-
eðli. Það er því gaman að sjá og
athuga nú, hvert greinamar sýn-
ast beygjast og hvaða áhrif þessi
sjerkennilega tilvera þeirra hefir
á þroskun einstaklingseðlis þeirra,
hverrar um sig.
Margt hefir verið skrifað um
fimmburana og flest af mönnum,
semi þekkja ekki neitt til þeirra
sjálfra, en blaðamenn hafa á hinn
bóginn reynt að vekja upp alls-
konar sögur um misklíðir milli
foreldra barnanna og nefndar
þeirrar, sem hefir haft mál þeirra
með höndum. Sannleikurinn e~
sá, að foreldrarnir geta verið hjá
þeim eins mikið og þau óska.
Telpunum þykir vænt um þau og
þær fá að leika sjer við önnur
börn í Dionne. Og nú læra þær
skólanámsgreinar með systkinurn
sínum öðrum. Þær tala ennþá ein-
göngu frönsku eins og svo afar-
mörg börn í Austur-Canada, því
að þar er franskt ætterni algeng-
ast. En þegar fræðslulögin heimta
verða þær að læra ensku eins og
önnur börn.
Hvað ætlum við að gera úi*
fimmburunum? Við ætlum ekkert
sjerstakt að gera úr þeim annað
en 5 vel mentaðar stúlkur.
Þær hafa allar gaman af söng-
list og við látum þær fá kenslu
við þeirra hæfi í henni. En eng-
um dettur í hug að fara að gera
þær að „undrabörnum“ í hljóð-
færaslætti. Þær fá líka fræðslu
eða hjálp í öðru, sem þær hafa
gaman af eða áhuga á. Og það
er eingöngu vegna þess, að við
álítum að öll börn eigi að fá það,
sem hægt ‘ er að veita þeim af
slíku.
Sumir halda líka, að fimmbur-
arnir þurfi ekki að búa sig á
neinn hátt undir lífið, vegna þess
að þær sjeu svo vellauðugar orðn-
ar, að þær hafi nóg fyrir sig að
leggja. En bæði eru þessi auðæfi
stórum ýkt, og óvissa um öll auð-
æfi í þessari veröld, og svo verð-
ur, án tillits til efnahags, að gera
líf þeirra semi auðugast, og það
gerir vinnan best. Litlu stúlkum-
ar eru duglegar við heiniilisstörf-
in, sem þeim eru ætluð, rjett, eins
og aðrar litlar stiilkur, sem hjálpa
mömmu sinni.
★
Er nokkur leið að láta fimm-
burana njóta sín eins og önnur
börn? Verður ekki líf þeirra alt
mótað af þessu sjerstaka um-
hverfi og aðstæðum? Læknirinn,
sem mest gætir þeirra og nppeld-
isnefndin er þeirrar skoðunar, að
unt verði að sigla fyrir þetta
sker.
Alt, sem unt er, er gert til þess
að beina athygli þeirra í þá átt,
sem stúlkur hjer yfirleitt fara.
Sumar gerast kennarar, aðrar
hjúkrunarkonur og þess háttar.
En jafnframt er lögð áhersla á
það, að þær geti orðið hæfar og
góðar mæður og húsmæður. En
frá hinu er stefnt, sem annars
gæti virst Hggja næst, að fimm-
burarnir 'verði að nokkurskonar
sýningarnúmeri og vinni sjer
þannig inn pennga. Halda sumTr,
að fimmburarnir hafi hingað til
verið sýndir mjög mikið og fje
tekið fyrir. En þetta er ekki. Að
vísu vilja margir sjá systurnar.
En flestir verða alveg undrandi
þegar þeir heyra, að ekkert er
tekið fyrir það. Hefir því verið
svo til hagað, að á sumrin eru
fimmbijrarnir „til sýnis“ hálfa
stund tvisvar á dag og á vetrin
eina hálfa stund. Milli þeirra og
áhorfendanna er veggur úr gleri,
sem ekki sjest gegnum nema á
annan veg, og systurnar verða
því ekkert varar við áhorfend-
urna.
Þá hafa verið teknar af þeim
kvikmyndir og þúsundir almeifftra
ljósmynda fyrir blöð o. s. fi*v. En
myndirnar eru teknar þannig, að
einn ljósmyndari fær að vera með
þeim um stund, að morgninum,
og hann gerir myndatökuna að
nokkurskonar Ieik fyrir börnin.
Kvikmyndir hafa ekki verið tekn-
ar af þeim annarsstaðar en í leik-
herbergi þeirra. Yfirleitt virðast
myndatökurnar ekki hafa haft
nokkur áhrif á telpurnar fram
að þessu.
Af þessu má sjá, að varlega er
í allar sakir farið. Stjórn sýn-
ingarinnar í New York bauð
mikla fjárhæð fyrir að hafa
fimmburana þar til sýnis, og þar
sem þetta kom í blöðum, hafa
ýmsir haldið, að gengið hefði ver
ið að þessu boði. En þetta er
fjarri sanni. Þetta var alls ekki
tekið í mál og svo var það búið.
Ekki hefir vaptað tilboð um
fje fyrir sýningar og myndir og
annað það, s?m gróðavænlegt
hefir verið við fimmburana. En
þessu hefir verið hafnað og það
jafnvel þegar erfitt hefir verið
,að annast uppeldi þeirra vegna
fjárskorts. Á hinn bóginn er for-
vitni fólks ekki alveg ástæðulaus
og ekki nema eðlilegt, að eitthvað
sje gert til þess að svala henni.
Hefir því verið valið úr þessum
tilboðum það, sem aðgengilegast
hefir verið og með því fengist fjo
til uppeldis þeirra.
Sumir örðugleikarnir munu
vaxa með aldri fimmburanna. En
flestir ,munu minka eða hverfa.