Lesbók Morgunblaðsins - 26.01.1941, Blaðsíða 4
36
LE8BÓK MORGUNBL-ADSINS
Ólafar Jöh. Sigurðsson:
Jeg ljek mjer fyrir löngu
hjá litlum mýrarbrunni
með ljósa fífu í munni.
Þar óð jeg yfir keldur
og ungu blómin tíndi
og öllum mönnum sýndi.
— Jeg gekk í kringum
brunninn
og gáði að hamingjunni.
0g sólin sendi geisla
á silfrið vatnsins kalda
með sorg og gæfu falda
í dulu djúpi sínu.
En dagur flaug í bláinn
og döggin f jell á stráin.
— Jeg sá huldumeyjar
aldanna,
sem húmsins blæjum tjald
Og allar ágúststjörnur,
♦ #
sem efst á hvelfiboga
í eilífð sinni loga,
— þær brenna skært í
blánum,
og á botni tærra linda
í björtu gulli synda.
Og brunnurinn er hafsær
með himinbláa voga.
En tímans straumur tók
mig
frá töfrum smárra blóma,
sem titra í stjörnuljóma.
Jeg sje þau ætíð síðan
• •
í svefnsins draumaheimi
og sæla minning geymi:
Jeg heyri bernskuhljómana
,.í hjarta mínu óma.----
Við förum eitt sinn austur,
— og engan mun þá gruna,
hve eldar kvöldsins funa.
Þá blika blys í lindum
og blöðkugrasið mjúka
mun blóð af iljum strjúka.
— Við göngum kringum
brunninn
og grípum hamingjuna.
S k á k
Skákþing íslendinga 1922.
Reykjavík 8. apríl.
Vínarleikurinn.
Hvítt: Stefán Ólafsson.
Svart: Ari Guðmundsson.
1. e4, e5; 2. Rc3, (Venjulegi og
e. t. v. besti leikurinn í stöðunni
er f. Rf3, en hinn gerði leikur er
einnig mjög sterkur og gefur engu
síður mikla sóknarmöguleika) 2.
.... Rf6; 3. f4, d5; 4. fxe, Rxp;
5. Rf3, c61; (Miklu betra var t.
d. Bg4. Svart vanrækir ekki ein-
nngis að koma mönnum sínum út
á borðið, heldur tekur reitinn c6
af drotningarriddaranum) 6. De2,
Rc5; (Betra var RxR) 7. d4, Re6;
(Hvítt á þegar miklu betri stöðu)
8. Df2, Bb4; 9. Bd3, Rd7; 10.
0—0, De7; (Tilþessað valda f7-
reitinn. Betra var að hróka) 11.
Dg3, Rdf8; 12. Re2!, Rg6; 13.
Bg5, (Með þessum leik hefst loka-
sóknin á hvítt. í fljótu bragði
virðist sem nokkur vörn sje enn
í svarta taflinu, en svo er ekki.
Staðan er með öllu óverjandi)
13.....RxB; (13.......Dc7 hefði
veitt meira viðnám) 14. RxR,
Be6; 15. RxB!, DxR;
16. Rf4!, RxR; (Ef 16.......De7;
þá 17. BxR, hxB; 18. c3, Ba4;
19. e6!, og hvítt vinnur auðveld-
lega) 16. Dxg7, (Óþægilegur milli
leikur) 17......0—0—0; (Ef 17.
.... RxB; þá 18. Dxll+, Kd7;
19. DxH, með hótun um pxR, og
Dxp-f-. Best virðist 17.....Rg6,
og eftir 18. BxR, 0—0—0) 18.
HxR, Hdg8; (Yfirsjón. En ef 18.
.... De8; þá 19. Hxf7, með mát-
hótun í 4. leik) 19. DxH-þ, HxD;
20. Bf5, Bd2; 21. BxD+, pxB;
22. Hf3, gefið.