Lesbók Morgunblaðsins - 26.01.1941, Síða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 26.01.1941, Síða 8
40 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS t „Það, sem ræður áformum manna og breytni, er ekki )>að, sem er satt, heldur það, sem þeir trúa að sje satt, eða: sannleikur' er það, sem nógu margir trúa“. Við þetta má bæta annari stað- reynd, 6em ekki leynist neinum, sem opin hafa augu og eyru: Sú trú, sem ræður hegðun manna í einstökum atriðum, er margoft, ef ekki oftast, fengin að láni, helst frá þeim, sem taldir eru í heldri manna röð og hafa lag á að koma því inn hjá fólki, að þeir sjeu öðr- nm fremur dómbærir um það efni, sem á döfinni er í hvert sinn. Fjöldanum hættir við að trúa 1 blindni því, sem slíkir menn trúa« — eða látast trúa. Flestir vilja endilega tolla í tískunni svo um klæðaburð sem bókmentasmekk og hverja aðra háttsemi, sem þeir búast við að einhver gaumur sje gefinn. Alt þetta vita þeir auð- vitað mæta-vel, sem ljá sig til skrum-auglýsingastarfsemi, hvort heldur í eigin þágu eða annara, og kunna að nota sjer út í æsar. Menn kannast líka við, að „það er lakur kaupmaður, sem lastar sína vöru“. Það á jafnt við hver sem varan er, sú er á boðstólum er höfð, hvort þar er nytsamur hlutur í boði eða vka-gagnslaus eða þaðan af verri. Til þess að varan gangi út, er ekki nauðsyn- legt að hún sje góð, heldur hitt, að það takist að telja nógu mörg- um trú um að hún sje góð. Mun- urinn er sá einn, að það þarf slingari auglýsingastarfsemi til þess að gera ónýtu vöruna út- gengiiega. En sje t. d. unt að telja nógu mörgum trú um, að Voltakrossinn sje „dásamlegt lækningatæki“ eða að ritverk H. K. L. sjeu „ilmandi skáldskapur“, þá flýgur hvort um sig út, og þá er tilganginum náð. Eitt af snildarlegustu æfintýr- um H. C. Andersens er æfintýrið um nýju fötin keisarans. Það mun tæpast gleymast, meðan mannkyn- ið er ekki vaxið upp úr þeirri ríku hneigð til þess að láta blekkjast, sem líklega hefir meira en flest annað í fari þess hindrað framför þess og vöxt 1 visku og andleg- um þroska. Jeg geri ráð fyrir, að æfintýrið sje «.vo nlkunnugt, að úþarfi sje að rifja það upp. Jeg skal aðeins minna á, að það var saklaust barn, sem kvað upp úr með það, að hinn dýrðlegi skrúði keisarans væri ímyndun ein. Það var ekki vaxið upp í þann heigul- skap fullorðna fólksins, að afneita skírum vitnisburði skynjana sinna af hræðslu við heimsku-brigsl. Skjddi ekki vera svo mikið til af kjarki og óspiltum bókmenta- smekk meðal almennings, að þeg- ar barn í bókmentum, eins og jeg, bendir á sýnishornin hjer á und- an, verði þeir fleiri en færri, sem þori að treysta sinni eigin dóm- greind um „hinn ilmandi skáld- skap“ og sjái berstrípaða nekt Ólafs Kárasonar Ljósvíkings gegnum auglýsingadúðurnarf Það skal að endingu tekið fram, þótt óþarft ætti að vera, að menn mega ekki ætla, að jeg leggi auglýsendur Kiljans að jöfnu við vefarana í æfintýrinu, þótt þeir minni mig á þá. Vefurinn var ekkert annað en blekking. Þess vegna voru vefararnir ekkert ann- að en falsarar. Slíkt verður ekki sagt um þá „forverði andans“, er hafa mestan dyn á skáldskap II. K. L., þótt þeir kríti liðugt. Bkáldskapur H. K. L. er til, en um alt, sem til er, getur misjafnt mat átt sjer stað. Mig minnir „list“ H. K. L. á þessar vísur eftir Steingr. Thorsteinsson: Mærum vors á morgni gekk málarinn um teiginn; öðru megin eygði hann þrekk, ungrós hinumegin. Eitthvað frumlegt, eitthvað nýtt á við tíðar smekkinn; minna rósblóm mat hann frítt, málaði svo þrekkinn. Jeg get skilið það, að „forverð- ir andans“ hafi „tíðar smekkinn“, því að „svo er margt sinnið sem skinnið“. En hvernig menn, sem skrifa sjálfir óaðfinnanlegt mál, sumir meira að segja prýðilegt, geta hafið málfar H. K. L. og stíl til skýjanna í alvöru — það er mínum skilningi ofvaxið. Hvernig þeir geta verið blindir í Kiljans sök, en sjáandi, er þeir eiga sjálf- ir í hlut, eða — ef þeir mæla um hng fiier — hvernig þeir geta var- ið það fyrir sjálfum sjer að stuðla með skruminu um H. K. L. að þeirri spillingu tungunnar, sem misþyrmingar hans á henni hafa valdið og munu valda, það er í mínum augum „hinn óttalegi leyndardómur“, sem jeg leiði minn hest frá að botna í. Lesend- ur sýnishornanna hjer á undan geta reynt, hvort þeim gengur það betur. Verslunarmannafje- lag Reykjavíkur. Framh. af bls. 35. En þegar minst er á fræðslu- áhuga fjelagsmanna, er rjett að geta þess, að í V. R. var hreyft stofnun Verslunarskóla íslands, og komst það skólamál þar á þann rekspöl, sem dugði. Fræðandi fyrirlestrar eru oft haldnir í fjelaginu enn í dag, og ekki síst nú eftir að fjelagsmenn þurfa ekki að vera í leigðum húsa- kynnum hjer og þar í bænum, en geta sótt fyrirlestra á fjelags- heimilinu. En síðustu tvö árin hefir fræðslustarfsemi V. R. fengið nýj- an og mikilsverðan þátt, þar sera er útgáfa „Frjálsrar verslunar". Um blaðaútgáfuna komst Frið- þjófur að orði á þessa leið: — Undir stjórn Einars Ás- mundssonar og ritnefndar, sem í eru: Adolf Björnsson, Björn Ólafsson, Pjetur ólafsson, Pjetur Ó. Johnson og Vilhj. Þ. Gíslason, hefir „Frjáls verslun“ orðið okk- ur mikil lyftistöng. Ritið hefir náð miklum vinsældum. Það er aðgengilegt bæði að efni og ytra frágangi. Þar eru rædd hagsmuna- mál þjóðarinnar alment og versl- unarstjettarinnar sjerstaklega. Eu auk landsmálagreinanna eru þar altaf aðgengilegar greinar, sem eru bæði fróðlegar og skemtileg- ar. Alt er ritið að efni og frá- gangi með nýtísku sniði. -¥■ Hjer er farið fljótt yfir sögu og aðeins minst á nokkra helstu þætti í starfsemi hins fimtuga fje- lags, sem nýtur vaxandi vinsælda og álits og sem á morgun heldur hátíðlegt afmælí sitt. V. St.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.