Lesbók Morgunblaðsins - 09.02.1941, Blaðsíða 1
6. tölublað Sunnudaginn 9. febrúar 1941. XVI. árgangur.
WaUfymHiaH)* b.i.
Síðasta ferð >Admira! Graf Spee« /.
Sjóorustan milli „vasaorustuskipsins" Admiral Graf Spee og bresku beitiskipanna
þriggja, Exeter, Ajax og Achilles, vakti á sínum tíma heimsathygli og enn mun um þá or-
ustu talað á meðan hreysti og sjómenska er í heiðri höfð. — Flestum er kunnugt um sjó-
orustuna og endalok hennar, en í eftirfarandi grein og í greinum, sem birtast í næstu Les-
bókum, er sagan sögð öll eins og hún gekk fyrir sig. Höfundur þessarar greinar er kunn-
ur breskur rithÖfundur, Taffrail, sem ritað hefir tug bóka um flotamál.
í VÍKING Á ATLANTSHAFI
ann 30. september (1939) var
breska gufuskipinu Clement
sökt nálægt Pernambuco, útaf
Brazilíuströnd. Næsta dag sendi
flotamálaráðuneytið skeyti til
allra breskra skipa, þar sem var-
að er við þýsku árásarskipi, sem
sennilega sje á siglingaleiðum við
Suður-Ameríku. Ekki var getið
um tegund hins þýska árásar-
skips. en þann 2. október, eftir
EFTIR TAFFRAIL
að skipshöfnin á Clement hafði
náð landi, komst sú saga á kreik
í nokkrum blöðum, að hjer væri
um „vasaorustuskip“ að ræða.
Það er lítið vitað um ráðstaf-
anir þær, sem flotamálaráðuneyt-
ið gerði vegna þeirrar hættu, sem
skipum stafaði af árásarskipinu.
Hinsvegar er það kunnugt, að
þegar var hafin skipulagsbundin
leit að árásarskipinu, og að á vest-
urhluta Suður-Atlantshafs voru
þrjú bresk beitiskip úr Suður-
Ameríku flotadeildinni, undir
stjórn flotadeildarstjórans (nú að-
stoðarflotaforingi) Sir Henry
Harwood.
Forystuskip flotadeildarinnar
var Ajax (skipherra C. H. L.
Woodhouse), nýtísku 7.000 smá*.
beitiskip, sem gengur 32^ sjó-
mílu á kkikkustund og er vopnað