Lesbók Morgunblaðsins - 09.02.1941, Side 2
50
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Admiral Graf Spee í heimahöfn.
8 sex þumlunga fallbyssum. Hann
stjórnaði einnig Achilles (skip-
herra W. E. Parry), svsturskií)
Ajax — úr Nýja Sjálands-deild
hins konunglega flota. Skipshöfn
skipsins var að mestu leyti Nýja-
Sjálands menn, og loks Exeter
(skipherra F. S. Bell), sem var
sent í hernað á ný í byrjun ófrið-
arins. Exeter var stærst þessara
þriggja skipa, 8.400 smálesta
beitiskip, með 32 sjómílna gang-
hraða og vopnað 6 átta þumlunga
fallbyssum.
Það revndist rjett vera, að
þarna var „vasaorustuskip“ á
ferðinni. í þýska flotanum voru
3 slík skip, 10.000 smálestir að
stærð, með 26 sjómílna ganghraða.
vopnuð 6 ellefu þumlunga fall-
byssum og átta 5.9 þuml. byss-
um. Þessi skip eru betur vopnum
búin en beitiskip og eru betur
brynvarin gegii skotum frá 6 þuml.
fallbyssum. Þau ganga betur en
nokkuð orustuskip. Sannleikurinn
var sá, að einustu skipin í flotum
bandamanna, sem bæði voru bet-
ur vopnuð og gengu hraðar, voru
bresku orustubeitiskipin Hood,
RenoHvn og Repulse og frönsku
herskipin Dunkerque og Strass-
bourg.
★
Samkvæmt dagbók eins skips-
mannsins á Admiral Graf Spee
fór skipið frá Wilhelmshafen 21.
ágúst. Farið var norður með
ströndum Danmerkur og Noregs
og vestur á Atlantshaf milli Fær-
eyja og Islands.
Altmark, birgðaskip Graf Spee,
sem síðar er frægt orðið, fór frá
Þýskalandi þann 5. ágúst og kom
til Port Arthur í Texas tólf dög-
um síðar. Eftir að hafa tekið olíu-
birgðir fyrir sig og árásarskipið
fór það frá Texas þann 19. ágúst
Þann 28. ágúst, þremur dögum
fyrir innrás' Þjóðverja í Pólland
og sex dögum áður en Bretar og
Frakkar sögðu Þjóðverjum stríð
á hendur, hittust Graf Spee og
Altmark úti á rúmsjó. Vasaorustu-
skipið fjekk olíu og matvæli eins
og það þurfti. í sama skifti voru
settar tvær vjelbyssur um borð í
Altmark frá Graf Spee.
Þauu 2- september. daginn áð
ur en stríðið braust út við 3ret-
land og Frakkland, var Altmark
málað upp á nýtt og nafni skips-
ins breytt í Sogne, frá Osló.
Ef athugaðar eru allar kring-
umstæður þykir ekki ólíklegt að
Clement hafi verið sökt og skips-
höfninni leyft að komast til lards
til þess að villa sýa. Langsdorff
skipherra vissi, að skipshöfnin á
Clement myndi segja frá því, að
vasaorustuskip væri á þessum
slóðum. Hann hefir sennilega vilj-
að að fregnin bærist út, í þeirn
von, að bandamenn bindu mikinn
skipakost við gæslustarf á hinni
þýðingarmiklu siglingaleið við
Suður-Ameríku, og hánn gæti svo
framið árásir sínar á kaupskip á
öðrum slóðum á meðan. Það var
yfirmaður breska flotans, Chat-
field lávarður, sem sagði um
þetta leyti: „Að finna nál í hey-
stakk er auðvelt, miðað við að
finna eitt árásarskip á hinni
miklu auðn úthafanna, þar sem
bresk skip eru í förum. Það væri
erfitt þó dagsbirta væri allan sól-
arhringinn, stöðugt bjartviðri og
mikill fjöldi herskipa til að taka
þátt í leitinni . . . Við skulum
hafa það í huga, að aðal áhyggjur
flotamálaráðuneytisins, alt frá
fiotamálarf.ðbcrrár.um og niður,
voru stjórn leitarskipanna og
hvernig ætti að haga leitinni".
★
Graf Spee gerði alt sem hægt
var til að torvelda leitina.
Eftir að Clement hafði verið
sökt hjelt Graf Spee austur á
bóginn, yfir Suður-Atlantshaf og
fór milli Ascensioneyjar og St.
Helenu. Milli 6. og 22. október
var vasaorustuskipið á siglinga-
leiðum við Góðrarvonarhöfða á
Austur-Atlantshafi. Þar sökti það
fjórum gufuskipum, Newton
Beach, Ashlea, Huntsman og
Trevanion. Yfirmenn og skipshafn-
ir voru fluttar um borð í Altmark,
sem var í sambandi við Graf
Spee frá 14.—18. október. Árás-
arskipið fjekk nýjar olíubirgðir,
og frá einu herteknu skipanna
voru teknar birgðir. Þýska dag-
bókarhöfundinum farast um það
orð á þessa leið;
„Við tökum miklar birgðir, það
verðmætasta er úr Huntsman og
er flutt um borð í Altmark og
Spee. Aðal vörurnar eru te, gólf-
teppi, hvítir skór og sólhjálmar".
Það er einnig vitað, að Þjóðverj-
ar sóttust eftir öllum tækjum,
eins og t. d. kronometrum, sólar-
hæðarmælirum og sjónaukum.
Frjettirnar um nð skipunum