Lesbók Morgunblaðsins - 02.03.1941, Side 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
79
Graf Spee í björtu báli.
há. Hið fríða skip sprakk.
Alt skipið var eitt eldhaf,
en ekki fórn í höndum óvin-
ar. Skipið brann ......... nú
var aðeins einn fáni sjáanleg-
ur og síðan hvarf skipið í sæ.
Breska beitiskipið sendi flug-
vjel til að athuga .... Þegar
það varð kunnugt að öll skips-
hÖfnin hafði yfirgefið skipið
getur enginn ímyndað sjer á-
nægjuna sem það vakti. Jeg
sá marga menn tárfella, eins
gerðum við. Stundin var of
áhrifamikil fyrir okkur. Þess-
ir góðu drengir, þetta fríða
skip .... Hálfri stundu síðar
tilkynti herstjórnin, að for-
inginn hefði fyrirskipað að
skipið skyldi eyðilagt .... “
Langsdorff skipherra hafði ver-
ið í sambandi við Berlín, bæði með
loftskeytum og símasambandi, og
það er vitað að hann talaði í síma
við Hitler sjálfan. Opinber þýsk
frjettastofa tilkynti;
„Það hefir verið gert kunn-
ugt, að foringinn og æðsti her-
foringi gaf Langsdorff skip-
herra skipun um að eyðileggja
skipið með því að sprengja
það upp, þar sem ríkisstjórn
Uruguay neitaði um leyfi til
að skipið fengi að vera í höfn
nægilega lengi til að hægt
7æri að gera það sjófært“.
Klukkan 8.45 tilkynti flugmað-
urinn á Ajax-flugvjelinni: „Ad-
miral Graf Spee hefir verið
sprengdur af eigin skipshöfn". —
Bresku beitiskipin þrjú hjeldu í
áttina til Montevideo og fóru fyr-
ir norðan Banco Ingles. Á leið-
inni stöðvaðist Ajax til að taka
fiugvjel sína um borð og Achilles
fór framhjá rjett hjá. Á þilförun-
um var krökt af sjóliðum og
gleðihróp skipshafnanna heyrðust
langar leiðir er skipshafnirnar
skiftust á gleðihrópum — Bretar
og Ný-Sjálendingar.
Með fullum ljósum sigldi flota-
deildin framhjá hljóðduflinu, sem
markar innsiglinguna til Monte-
video og innan fjögra mílna frá
Admiral Graf Spee. Harwood flota
foringi skrifaði í skýrslu sína:
„Það var orðið dimt og skipið
logaði stafna á milli, eldtungurn-
ar náðu alveg upp með stjórn-
turninum, stórkostleg og gleðileg
sýn!“
★
Það skiftir minstu mál hver fyr-
irskipunina gaf um að eyðileggja
Graf Spee. Skipið var sprengt um
5 mílur frá höfninni í Montevideo.
Stórkostleg sprenging hristi hús
í borginni og stórir reykjarstólpar
risu til himins. Logarnir sleiktu
brátt skipið stafna á milli. Fimm
mínútum síðar heyrðist önnur óg-
urleg sprenging, sem sennilega
hefir verið er ein skotfærageymsla
skipsins sprakk. Mikið af yfir-
byggingu skipsins fór í sprenging-
unni, en reykháfurinn og stjórn-
turninn stóðu upp og sáust enn.
Skipið sökk á um 26 feta dýpi.
Eldur kom upp í olíubirgðum
skipsins og sleikti sig upp með
yfirbyggingu skipsins. Um tíma
virtist geysimikið flæmi á sjónum
vera eitt eldhaf. Þetta var stór-
kostleg sýn í myrkri kvöldsins.
Fleiri sprengingar urðu og eldur-
inn, logaði enn næsta morgun. Kl.
9.45 fjell reykháfurinn og nú sást
lítið eftir af skipinu nema stjórn-
turninn.
Flakið, eða það sem eftir er af
hinu eitt sinn svo fríða skipi, er
til trafala á ytri höfninni á Monte-
video og frá skipum, sem sigla til
og frá Montevideo og Buenos
Aires, má sjá flakið. Þetta flak
er ekki minnismerki um getu
þýska flotans heldur er það minn-
ismerki um breska sjómensku og
hreysti.
Blaðamanni frá New York Times
fórust svo orð í blaði sínu:
„Þessi orusta var unnin, er Graf
Spee, þrátt fyrir hinar kraftmiklu
fallbyssur sínar, var neyddur til
að flýja í skjól frá sjóhernaðar-
kænsku, sem er söguleg staðreynd
og arfur í breska flotanum“.