Lesbók Morgunblaðsins - 02.03.1941, Síða 8
80
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Af 1153 yfirmönnum og undir-
mönnum á Graf Spee, voru 30
jarðaðir í Montevideo, 40 voru
áfram á spítala og 32 í þýsku
sendisveitinni eða um borð í Tac-
oma. Þeir 1054, sem þá voru eftir,
komust til Buenos Aires á tveim
dráttarbátum í eigu Þjóðverja,
þar sem yfirvöldin tóku við þeim.
Langsdorff skipherra.
Að kvöldi hins 19. desember
framdi Langsdorff skipherra sjálfs
morð í hergagnabirðastöð flotans
í Buenos Aires. Það er sagt að
áður en hann skaut sig með skamm
byssu sinni hafi hann gefið liðs-
foringjum sínum myndavjelina
sína og aðra persónulega smáhluti
til minningar um sig. Einnig er
sagt að hann hafi kallað saman
liðsforingja sína og skipshöfn,
haldið yfir þeim ræðu, þar sem
hann gaf þeim til kynna um fyrir-
ætlun sína og þar sem hann sagði
að hann hefði heldur viljað fara
út og berjast, en .yerið bannað
það af æðri yfirvöldum. Lík hans
fanst klætt sjóliðsforingjabúningi
og sveipað fána hins gamla keis-
aralega Þýskalands, en hann hafði
gengið í sjóherinn þýska 1912.
Sjálfsmorðið var tilkynt frá
skrifstofu þýska sendiherrans í
Buenos Aires:
„Skipherra hins glæsilega beiti-
skips Admiral Graf Spee, Langs-
dorff skipherra, fórnaði' lífi sínu
fyrir ættjörðina í gærkvöldi með
því að ráða sig af dögum af sjálfs-
dáðum. Frá upphafi hafði hann á-
kveðið að láta eitt yfir sig og skip
sitt ganga og einungir sjálfsstjórn
hans og skylda við menn sína að
koma þeim heilu og höldnu í land
fjekk hann til að fresta ákvörðun
sinni, þar til hann hafði komið
rúmlega 1000 skipsmönnum sínum
örugglega á land. Yfirmönnum
hans var vel kunnugt um áform
hans. Þegar þessu skylduverki var
lokið beygði hann sig fyrir for-
lögum sínum, hraustur sjómaður,
sem hefir ritað enn eina síðu til
heiðurs hinum þýska flota“.
Þann 20. desember gaf yfir-
stjórn þýska flotans út aðra til-
kynningu:
„Hans Langsdorff skipherra átti
enga ósk um að lifa eftir að skip
hans var sokkið. Trúr gömlum venj
um og í samræmi við kenningar
liðsforingjafjelagsskapar, sem hann
tilheyrði í nærri þrjá tugi ára,
tók hann sína ákvörðun .... Flot-
ir.n skilur og virðir gerðir ham>.
Sem bardagamaður og hetja gerði
Langsdorff skipherra það sem for-
ingi hans, þýska þjóðin og flot-
inn ætlaðist til af honum“.
Þrátt fyrir alt þetta kom sjálfs-
morð Langsdorffs skipherra þýsk-
um yfirvöldum á óvænt. Þýska
áróðursmálaráðuneytið átti bágt
með að skýra, hvernig á því gæti
staðið að maður, sem það sagði
að hefði unnið orustu og komið
hreystilega fram, hafði ástæðu ti!
að fremja sjálfsmorð. Samkvæmt
skýringum fjölda blaðamenna,
bæði í Montevideo og Buenos
Aires, varð Langsdorff skipherra á
alvarleg sálfræðileg skyssa, sem án
efa jók á vonbrigði hans og leiddi
til þess að hann kaus að fremja
sjálfsmorð. Hann misskyldi virð-
ingu þá,- sem almenningur í Monte-
video sýndi hinum látnu sjóliðum
hans sem fögnuð hins suðræna
fólks yfir því sem hann og menu
hans höfðu gert í sjóorustunni.
Hann fór til Buenos Aires í þeirri
von að þar yrði honum tekið sem
sigurvegara, en mætti í þess stað
kulda.
Yissulega var sigurinn yfir
Graf Spee jafn vel þeginn um alla
Ameríku og í hinu breska heims
veldi. Amerískur blaðamaður, sem
skrifaði um orustuna, sagði: „Ó-
sjálfrátt mun almenningur bera
saman þetta atvik í Buenos Aires
og það sem átti sjer stað í hinu
stormasama, kalcj^ Norður-Atlants
hafi, er Edward Kennedy, skip-
stjóri á hjálparbeitiskipinu Rawal-
pindi, sá systur Graf Spee birtast
í mistrinu. Gröf Kemnedy skip-
stjóra er í Norður-Atlantshafi.
Langsdorff skipherra mun liggja
í gröf, sem er annars eðlis. Heim-
urinn mun hugsa með sjer, hvort
sjálfsmorðshugsunin gangi ekki
eins og rauður þráður sorgar og
örvæntingar gegnum raði nazista-
skipulagsins”.
S U. á k
London 1899.
Hvítt: Wilhelm Steinitz.
Svart: Emanuel Lasker.
1. e4, e5; 2. Rc3, Rf6; 3. f4,
(Ekki talið gott, en gefur þó
svörtu vandasama stöðu) 3.......
-d5; 4. d3, Rc6; 5. fxe, Rcxp; 6.
d4, Rg6; 7. pxp, (7. e5, er ekki
talið gott) 7. .... Rxp; 8. RxR,
(Betra var Bc4, eða Rf3. Svart
nær nú sókninni) 8.....DxR; 9.
Rf3, Bg4; 10. Be2, 0—0—0; 11.
c3, Bd6; 12. 0—0, IIhe8; 13. h3,
Bd7; 14. Rg5?, (Með þessum leik
ætlaði Steinitz að vinna tíma tii
þess að leika Bf3, og ná sókn
drotningarmegin)
14......Rh4!; 15. Rf3, (Ef 15.
Bf3, þá RxB-þ; 16. RxR, Bf5; og
síðan Bg3; með yfirburða stöðu á
svart) 15.....Rxg2!!; 16. KxR,
Bxp!!; (Nú getur dauðlegur mað-
ur fyrst látið sjer detta í hug að
eitthvert vit sje í fórninni) 17.
Kf2, (Ef 17. KxB, þá Df5+; 18.
Kg2, Dg4+; 19. Khl, Dh3+; 20.
Kgl, Dg3+; 21. Khl, He4; og nú
sjáum við að meiningin með 15.
leik svarts, Rxg2, var að máta
hvíta konginn. Það er venjuleg-
um manni óskiljanlegt, hve yfir-
burðamennirnir geta skilað mik-
illi vinnu á skömmum tíma) 17.
.... f6!; (Lasker er ekkert að
drepa hrókinn. Hann veit að peð-
in eru riddara ígildi og meira til)
18. Hgl, g5; 19. Bxp!, (Seinitz
sjer að eina vonnin er að endur-
fórna) 19.....pxB; 20. IIxp, (Og
nú er aftur alt jafnt — nema
staðan) 20......De6; (Hótar að
vinna mann) 21. Dd3, Bf4; 22.
Hhl, BxH; og hvítt gaf eftir
nokkra leiki. — Lasker fekk
fyrstu verðlaun fyrir þessa skák.