Lesbók Morgunblaðsins - 03.05.1942, Qupperneq 1
JföcrðttttMaðsitts
11. tölublað. Sunnudag-ur 3. maí 1942. XVII. árgangur.
li»foliUrpnoUBl8)l h.».
Einar E. Sæmundsen:
FÁKUR TVÍTUGUR
VeríSlaunagarparnir sumaritS 1922.
Inga-Skjóni, Sörli og Brúnn úr Hvítárósi. --- Knaparnir í sömu röí: Pjetur
Helgason, Pjetur Þorgrímsson og Þorsteinn FjeldsteíS.
jJ estamannafjelagið Fákur á
tuttugu ára afmæli um þess-
ar mundir. Raunar kann það að
'irðast dálítið undarlegt, að þeir,
sem gerst mega vita, hafa eigi
avalt orðið á eitt sáttir um af-
•fiffilisdaginn. En það er upphaf
^áks, að á útmánuðum 1922 beitt-
Ust nokkurir áhugasamir hesta-
^enn í Reykjavík fyrir því, að
haldinn var fundur til þess að
r®ða um væntanlega fjelagsstofn-
un reiðhestaeigenda í bænum. Var
Sa fundur háður 29. dag marsmán-
aðar. I>ar voru allir á einu máli
nauðsyn slíks f jelagsskapar og
finim menn kjörnir í nefnd til
Þess að semja frumvarp að fje-
iagslögum, er leggja skyldi fyrir
nœsta fund. En svo öruggir voru
iundarmenn um stofnun fjelags-
ms, að því var þá þegar gefið það
nafn, er það' hefir borið síðan:
Hestamannafjelagið Fákur.
Næsti fundur var svo háður 18.
aPríl. Þar lagði laganefndin fram
frv. sitt, en eigi þótti ráðlegt að
ieita atkvæða um frv. í það sinn,
Því að all-margir voru f jarstaddir.
er ákveðið höfðu að gerast fje-
lagsmenn. Var því framhaldsfund-
ur háður 24. dag aprílmánaðar og
lögin þá -samþykt.
Sumir hafa því viljað telja af-
mælisdag Fáks 29. mars, daginn,
sem honum vgr nafn gefið, aðrir
18. apríl, en flestir munu þó, nú
°rðið a. m. k., telja hann 24. apríl,
daginh sem fjelaginu voru lög
sett og fyrsta stjórnin kjörin.
H.
Eigi fór það dult, hver verða
átti hinn snari þáttur í starfi
Fáks. Stefnan var skýrt mörkuð
í lögum fjelagsins: .... „að efla
áhuga og þekkingu á ágæti hesta
og hestaíþróttum og stuðla að
rjettri og góðri meðferð þeiira“.
En þessum tilgangi hugði Fákur
fyrst og fremst að ná með því:
„að eignast haslaðan skeiðvöll og
efna þar til kappreiða á hverju
ári“.
Og för þessa knapa, sem talið
gat sjer þrjá afmælisdaga á ári,
varð með þeim myndarskap, er
hann hlevpti úr hlaði, að þegar
var hafist handa um skeiðvallar-
gerð inn við Elliðaár, og svo ó-
sleitilega unnið, að þar háði Fák-
ur fyrstu kappreiðar sínar sunnu-
daginn 9. júlí 1922 við ágætan
hestakost og afar mikið fjölmenni
áhorfenda. Og á þessum 20 árum
hefir Fákur efnt 45 sinnum til
kappreiða á skeiðvelli sínum við
Elliðaár og auk þess staðið að
kappreiðum þeim, sem háðar voru
í Bolabás í sambandi við Alþing-
ishátíðina sumarið 1930.
Verður því eigi annað sagt, en
Fákur hafi reynst trúr þeirri
stefnu, er honum var mörkuð í
upphafi. Þó mun hitt eigi ómerki-
legra þykja, að þessi tvítugí
unglingur hefir greitt í verðlaun-
nm einum saman fast að 34 þús-