Lesbók Morgunblaðsins - 08.12.1943, Qupperneq 5
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS
365
se
■
Hvað er það, sem kallað er rafeindafræði?
Hún fær nafn af rafeindunum, sem 'eru örsmáar agnir, er
frá stafar rafmagn, þegar þær snúast í brautum, svo sem
reikistjörnur um sól. Þær eru grundvöllur alls, lífs og
dauðs. —
Vísindamönnum hefir ekki tekizt til þessa að mæla raf-
eind, en fullgild ágizkun er að séu 25 billjónir (25 með 12
núllum á eftir) rafeindir lagðar í röð hlið við hlið er hún
1 þumlungur á lengd.
*
Edison, hinn mikli ameríski uppfinningamaður, sýndi að
hægt væri að ná rafeindunum út af braut sinni og dreifa
þeim um rúmið. En hann vissi ekki hvað hann var að gera
þá. Síðan hann var með þetta, hefir verið fundið að þessar
lausu rafeindir geta farið með hraða ljóssins — 300.000 km.
á sekúndu. Það er hægt að senda þær út í mergð mikilli eða
öldum, eins og við köllum það. Rafeindalokar eru pípur með
tómrúmi. Með þeim má stjórna öldunum.
Rafeindafræðin lofar því að hægt muni verða að opna
fyrir hita eins og hljóðfæraslátt nú. Að almennt verði not-
að: Lögun andrúmslofts í heimilum. Betri hlustunarskilyrði
á útvarpsskrámar og ef til vill smá útvarpstæki, sem hafa
má á sér og nota til einkasamtala við mann í fjarlægð.
Saumavél, sem getur saumað án nálar og tvinna.
liyssuskothríð, segja kögunar-
manni ílugvéla til, þegav óvina-
flugvél nálgast. lÖngu áður en
hún er sýnileg eða lieyranleg,
segja stjórnanda næturorustuflug-
vélar hvenær næturárásar-
sprengjuflugvél er komin í skot-
færi, og að starfa fyrir herstjórn-
ir í landi, sjó og í lofti á hundr-
að aðra vegu,
Vyrir eigi löngu síðan var píp-
an brothætt leikfang, því næst
fíngert verkfæri Nú er hún traust
áhald, er nota má á þúsund vegu,
frá því að flýta iðnaðarstörfum,
svo sem logsuðu, stálherzlu og
þurrkun krossviðar, allt upp í
það að starfa við síendurtekna
vinnit, svo sem hraðamælingu,
prófun og talningu smíðistykkja.
Jarðfræðingar nota hana til á-
kvörðunar á legu. málmalaga
djúpt í jörðu niðri. Hún er not-
uð á spítölum til að gera varn-
artjald úr útfjólubláum geislum,
sem sóttkveikjur komast ekki
gegnum. liún getur greint næst-
uni ómerkjanlega breytingu á ör-
smáum rafstraumum heilans og
fundið með því æxli.
Fluorskin er rafeindaljós. í
stórum byggingareit í London
hefir nýlega verið höfð skipti á
„dagsljósa“-kúlum, er voru nýj-
ung þegar stórhýsin voru byggð,
en nú eru úreltar, en settar í stað-
inn Fluorskins ljóspípur. Mismun-
urinn var hér um bil sá sami og
er á sólarlausum og sólbjörtum
degi.
Stjórn á lögun andrúmsloft,
innanhúss-samgöngum, dyrum er
opnast er einhver nálgast þær, en
lokast á eftir manni, gluggum er
opnast eða lokast við skipun, eru
allt hinar óbrotnustu notkunar-
aðferðir rafeindatækjanna. Eru
sumar þeirra í notkun í nýtízku
skrifstofum, í orustuskipum, í há-
loftsflugvélum, í nýjum verksmiðj
um, í höllum milljónamæringa.
Astæðan fyrir því að sumar
þessara aðferða eru ekki í al-
mennri notkun er sú, að þær eru
enn of nýjar og kostnaðarsamar.
Tækin eru enn öll handgerð. Það
er ekki hægt að gera þau enn
ineð fjölsmíðiaðferðum.
Hvað getur rafeindapípan gert
fvrir oss á morgun 1
Hún getur aukið vinnuafköst,
vtmdað líf og limu, aukið ná-
kvæmnina. Hún getur greint liti
miklu nákvæmar en mannsauga
getur einsamalt. Talið hluti er
fram hjá fara miklu hraðar en
auga greinir. Heyrt hljóð, sem
eyrað getur ekki. Aukið sjón-
magn smásjárinnar, þangað til
hægt er að telja veiðihár sótt-
kveikjanna.
Hún getur stjórnað sjálfvirkt
yfirferð uin stræti og götuum-
ferð. Komið í veg fyrir árekstra
flugvéla og eimreiða, fækkað
stórlega eða jafnvel algjörlega
slysum í iðnaði. eytt revk og
mörgum sjúkdómum.
f flugi í dag er hætta á ferð-
um í slæmu skygni og þoku. Her-
toginn af Kent dó í árekstri flug-
vélar. þegar mistur huldi fjalls-
hlíð.
Á morgun mun lítið tæki,
byggt á rafeindapípunni og kom-
ið fyrir í nefi flugvélar, veita
algert öryggi, með samstarfi fjar-
lægðarmælingar til staðarákvörð-
unar og fjarsýni. Á hverri sek-
úndu mun tækið skjóta út milljón-
um „fálmanga“ úr efniseindun-
um, og þjóta þær af stað með
hraða Ijóssins. Þessar ljósvaka-
byssukúlur endurkastast og sýna
samfellda mynd á spjaldi, sem er
fyrir framan augu stjórnanda
flugvélarinnar, af landslaginu
framundan og undir vélinni. Flug-
vélin getur lent í þykkri þoku.
Galdurinn liggur í því að búa
rafeindapípuna út svo, að hún
starfi með þeim tækjum, sem þeg-
ar eru kunn eða endurbætt og
með vélunum. Pípan eykur allt.
Hún evkur aflið, sveiflurnar, hit-
ann, eininguna, hraðann.
Hérna er símastrengur. Hann
getur flutt 50.000 samtöl í senn.
Setjum rafeindapípu við hann og
þá getur hann greint 500.000 radd-
ir í þessum eina streng. Með
þessu móti fást fleiri samtöl
lengri veg en áður, yfir úthöfin,
og við lægra verði.
Aðferðir í iðnaði, sem eru nú
ógerlegar vegna kostnaðar, verða
hagnýtar. Vörur verður hægt að
búa til í meiri mergð en áður og
með minni vinnu, Landbúnaðar-