Lesbók Morgunblaðsins - 26.11.1944, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 26.11.1944, Blaðsíða 6
470 IÆSBÓK MORGUNBLAÐSINS liiuisit þessara mála bíður án efa um skeið, því að bæði skortir menn til að leysa þau af hendi, og auk þess getur lausn livers þeirra tekið nokkur ár. En hins vegar er brýn nauðsyn tii að hefjast handa strax, er i'æri gefst. Skógarnir og ierðamenn Þótt flestir iíti svo á. að aðal nvtjar skóganna sé viðarframleiðsla og landvörri. má alls ekki gleyma ]>eim þætti, hvaða hressingu og hvíld menn geta sótt sjer í skóg- ana í fristundum sínirm. Margar Jijóðir hafa gert sjer þetta Ijóst og gert ýmsar ráðstafanir til þess, bæði að greiða götu ferðafólks um skóglendin og hvetja fólk til þess að eyða frístundum sínum á þeim stöðum, í jafn skógsnauðu landi og hjer er enn meiri ástæða 'iil þess að auðvelda fólki dvöl í þeim skóglendum, sem liggja næst al- fara leið. enda mun óhætt að full- yrða. að sumir skóganna eru lang fjölsóttustu staðir landsins, að Þing völlum einum undanskildum. Á síðari árum hafa sumarferða- lög manna farið mjög í vöxt og með framkvæmd orlofslaganna munu ferðalög enn aukast mjög. I>að getur aldrei hjá því farið á fjölsóttum stöðum, að ferðamenn þurfi á leiðsögn að halda, og eins verður eigi umflúið, að staðirnir beri merki þess, að þeir líafi verið sóttir heim. Dæmi eru til þess, að á fjórða þúsund manns hafi komið í Vaglaskóg á einum sunnudegi að sumarlagi, en um hverja helgi frá því í miðjum jiiní og fram í september leita þangað fleiri hundr uð. og stundum þúsundir manna, auk þess, sem margir dvelja þar um lengri eða skemmri tíma. Má óhætt telja, að 20—30 þúsund, manns komi árlega á þennan stað. Því er nú miður, að mikið hefir borið á skemmdum í skógi af völd- um einstöku gesta og mikill kostn- aður er orðinn samfara því, að hreinsa skóginn eftir hverja helgi sakir skemmdarfýsnar, kæruleysis og sóðaskapar einstöku manna, þrátt fyrir að menn eru stöðugt á ferð þegar flest er í skóginum til þess að líta eftir og leiðbeina fólki. I Ilallormsstaðarskógi kem- ur og mesti fjöldi árlega. ])ótt hann komist ekki í hálfkvisti við að- sóknina í Vaglaskóg. Þar hafa um þúsnnd manns komið saman á einum. degi, og með bættúm vegum verð- ur þetta mjög fjölsóttur staður. I Ásbyrgi kemur og fjöldi manns árlega, og margir búa þar í tjöld- um um stundarsakir. Þá er Þ.jórs- árdalur og mjög fjölsóttur staður sunnanlands, og meira að segja fer allmargt fólk inn á Þórsmörk ár- lega, enda þótt það ferðalag sje bæði dýrt og erfitt. Árið 1940 komir þar um fióO manns í júlí og ágúst, en síðan hefir straumurinn þangað atikist. Á öllum þéssum stöðum nema í Þórsmörk, hefir verið nokkuð eftirlit með ferðafólki og hreinsað til eftir það, svo sem kostur hefir verið á. Þetta hvort tveggja hefir kostað skógræktina mikið fje á ári hverjUj en hefði vel átt að vera hefði þurft að kosta all miklu meiru til. Þess hefir ekki verið kostur hingað til, en æskilegt %væri að þetta mál fengi góða úrlausn í fram- tíðinni. Mjög væri æskilegt, ef komið væri upp skálum á fjölsóttustu stöðunum, þar sem fólk gæti haft gott afdrep í misjöfnu veðri og jafnvel átt kost á einfaldri og ó- brotinni gistingu og veitingum, eftir því, sem álitin væri þörf á hverjum stað. Með því móti má beina umferð fólks meira að á- kveðnum stöðum og því auðveld- ara að sjá um góða umgengni, veita mönnum leiðbeiningar og jafnframt draga i'ir hættu þeirri, sem nú er t. d. á Vöglum, að fólk kveiki í skóginum fyrir ógætilegan umgang með eld. TTvers konar fyrirkomulag haft verður á rekstri slíkra skála verður reynslan og tíminn að leysa úr. ITvort t. d. Ferðafjelag Islands eða einstakir gestgjafar vildu taka þetta að sjer. En það verður varla hafið nema með því, að skógrækt- in sjálf ieggi eitthvað af mörkum til þess að svo megi verða. Framkvæmdir skógræktarmála Þá er að því komið, á hvern hátt framkvæmdir við skógrækt og trjá- rækt verði af hendi leystar, þannig að þær komi að sem mestu gagni og sem flestum að notum. Nú er skógræktarmálunum stjórnað af skógræktarstjóra og fjórum skógar vörðum. Kkógræktarfjelag Islands ásamt 16 hjeraðsskógræktarfjelög- um vinna einnig að framgangi máls ins. Starfssvið hjeraðsfjelaganna er oftast sýsla eða lögsagnarumdæmi eins og nöfn fjelaganna benda til, en þau eru: Skógræktarfjelag Eyfirðinga. — Skagfirðinga, Árnesinga, Austurlands, (Múlasýslurnar báðar), Vestur-Barða- strandarsýslu, Vestur-lsafjarð arsýslu, A.-Húnavatnss. S.-Þingeyjars. — Rangæinga,

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.