Lesbók Morgunblaðsins - 26.11.1944, Page 7
IíESBÖK MOROUNBLAÐSINS
471
— •------
»
Birkiskógur í Lýsishólum á. Hallormsstað, vaxinn upp af lágvöxnn
kjarri á 30 árum. Meðalhæð trjánna er 6y2 meter.
S k óRi'ce k ta r f j el a g Ves t m .ey i n ga,
Seyðfirðinga,
Siglfirðinga,
Svarfdæla
— Akraness,
En auk þess eru að komast á
fót Skógræktarfjelag Vestur-Skaft-
fellinga og Dalasýslu. Mörg þessara
fjelaga, en þó einkum hin elstu og
fyrst töldu, hafa unnið mjög mik-
ið starf, og það er engum vafa und-
irorpið, að framgangur skógræktar-
málanna er mjög undir því kominn,
að starf fjelaganna takist vel og
giftusamlega. Veltur því á miklu
að vcl sje að fjelögunum búið,
enda hefir reynslan sýnt, að á
móti styrk þeim, sem fjelögin hafa
fengið af oj)inberu fje, hafa þau
venjulega lagt tvöfalda og oft þre-
falda fjárhæð á móti. Það seni
aðallega háir starfsemi þeirra fje-
laga, sem mest hafa afrekað, er,
að þau skortir menn með góðri
])ekkingu á trjá- og skógræktar-
málum til þess að leiðbeina mönn-
um og aðstoða þá í starfinu. Og
þetta mun líka há hiniun yngri
fjelögum þegar störfin vaxa.
Það er engin von til þess, að
skógræktarstjóri og 4 skógarverð-
ir geti leiðbeint ölíum þessum fje-
lögum svo að nokkru gagni megi
verða, enda eru skógarverðirnir
önnum kafnir við ákveðin störf
vor, sumar og haitst. Á vorin, þeg-
ar mest þörf er fyrir leiðbeininga-
störf, eru þeir allir bundnir við
vorannir í gróðrarstöðvunum og
eiga því alls ekki heimangengt.
Lausnin á þessu máli hlýtur því
að verða sú, að fenginn verði mað-
ur í hverja sýslu landsins til þess
að annast leiðbeiningarstarfið þeg-
ar áhugi sýslubúa er orðinn nógu
mikill og athafnir skógræktarfje-
laganna eru orðnar svo umfangs-
miklar að ætla má,' að leiðbeinandi
hafi þar nóg að starfa. Slíkir menn
þyrfti eigi að hafa jafn víðtæka
menntun og skógarverðir, en vita
góð og glögg skil á öllu, er lýtur
að sáningu, gróðursetningu og hirð
ingu trjáplantna og vera vanir
girðingarvinnu og öðru er nauðsyn-
legt þvkir. Starf þeirra ætti fyrst
og fremst að vera fólgið í að leið-
beina mönnum með því að ferðast
um og koma við á hverjum þeim
stað, er þörf gerðist, og vinna við
bjarkarfræssáningu, en sú aðferð
til þess að koma upp skóglendum
mun án minnsta vafa ryðja sjer
mjög til rúms á næstu árum.
Ennfremur ætti þessir menn að
hafa eftirlit með öllum þeim fram-
kvæmdum, sem gerðar hafa verið,
en slíkt er bráðnauðsynlegt til þess
að fje það, sem varið hefir verið
til starfsins, fari ekki meira og
minna forgörðum.
Menn þessir ætti að vinna í sam-
ráði við og eftir fyrirmælum skóg-
í-æktarstjóra og skógarvarðarins í
þeinr landsfjórðungi, er þeir búa,
og á vegum skógræktarfjelags hjer-
aðsins. Meira að segja ætti þeir
að annast allan rekstur fjelagsins
Framhald á bls. 476