Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 21.10.1945, Qupperneq 2

Lesbók Morgunblaðsins - 21.10.1945, Qupperneq 2
49S LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Hjá Vtrafellsmúla. þarna var byrjað á laxaklaki og vænta menn þess að hægt verði að fá mikla laxveiði í ánni þegar fram líða stundir, enda sýnist hún ágæt- lega til þess fallin að láx gangi í hana, ef selur fælir hann ekki frá. Kjallaksstaðaá er vatnsmesta áin á ströndinni og óbrúuð. Komast bílar því ekki leugra en að henni. ílún myndast af tveimur ám, Flekkudalsá og Tunguá (Galtar- dalsá). Flekkudalur er stærsti dal- urinn hjer og nær eins og aðrir upp að Skeggöxl. I honum var fyrrum bygð og talið að þar hai'i verið þessir bæir: Staðarbakki (kirkju- staður), Hríshlíð, Dyngja, Hólmkot (eða Ilólkot) og Túngarðshólar. Nú er dalurinn í eyði og er þar upprekstrarland. (Á Staðarbakka var vel lilaðinn brunnur með góðu vatni, en áin braut hann fyrir 60 til 70 árum). I tungunni milli Flekkudalsár og Galtardalsár, upp undir Tungufclli, cru Litla- og Stóra-Galtardalstunga. Litla-Tunga cr nú í eyði og keypti hana kona hjer í Reykjavík fyrir fáum árum. Þegar koinið er yt'ir Kjallaksstaðaá kcmur bærinnArmót cr þar lítil bvgging, með þremur svörtum stafnþiljum. Þar næst koma Kjallaksstaðir niður undir sjó og gengur nes þar fram fvrir vestan. Ilinum mcgin við það nes myndast sjávarvogur m.jög grunn- ur og fyrir botni hans stendur bær- inn Vogar sem Bjarni frá Vogi cr við kendur. — Bærinn hefir nýlega vcrið fluttur. — Núverandi ábú- andi tók við jörðinni í stríðsbyrj- un, og þá var gamli bærinn fallinn. Bygði liann sjer þá bráðabirgða- skýli, torfhús, sem orðið hcfir að duga Iionum öll stríðsárin vegna skorts á byggingarefni. Víghólsstaðir heitir næsti bær og stendur upp undir fjalli. Er þar grösug hlíð með klettabeltum fyrir ofan bæinn. Vegurinn liggur nú yf- ir klapparkolt nokkur. og heita þar Ekrur. Ætla sumir að þar sje staðurinn þar scm þeir vildu báðir sá, Kjallakur og Geirmundur helj- arskinn, og börðust út af því, en samkvæmt sögunni heíir það verið utar á nesinu. Þarna er bærinn Ormstaðir; þar er huldubygð og er til saga um að álfkona læknaði barn þar á bænuin árið 1790. — Nær fjallinu cr bær- inn Stakkaberg. Rjett hjá bænum fcllur á í fallegum fossum uiður af fjallinu. Það er Fábeinsá og er hún þó fremur vatnslítil. Úr því að minnst var á sáðland, má gcta þess, að allar líkur benda til að hjer um slóðir hafi verið mikil akuryrkja til forna. Jón Gisla son prestur í Hvammi segir (1839): „Þeir inörgu akrar fyrir korn, sem þótt liggi víða með sjó undir á- minstum báðum fellsbrúnum, eru nú einber holt, svo að cins sjiist deili til akurreina". í HrappSey, scm er fræg fyrir það, að þar var prentsmiðja frá 1773, segir Kristján Magnússen sýslumaður að hafi ver- ið talsverðir akrar, ,,og kallast mi Akurtún". Enn fremur scgir liann að í Akureyjum virðist hafa verið sáðlönd, því að víða sjáist þar til þess háttar girðinga. Síra Friðrik Eggerz gctur þess. að í hólma, sem er frani a£ Ballará, hafi verið sáð- land fyrruin. „Undir hnausuui, sem upp hafa verið stungnir í sáðreit- um, hafa fundist ertur“. Hann scg- ir ennfremur, að á stóru holti fyrir utan baúnn á Ormstöðum megi sjá að sáðland haí'i verið, umgirt af fommönnum. ★ Við erum í iandnámi Kjallekinga. Landnáma segir svo um það: Kjal- lakur hjet maður, son Bjarnar hins sterka, bróðir Gjaflaugar, cr átti Björn hinn austræni; hann fór til Islands og natn land frá Dögurðará (þ. c. i'rá landnámi Auðar djúp- úðgu) til Klofninga, og bjó á Kjallaksstöðum“. í landnámi hatis hefir verið Dagverðarnes og hinar næstu eyjar. Hann átti mörg börn, enda var hann nefndur Barna-Kjal- lakur, og segir Landnáma nokkuð frá því hvernig hann skii'ti land- námi sínu á tnilli þcirra. Sjálfur bjó hann á Kjallaksatöðum, en syn- ir hans á þessum bæjunt: Þorgrím- ur þöngull á Staðarfelli, Asbjöru vöðvi á Orrastöðum, Björn hval- tnagi í Túngarði, Gissur glaði í Skoruvík, Þorbjörn skrofuður á Ketilsstöðum. En Æsa systir þeirra bjó í Svíney, sem nú kallast Purk-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.