Lesbók Morgunblaðsins - 21.10.1945, Page 10
LESBÖK M0RGUNBLAÐ9INS
r.06
Lag: „Helgum
Undurfagra Úlfljótsvatn
aldna kirkjujörð.
Æskan bjarta auðnurík
um þig heldur vörð.
Guði vígð þú geymir mátt
og glæðir hugans þrá.
Hjá þjer ljómar heiðið blátt
og hjalar sjerhvert strá.
frá döggvum".
Langeldar frá landnámsöld
lýsa hjer á ný.
Sama elfan Sogið breitt
og sólin björt og hlý.
Hefja skal hjer skátaöld
og skapa nýja tíð.
Friði og drengskap veitum völd
er vari ár og síð.
Jón Oddgeir Jónsson.
ÁgústsSbn, Þórarinn Björnsson og
Þorsteinn Einarsson, íþróttafulltrúi.
Skólanum slitið.
SKÓLANUM var slitið klukkan
5 á sunnudagskvöld. Aliir nemend-
ur voru samankomnir í gamla skál-
anum. Páll Gíslason afhenti skír-
teini fyrir þennan fvrsta hluta
skólans, en hinir tveir hlutarnir
eru skrifleg verkefni, sem levsast
eiga á næsta ári, svo og skýrsla um
störf, sem unnin eru á grundvelli
þeirrar kennslu, er þarna hafði
farið fram.
Páll þakkaði kennurum og nem-
endum þessa stuttu en skemmtilegu
samverudaga, sem, þrátt fyrir regn-
ið og ýmsa örðugleika, verða okk-
ur ógleymanlegir dagar. Brynja
Illíðar og Jón Tómasson þökkuðu
Bandalaginu og skólast.fórninni
fyrir hönd nemenda. — Bent Bent-
sen fjelagsforingi Skátafjelags
Reykjavíkur og Daníel Gíslason
tölnðn til nemendanna. Skátahöfð-
inginn sleit síðan skólanum, og að
lokum var þjóðsöngurinn snnginn.
■— Þá var skift niður í flokka til
þess að ganga frá staðnum undir
veturinn og var því lokið um klukk
an 8. Svo var haldið heim til ann-
ara starfa, en minningin Tim þessa
daga mun lengi lifa, og áhrif þeirra
þerast um landið til heilla skáta-
hreyfingunni og starfsemi hennar.
„Vertu viðbúinn".
ÞESSI merkilega starfsemi að
Tjlfljótsvatni er ennþá á byrjunar-
stígi, en þó er nú fengið fast form á
skólann, sem hægt er að byggja á,
í framtíðinni, auka við og endur-
bæta. enda er nii þegar 5 ára
reynsla fvrir hendi. Okkur er það
öllum ljóst, að þessi skólatími 'er
allt of stuttur, hann þyrfti að
minnsta kosti að vera 3 vikur til
mánuður. Trúum á, að hægt verði
að ná því marki, því að það er vax-
andi fjöldi skáta, bæði yngri og
eldri, sem hafa skilið nauðsyn þess-
arar fræðslustarfsemi. Því þó að
hún sje að miklu leyti miðuð við
fjelagsstarfsemi skáta, þá fer þar
saman hagnýtur undirbúningur
undir þau störf, sem fyrir skátnn-
um liggja í hinu daglega lífi. Kjör-
orðið: „Vertu viðbúinn“, felur í
sjer svo margháttuð viðfangsefni,
að það er endalaust starf langrar
æfi, og hver viðleitni, sem miðar
að fyílingu þess kjörorðs, er góð
og þjóðinni til þrifa.
< iíí i
Framtíð skólans.
SKÁTASKÓLINN hefir frá npp
hafi vega átt við fjárhagsörðug-
leika að búa, en aftur á móti átt
marga ágæta og óeigingjarna starfs-
krafta. Þær munu nokkuð margar
stundirnar, sem dr. Helgi Tómas-
son og aðrir ágætir samverkamenn
hans hafa lagt til starfseminnar við
Tílfljótsvatn. Mikið hefir unnist á,
en þó er meira eftir, því að þarna
er að rísa upp miðstöð og mennta-
setur æskunnar, þar sem rjettur
agi og regla er kennd, þar sem
leikir, störf og sjálfsnám er fljett-
að saman á skeramtilegan hátt. 1
framtíðinni mun rísa þarna upp
voldug útilegustöð, sem starfar allt
árið, að því að venja æskulýðinn
á holla lifnaðarhætti, vekja trú
hans á mátt sinn og megin, trú á
föðurland sitt og framtíð, trú á
bræðralag og frið meðal mannanna.
Negri lá banaleguna. Presturinn
var kominn og sjúklingurinn skrift
aði. Að þeirri atböfn liðinni, sagði
prestur:
>— Þú verður að fyrirgefa þessum
Sam, sem þú talaðir sem mest um
og hatar.
— Er jeg að deyja? spurði hinn
svarti.
— Já, jeg er hhræddur um það,
svaraði klerkur.
Eftir nokkra umhugsun, sagði
negrinn: — Ef jeg dey fyrirgef
jeg honum, en ef mjer batnar dett-
mjer ekki í hug að fyrirgefa þessu
kplsvarta svíni.