Lesbók Morgunblaðsins - 21.10.1945, Síða 11
LESBÖK MORGUNBLAÐSINa jff v *»' f 507
„BLESSAÐ GAMLA HÚSIГ
í Borgarnesi
y r
Eftir Ragnar Asgeirsson
1 RITGERÐ eftir Kristleif Þor-
steinsson, í ITjeraðssögu Borgar-
fjarðar, hefi jeg lesið að fyrsta
húsið í Borgarnesi hafi verið reist
sirið 1877. Hafði ]>á Brákarpollur
verð löggiltur sem verslunarstaður
fyrir 10 árum. Erlendir kaupmenn
sendu þó oft skip á Brákarvoll, um
Jónsmessu leytið, og síðar, með
helstu nauðsynjavörur hændarina
og tóku þá ull og fleiri afurðir um
leið. Yoru þessi skip og verslunar-
mennirnir á þeim alltaf kallaðir
,,Spekúlantar“ og lifnaði yfirjnörg
um í hinum einangruðu afskektu
sveitum þegar siglingin kom. Voru
þetta oftast kútterar með 5—G
manna áhöfn og auk þeirra 2—3
verslunarmönnum. Voru þessar
ferðir mörgum vestra þar til mik-
ils hægðarauka og eru þessar spek-
úlantaferðir minnistæðar þeim sem
fóru í kaupstaðinn á þessum árum.
Sjálfur man jeg vel eftir því, er
jeg var smábarn í Kóranesi og
Straumfirði á Mýrum, um aldamót-
in, hver viðburður þetta var í fá-
menninu þegar hafnsögumaðurinn
var að fylgja kaupskipinu inn á
fjörðinn, milli Höllubjargs og Kóra-
nesshöfðans og að fá svo að fara
út í spekúlantinn. Jeg minnist enn
ilmsins, sem lagði að vitum mínum
þegar jeg kom niður í lestina, þar
sem verslunarbúðin var, því þar
ægði öllu saman, uytja- og mun-
aðarvörum, þar var allt sem barns-
augað girntist. Það hafa vafalaust.
verið síðustu ferðir spekíilantanna,
sem jeg var þar vitni að. Þær lögð-
ust víst niður rjett á eftir, því hent-
ara þótti að hafa fastar verslunar-
biiðir í landi, en að hafa þær á
skipsfj^l. En þá þurfti líka að
Hendrik Biering
bygg.ja verslunarhús og íbúðarhús
fyrir fasta starfsliðið, „faktorinn",
fjölskyldu hans og þjóita.
Það var einmitt íbúðarhús versl-
unarstjórans, sem verið var að
byggja í Borgarnesi sumarið 1877.
Það mun hafa verið teiknað og til
höggið í Noregi og með skipinu,
sem flutti húsviðinn kom norskur
smiður, maður lágvaxinn og með
herðakistil, að nafni Ole Ilaraldsen,
Stóð hann fyrir smíði þessa húss,
og síðan fleiri sem reist voru í Borg
arn. og í Borgarf. síðar. Varð þessi
koma hans hingað til þess að hann
ílentist hjer ásamt konu sinni. Var
hann maður starfsamur og flutti
síðar til Reykjavíkur og andaðist
þar í hárri elli. Munu nokkur hús,
scm Ole Ilaraldsen smíðaði í Borg-
arfirði standa enn og hygg jeg þau
hafi verið ósvikin að efni og vinnu,
því aldrei hefi jeg heyrt „Óla
Frú Elisabeth Biering
norska“ — svo nefndu Reykvíking-
ar hann — getið að öðru en því
sem heiðarlegt var.
Fyrsti maðurinn sem starfrækti
verslun í Borgarnesi var Jón Jóns-
son frá ökrum á Mýrum, oft nefnd-
ur Akra-Jón. Fjekk hann vörur
sínar frá norskum kaupmanni, Jo-
han Lange í Bergen. En ekki stóð
verslun Jóns kaupmanns lengi, því
eftir fá ár ljet hann hana af héndi
við Lange, sem rak hana síðan, und-
ir sínu nafni, nokkuð fram vfir
aldamót. Sjálfur dvaldi eigandinn
þar aldrei langdvölum, en hafði
jafnan „faktor", verslunarstjóra
fyrir sig, sem mun og hafa hentað
- best, því Lange var sagður í meira
lagi geðstirður. — Verslunarsaga
Mýra- og Borgarfjarðarsýslu er
m.jer svo ókunn, að enga tilraxm
mun jeg gera til að skrifa um hana
og ekki veit jeg hvort „faktarar“