Lesbók Morgunblaðsins - 13.10.1946, Side 1
32. tölublað.
JfovgntiMato Im,
Sunnudaginn 13. október 1946 XXI. árg.
O/a;
REYKJALUNDUR
og Beykjafell, og eru þau álíka há og
LANDSLAGI í Mosfellssveit er svo
liáttað, að þar eru mörg lág fell og
grösugir dalir á milli. Eru fellin yfir-
leitt kollótt, með smágiljum og græn-
um gróðurgeirum upp undir brúnir.
Vex þar valllendisgróður og margs
konar lyng, og á góðum sumrum er
þar oft mikið af berjum.
Fell það, sem næst er Reykjavík
og mest ber á, heitir Úlfarsfell. Norð-
an í því eru dökkleitir hamrar og
skriður, og heitir þar Hamrahlíð.
Undir henni liggur alfaraleið, hvort
sem farið er til Þingvalla eða norður
í land. Þar niður undan eru stórbýlin
Korpúlfsstaðir og Blikastaðir. Kirkju-
staðurinn Lágafell er þar rjett fyrir
sunnan og dregur nafn af samnefndu
felli, sem er norðaustur af Hamrahlíð.
Þar liggur vegurinn um garð og er
þar af fellinu undrafögur útsýn yfir
Sundin, eyjarnar Esju, Kjalarnes og
út til Reykjavíkur og Seltjarnarness.
Er hægðarleikur og lítil tímatöf fyrir.
alla, sem um veginn fara, að njóta
þeirrar útsýnar, en ótrúlega fáir
munu færa sjer það í nyt. Bílarnir
þeysa þarna fram hjá dag eftir dag.
Sumir eru fullir af ferðafólki, sem
ætlar að ferðast langa vegu til þess
að fá fallegt útsýni. Það staðnæmist
ekki þarna, heldur víst að ekkert sje
að sjá hjer. Og þó mun óvíða á land-
inu fegurri sjón að sjá en Sundin í
góðu veðri, bbkandi tær við nes og
eyjar, en bláan flóann og Snæfells-
jökul í baksýn. Eða þá á kvöldin,
þegar alt vesturloftið stendur í björtu
báli af geislum hnígandi sólar, þegar
skýin eru sem eimyrja og bráðið gull,
og Sundin endurspegla alla þá dýrð.
Hinum megin við Lágafell hallar
veginum niður og blasir þá við dalur,
sem gengur til suðvesturs inn á milli
fellanna. Norðan dalsins er Úlfarsfell
og Lágafell, en að sunnan Helgafell
Úlfarsfell. Dalur þessi er ekki stór
og mjer vitanlega hefir hann nú ekk-
ert nafn. ,
★
Fjórir bæir voru fyrrum í dalnum
og var þá kallað þarna Reykjahverfi.
Þessir bæir voru: SuðurReykir,
Reykjakot, Stekkjarkot og Amstur-
damm. Voru Suður-Reykir upphaf-
lega höfuðból, en hitt hjáleigur.
Seinna var þeirri sameign sundrað og
voru þá margir eigendur torfunnar.