Lesbók Morgunblaðsins - 19.10.1947, Síða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 19.10.1947, Síða 1
36. tölublað. JforgmtMiitoiit* Sunnudagur 19. október 1947. Arni Ola: elliðaármAlin Laxakista í ElliÖaánum 1836 (rnynd úr bók Gaimcirds) SAGA ELLIÐAÁNNA er ekki ó- merkur þáttur úr sögu Reykjavíkur. Árnar voru í landnámi Ingólfs Arnar- sonar og Vík hefur upphaflega átt allan veiðirjett þar. En þegar sjálf- stæðar jarðir byggjast upp með án- um, fá þær veiðirjett fyrir sínu landi. Þó eru nokkrar líkur til þess að af- komendur lngólfs hafi haldið nokkru itaki i veiðinni, því að í máldaga frá 1235, er seinna verður getið, er sagt að „Víkurmenn" eigi veiðirjettindi í ánum og ennfremur Þormóður Svarts- son, bóndi í Gufunesi. En hann mun kominn af Ingólfi Arnarsyni og hygg- ur Klemens Jónsson að þessi veiði- rjettur Gufunesinga, sje liominn að erföum frá Ingólfi. Veiðirjetturinn í ánum varð mörg- um öldum seinna hið mesta þrætu- epli og hófust út af því 8 ára mála- ferli, þras og svo að segja borgara- styrjöld á Seltjarnarnesi. Verður aðal- lega dvalist við þann kafla sögunnar í þessari grein, eða hin svo nefndu og alræmdu „Elliðaármál“. ELSTU HEIMILDIR í MÁLDAGA írá árinu 1234 segir að Viðeyjarklaustur eigi Elliðavatns- land hálft og allt land að Vatnsenda með þeim veiðum og gæðum, er þeim hafa fylgt að fornu. Þar segir einnig að klaustrið eigi Kleppslarid allt og laxveiði í Elliðaám að helmingi við Laugarnesinga. Samkvæmt máldaga frá 1235 á svo klaustrið í Viðey, Laugarneskirkja, Nesmenn og Víkurmenn veiði í Elliða- ánum og er nánar ákveðið hvern hluta hver þessaia aðila eigi. Þar er og sagt fyrir um það hvernig megi veiða og eru leyfðar tvær veiðiað- ferðir. Önnur er sú að draga á við ár- ósana, en það má ekki gera nema með fjöru eða útfalli. Hin aðferðin er sú, að stííla aðra iivíslina og veita henni í hina og var það kallaö að „gera í ár“. Með því móli mátti taka laxinn svo að segja á þurru landi i þeirri kvísl- inni, sem stífluð var. Með siðaskiptunum (1550) varð sú breyting á, að konungur sölsaði undir sig klaustrin og allar eignir þeirra og jarðagóss. V’arð konungur þá „eig- andi“ að laxveiðinni í Elliðaánum og þeim klausturjörðum, sem að ánum lágu. Konungur notaði fyrst veiðina fyrir eigin reikning, en er stundir liðu fram, þótti honum það ekki til-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.