Lesbók Morgunblaðsins - 19.10.1947, Side 2

Lesbók Morgunblaðsins - 19.10.1947, Side 2
310 LESBÓK MORGUNBLAfiSINS vinnandi og var þá veiðirjetturinn seldur á leigu. í fyrsta skipti er veiðirjetturinn leigður 9. maí 1757 og taka þá tveir bræður, Þorbjörn og Halldór Bjarna- synir veiðina á leigu fyrir rúma 11 ríkisdali á ári. Hinn 27. jan. 1761 kemur nýr leigumáli. Þá er veiðirjett- urinn leigður til þriggja ára fyrir 13 rd. á ári. Enn er til leigumáli frá 30. nóv. 1778; þá er veiðin leigð Jóni nokkrum Guðmundssyni fyrir 13 rd. á ári. Þá kemur rentukammerið til skjal- anna og 3. júní 1786 fær Jón Guðmundsson veiðirjettinn fyrir 21 rd. 32 sh. 1 öllum þessum ieigumálum er um veiðireglurnar vísað til mál- dagans 1235, og enn er til brjef frá rentukammerinu dags. 28. febr. 1795 þar sem vitnað er í þennan máldaga. Allan þennan tíma er því svo að sjá, sem veiðiaðferðin hafi verið sú sama. SALA KLAZJSTURJ ARÐANN A UPP ÚR aldamótunum 1800 fer koungur að selja klausturjarðirnar. Elliðavatn selur hann 1815, Klepp 1817, Helliskot, Gröf með Grafarkoti og Bústaði 1837, Ártún 1838 og Ár- bæ 1839 og eru þær seldar samkvæmt máldögunum 1234 og 1235, án þess að veiðirjetturinn sje undan skilinn. En Breiðholt hafði verið afhent Reykja- víkurpresti þegar á dögum Gísla bisk- ups Jónssonar. Árið 1849 var D. Thomsen orðinn eigandi að Ártúnum. Taldi hann þá að jörðinni fylgdi laxveiðin fyrir landi hennar, þar sem hún væri ekki undan skilin í afsalsbrjefinu. Risu út af þessu málaferli milli hans og umboðs- valdsins og voru þau komin fyrir hæstarjett. En þá gugnaði stjórnin og felst á að selja Thomsen laxveiðina fyrir 1250 ríkisdali, eða sama sem 25 ára leigu, en þá var laxveiðin leigð fyrir 50 rd. á ári. Við þetta fell málið niður. Hafði konungur þá „átt“ lax- veiðina í 300 ár. Afsalsbrjef Thomsens fyrir veiðinni er dagsett 11. des. 1853. I afsalsbrjeíinu er þetta tekið fram: „Afsölum vjer og afhendum áður neíndum D. Thomsen kaupmanni laxveiðarnar í Elliðaánum frá stóra fossinum hjá Árbæ, þar sem nefnist Stórhylur, til árósa og út í sjó á móts við Árbæjarhöfða og Gelgju eða Geld- ingatanga, ásamt veiðarfærum og öll- um þeim rjettindum sem veiðinni hafa fylgt frá fornu, fyigja enn og fylgja með rjettu, svo að hann geti gert sjer veiðarnar eins arðbærar og hann framast kann og gttur, sam- kvæmt fiskveiðalöggjöf landsins, eða þeim reglum, er settar kunna að verða“. Með þessu afsali er auðvitað gert ráð fyrir því, að veiðarnar sje stund- aðar á sama hátt og áður, en Thom- sen mun hafa lagt annan skilning í það og stuðst þar við þetta: „svo að hann geti gert sjer veiðarnar eins arðbærar og hann framast kann og getur“. Hann þvergirti því árnar nið- ur undir ósum og setti þar niður f jór- ar laxakistur, og var þannig umbúið að allur lax, sem í árnar gekk, hlaut að lenda í þeim. Er kistunum þannig lýst: í suðuránni var ein kista tvíhólfuð í aðalkvíslinni, en einhólfa kista í minni kvíslinni; í norðuránni tvíhólfa kista, og einhólfa kista í kvísl, sem rcnnur úr aðalánni fyrir neðan tví- hólfa kistuna. Rimlarnir í þessum kistum voru svo þjettir, að bilin milli þeirra voru ekki nema lýá—2 þuml- ungar. Fór þessu fram um mörg ár að Ditlev Thomsen og seinna sonur hans, H. Th. A. Thomsen, mokuðu upp lax- inum átölulaust, en þó mun þeim, er áttu lönd að ánni ofar, hafa sviðið þetta, því að laxinum var varnað að fara upp eftir ánum, og veiddist því sjaldan fyrir ofan veiðitakmörk Thomsens. Mun það og almennt hafa verið álitið að Thomsen ætti einn alla laxveiði í ánum. Ekki er nú alveg víst, að hinar lög- mæltu gömlu veiðiaðíerðir hafi hald- ist óbreyttar fram á daga Thomsen. í ferðabók Gaímards, sem ferðaðist hjer á landi 1836, er mynd af lax- veiðum i Eiliðaánum. Má ljóst sjá á henni, að þá hafa menn verið farnir að nota laxakistur, en það er ekki sönnun þess að báðar árnar hafi verið þvergirtar, laxakistan gat aðeins ver- ið í annari, og laxinn átt frjálsa leið upp hina ána. Annars virðist svo sem aðalveiðiað- ferðin hafi verið sú, að stífla aðra ána og taka svo laxinn með höndunum. Má um það efni vísa til ferðabóka út- lendinga. Er á frásögnum þeirra svo að sjá, að þá hafi verið sjerstakir veiðidagar. Þótti það jafnan merkis- atburður og varð að nokkurs konar hátíðisdegi fyrir Reykvíkinga, því þá streymdu allir sem vetlingi gátu vald- ið, inn að ánum til að horfa á; fór sauðsvartur almúginn fótgangandi, en höfðingjarnir, kaupmenn og helstu embættismenn fóru þangað ríðandi. Hooker, sem hjer var á valdadögum Jörgensens 1809, lýsir einum veiði- degi í ánni og segir að þá hafi veiðst 2200 laxar. Mackenzie segir (1810) að ákveðinn dagur sje til laxtöku í ánum og var hann þar við og veidd- ust þá 900 laxar. Frú Ida Pfeiffer, sem hjer var sumarið 1845, segist hafa farið inn að ám laxveiðidaginn. Hún segir berum orðum að veiðiað- ferðin sje sú, að stífla ána og taka laxinn á þurru. Þann dag, sem hún var þar, veiddust 800 laxar. Þessi „skemmtun" bæjarmauna hefur lagst niður þegar Thomsen eignaðist veið- ina og fór að veiða í laxakistur í þvergirðingum. MÁLAFERLIN BYRJA NÚ SEGIR næst frá því, að Bene- dikt Sveinsson, síðar syslumaður, eignaðist Elliðavatn. Hófst hann þá handa um það að gera áveitu á Elliða- árengjar og setti í því skyni stíflur i árnar. Þetta sárnaði Thomsen mjög,

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.