Lesbók Morgunblaðsins - 25.04.1948, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 25.04.1948, Blaðsíða 8
228 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Arni Óla: 8 S í SMJÓFLÚÐI / 10 KLUKKUSTUNDIR MAGNÚS PJETURSSON er maður neíndur. Hann var áður bóndi í ýms- um stöðum vestra, en er nú verka- maður hjer í bænum. — Hann hefur komist í það ævintýr, sem líkleea er eindæmi, að lenda í snjóflóði og geta af sjálfdáðum grafið sig úr fönninni eftir tíu klukkustundir. Hefur hann sagt mjer söguna af því, og er hún á þessa leið: ÞETTA skeði á útmánuðum árið 1919. Þau Magnús og Björg kona hans bjuggu þá að Selskerjum við Skálmar- fjörð í Barðastrandarsýslu, en ælluðu að flytjast búferlum um vorið að Naustabrekku á Rauðasandi. — Fór Magnús því að kveðja móður *ína, systkini og tengdafólk, sem átti heima í Reykhólasveit, því að óvist var hvenær íundum bæri saman eftir að þau væri flutti út á Rauðasand. í Berufirði í Reykhólasveit bjuggu þá tengdaforeldrar Magnúsar, Guðrún Ólafsdóttir og Guðmundur Jónsson. Gisti hann hjá þeim í góðu yfirlæti á heimleiðinni, en lagði svo af stað þaðan snemma morguns. Hann var þannig búinn, að hann var í þunnum stormjakka, ystum íata, cif ekki öðrum hlífðarfötum. Á íótum hafði hann tvenna ullarsokka og íslenska leðurskó, húfu á höfði og eina vetlinga. — Hafði hann hugsað | meira um það að vera sem ljettastur til gangs á langri og eríiðri leið, h«- ld- ur en að vera viðbúinn að mæta ó- væntum hrakningum. Veður var þá kyrt, en mikið muggu- kafald og skygni mjög lítið. Mikill ný- t. fallinn snjór lá yíir alt og þæfings ófærð. Magn ';s helt frá Berufirði beint vestur að Þorskafirði, og gevk yfir hann á ísi. Þar var vond færð, mikill snjór og krap undir, en ísinn meir og viðsjáll. Þegar vestur dró á fjörðinn minkaði kafaldið og grilti nokkuð frá sjer. Stefndi Magnús að landi r.iett utan við Þórisstaði. Sá hann þá mann koma hlaupandi niður að firði, benda og kalla, en ekki heyrði Megnús hvað hann sagði. Tók hann því stefnuna beint á manninn. En er að landi kom, sá.hann hvað um var að vera, að nú var háflæði og því auður sjór við land- ið. Ilafði maðurinn ætlað að vara hann við, en það var Andrjes Sigurðs- son, sem þá bjó á Þórisstöðum. Náðu [>cir nú að tala saman og taldi Andrjes þar ófært að landi, en Magnús valdi sjer lausan jaka og ícrjaði sig á hon- um yfir álinn. Þegar hann var kominn á land, heill á húfi, sagði Andrjes að nú yrði hann að koma heim með sjer og drekka kaffi, úr því að hann hefði hætt við það að drekka sjóinn. Magnús kvaðst ekki þora að tefja í svo tvísýnu veðri, en Andrjes sagði að kaffiketillinn heíði verið settur upp þegar sást til hans, svo að þetta yrði ongin töf. — Varð það þá úr að þeir gengu til hæj- ar og fylgdi bóndi Magnúsi inn í litið stoíuhús, sem var undir baðstofulofti. Mátti heita að húsfreyja kæmi með kaffið jafn snemma og Magnús sett- ist niður. Varð þvi viðd.'ölin ekki löng. ÞAÐAN lagði Magnús svo á Hialla- háls og hugsaði sjer að fara á snið íram á veginn, sem var vel varðaður. _ _ >v-------- Magnús Pjetursson. Þegar hann kom upp á‘hálsbrúnina var farið að hvessa mjög á norðan eða norðaustan og óSar kominn skaf- bylur. Helt Magnús samt öruggur á- fram eftir vindstöðunni og fann vörðurnar. Segir svo ekki af ferðun. hans íyr en hann kemur í Gufudal. — Þá var versta veður og vandaðist nú málið. Átti hann að leggja á Gufudalsháls? Ilálsinn var mjög brattur ■'•g Magnús vissi það að hann var illfær vegna harðfennis og klaka áður en nýi snjór- inn kom. Vestan í hálsinum er líka vont gil, sem mun heita Galtardalur. Liggur vegurinn sums staðar svo tæpt á gilbrúninni, að engu má muna að menn hrapi þar fram af þegar harðfenni er. Kveið Magnús mest fyrir þessu gili, en út fyrir Skálanes vildi hann ekki fara, ef annars væri kostur, því að það er löng leið. Þá bjó í Fremri-Gufudal maður, sem Björn hjet, ágætur bóndi og á- reiðanlegur. Rjeð Magnús nú af að finna hann og spyrja hvernig snjólag mundi vera vestan í hálsinum og hvernig haim gæti öruggast komist fram hjá gilinu. Var hann og einráð- inn í að gista þar og bíða bjartara veðurs, ef Björn teldi óráðlegt að leggja á hálsinn. — Gekk hann svo heim að bænum og kvaddi dyra.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.